29.10.1969
Sameinað þing: 8. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 515 í D-deild Alþingistíðinda. (3229)

17. mál, Vesturlandsáætlun

Magnús Kjartansson:

Herra forseti. Hv. 5. þm. Vesturl. taldi, að ég hefði markað sérstöðu í þessum umr. með því að hafa annan tón í máli mínu en aðrir hv. þm. og að ég notaði þetta tækifæri til pólitískra árása á Alþfl. Það, sem fyrir mér vakti, var að vekja athygli á því, að það er til lítils að semja áætlanir um ýmsa þróunarliði í einstökum landshlutum, ef ekki er gerð áætlun um þróun sjálfra atvinnuveganna, sjálfrar undirstöðunnar. Það er ekki rétt hjá hv. þm., að ég hafi tekið afstöðu á móti þessari till. Það gerði ég ekki. Ég hef lýst yfir því, að ég telji, að slíkar byggðaáætlanir geti verið mjög gagnlegar. Hitt sagði ég og það er skoðun mín, að ég tel, að slíkar byggðaáætlanir komi fyrir lítið, ef ekki er tryggt, að þróun atvinnuveganna verði það öflug, að hún geti risið undir þeim framkvæmdum, sem gert er ráð fyrir í einstökum byggðarlögum.

Hv. þm. rifjaði upp, að Framsfl. hefði ekki fengizt til þess að standa við fyrirheitin um áætlunargerð í vinstri stjórninni og hann sagðist ekki vera allt of trúaður á þá stefnubreytingu, sem Framsfl. hefur gert grein fyrir síðan. Við skulum láta trú okkar liggja á milli hluta. En væri ekki ráð fyrir hv. þm. og flokk hans að láta reyna á þetta? Fyrir liggja á þingi fjölmargar yfirlýsingar og till. um það, að Framsfl. sé meðmæltur áætlunarvinnubrögðum. Og er þá ekki sjálfsagt að láta reyna á það, hvort hugur fylgir máli, með því að Alþfl. noti þá aðstöðu, að hann er hreinlega tungan á vogarskálinni? Hann getur tryggt þingmeirihluta fyrir slíkri stefnu, ef Alþfl. vill, ef honum er nokkur alvara með þetta stefnumál sitt.

Mér er fullkomlega ljóst, að í tíð núv. ríkisstj. hafa verið tekin upp ýmiss konar vinnubrögð, sem tengd eru áætlunarbúskap. Efnahagsstofnun og ýmsir aðrir aðilar hafa staðið fyrir miklu nákvæmari og vandaðri skýrslugerð um alla mögulega þætti en áður var. Þetta er mér fullkomlega ljóst. En slík vinnubrögð koma fyrir lítið, ef þeim er ekki fylgt eftir með athöfnum. Ég vil minna hv. 5. þm. Vesturl. á kjörorð hins nýja forsrh. Svía, sem stundum er talinn flokksbróðir þessa hv. þm., a.m.k. í Alþýðublaðinu. Hans kjörorð er: Stjórnmál eru vilji. Þau eru ekki skýrslugerðir, heldur vilji. Allar þessar skýrslur, sem hrúgað er upp, koma fyrir lítið, ef ekki er vilji til þess að hagnýta þær til þess að breyta ástandinu á Íslandi.

Það, sem hins vegar hefur farið aftur á bak tíð núv. stjórnar miðað við það, sem áður var, er það, að ríkisstj. aðhyllist þá kreddu, að stjórnarvöld megi ekki hafa forustu um uppbyggingu atvinnuvega á Íslandi. Þetta er nýjung í stjórnmálasögu síðasta áratugs. Þegar atvinnulíf Íslendinga var endurbyggt í stríðslok, hafði ríkisvaldið forustu um kaup á 32 togurum. Ríkisvaldið hafði forustu um að endurnýja farskipaflotann og bátaflatann og ríkisvaldið hafði forustu um uppbyggingu fiskiðnaðarins. Í þessu tóku þátt ekki aðeins Alþfl. og Sósfl., heldur einnig Sjálfstfl. Í stjórn, sem síðar var mynduð, sem Sósfl. tók ekki þátt í, hafði ríkisvaldið einnig forustu um kaup á nýjum togurum. En þetta hefur ekki mátt síðan viðreisnarstjórnin var stofnuð. Það hefur ekki mátt vera opinbert frumkvæði að því að kaupa nokkur atvinnutæki á Íslandi. Fyrir það hefur verið algerlega lokað. Og þess vegna er þarna um að ræða stórfellda afturför þrátt fyrir alla skýrslugerðina, þrátt fyrir öll þau vönduðu vinnubrögð, sem menn kunna að ástunda í ýmsum stofnunum í þjóðfélaginu. Þessi vinnubrögð verða til einskis, ef þeim er ekki fylgt eftir með athöfnum.

Ég missti því miður af mestum hluta ræðu þeirrar, sem hv. 5. landsk. þm. hélt áðan, en mér skildist, að hann væri að vefengja það, að rétt væri hjá mér, að samdráttur hefði orðið í sjávarútvegi á Íslandi að því er varðar bátaflotann a.m.k. Ég held, að það sé alveg augljós staðreynd, að bátaflotinn hefur orðið miklu einhæfari en áður var. Það getum við m.a. markað á því, þótt hv. þm. hristi höfuðið, að framleiðsla á freðfiski minnkaði um þriðjung á Íslandi á sama tíma og hún tvöfaldaðist og þrefaldaðist í nágrannalöndum okkar. Ástæðan fyrir þessu var sú, að frystihúsin skorti hráefni, vegna þess að ekki var um að ræða bátaflota, sem sinnti þörfum þeirra. Við höfðum forustu á sviði flakaframleiðslu áður. En nú erum við komnir aftur úr, ekki aðeins Norðmönnum, heldur einnig Dönum, einmitt vegna þess að þarna hefur verið um að ræða afturför í þjónustunni við fiskiðnaðinn. Og sú þróun hefur raunar einnig gerzt í tíð hæstv. núv. ríkisstj., að við höfum gert meira að því en áður var að selja afurðir okkar sem hráefni handa öðrum. Það hefur verið gert meira að því að eftirláta erlendum aðilum að vinna úr því ágæta hráefni, sem við öflum, Útflutningur okkar er í ríkara mæli hráefni en áður var. Ég var áðan með tölur um það, hvernig þróun sjávarútvegsins hefði verið. Mig langar til að minna hérna á dálítið fróðlegar tölur, sérstaklega um Reykjavík, vegna þess að hér er atvinnuástandið alvarlegast og hér er þessi skortur á áætlunarvinnubrögðum í sambandi við atvinnulífið tilfinnanlegastur og getur haft mjög háskalegar afleiðingar. Þessar tölur, sem mig langaði til þess að segja hv. þm. frá, eru um vertíðarafla í Reykjavík frá 1964 til ársloka 1968. Og þá er miðað við þann afla, sem landað er frá áramótum til 15. maí. 1964 lönduðu hér 65 bátar 32 750 lestum. 1965 lönduðu 87 bátar 31500 lestum. 1966 lönduðu 63 bátar 22 600 lestum. Árið 1967 lönduðu 29 bátar 9 719 lestum og 1968 32 bátar 7 000 lestum. Það er komið ofan í svo til 1/5 hluta af því, sem var 1964. Og eru menn svo nokkuð undrandi á því, að verkafólk í Reykjavík er uggandi um framtíðina, og finnst hv. 5. þm. Vesturl. stætt á því lengur að láta tilviljun og gróðavonir einstaklinga ráða því, hvort hér eiga áfram að vera atvinnutæki til þess að tryggja framleiðslu?