30.01.1970
Efri deild: 44. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 407 í B-deild Alþingistíðinda. (323)

126. mál, söluskattur

Frsm. meiri hl. (Ólafur Björnsson):

Herra forseti. Ég ætla nú ekki að lengja þessar umr., þó að sitt af hverju, sem fram kom í ræðu hv. 11. þm. Reykv., geti kannske gefið tilefni til athugasemda, en að öðru leyti var málflutningur hans mjög málefnalegur og prúðmannlegur. Það er þó eitt atriði, sem ég sé ástæðu til að leiðrétta. Hann fullyrti, að það væru mismæli, þegar ég sagði, að skattstiginn í Danmörku færi upp í 110%. Ég furða mig nú ekkert á því, þótt honum komi þetta þannig fyrir sjónir og vafalaust öðrum hv. þdm. En þetta voru ekki mismæli og heimild mín fyrir þessum háu skattstigum er bók, að vísu fræðilegs efnis, um skattamál eftir kunnan danskan hagfræðiprófessor, en hann var um skeið fjmrh. Dana og var nýkominn úr því starfi, þegar hann skrifaði þessa 2. útgáfu af bók sinni. Þar birtir hann skattstigana í Danmörku, eins og þeir voru 1965 og þar fara þeir upp í 110%, þegar um einhleyping er að ræða, en aftur á móti, þegar um er að ræða þá, sem hafa fyrir fjölskyldu að sjá, þá fara þeir ekki hærra en í 105%. Einmitt af því, að þessi 105% eru þarna, þá taldi ég víst að þarna gæti ekki verið um prentvillu að ræða, en það væri þó hugsanlegur möguleiki. Í sambandi við þetta ber að hafa hugfast, að allir skattar þar eru frádráttarbærir, þannig að yfir lengri tíma jafnast þetta nokkuð upp, en svona er þetta. Ég hverf ekki frá því, að þær tölur sem hv. þm. nefndi, verða að leiðréttast með tilliti til þess, en það getur vel verið, að skattbyrðin í heild sé ekki öllu meiri í Danmörku heldur en hér á landi. Ég hygg þó, að skatturinn sé heldur þyngri þar en hér, því þeir hafa sínar landvarnir og mikil útgjöld til þeirra, sem við höfum ekki. En þegar um óbeina skatta er að ræða, þá eru þeir minni í Danmörku en hér og það er hlutur, sem kemur inn í verðlagið, þannig að ef maður vill gera sér grein fyrir raunverulegum kaupmætti launa, þá má ekki líta á brúttótekjurnar, heldur það, sem launþegarnir hafa til ráðstöfunar eftir að beinu skattarnir eru greiddir.

Varðandi vísitöluna og kaupgjaldsmálin, þá er ég hv. þm. sammála um, að það beri að greiða eins hátt kaup og atvinnuvegirnir geti á hverjum tíma staðið undir og sé það þannig, sem ég tel að sé að einhverju leyti, að gjaldgeta þeirra hafi aukizt, þá er auðvitað eðlilegt að kaupið hækki. Það, sem má hins vegar ekki koma fyrir og er lítil kjarabót, heldur jafnvel það gagnstæða, er að hækka kaupgjald í trausti þess, að ríkið komi svo til, ef atvinnuvegirnir treysta sér ekki til að borga það og greiði það sem á vantar, eins og hefur hvað eftir annað gerzt. Þá kemur spurningin um það, ef atvinnuvegirnir geta ekki staðið undir því kaupgjaldi, sem samið er um, þannig að þetta þarf að koma annars staðar frá, hvaðan á þá að taka þennan mismun. Ef atvinnurekendurnir greiða þegar hærra kaup heldur en þeir geta borið, þá verður þessi mismunur ekki tekinn af þeim og hvert er þá hægt að sækja hann annað, en í vasa launþeganna sjálfra? Það er ekki til neinn þriðji aðili, sem hvorki tilheyrir atvinnurekendum né launþegum, sem fær er um að taka á sig byrðar.

En að lokum vildi ég aðeins leiðrétta það hjá hv. þm., þegar hann talaði um það, að ríkisstj. hefði beitt sér fyrir þeirri vísitöluskerðingu, sem nú á sér stað. Ég veit ekki betur en þetta hafi verið ákveðið með samningum milli atvinnurekenda og launþega og mér er a.m.k. ókunnugt um það, að fulltrúar frá ríkisstj. hafi verið á þeim næturfundi, sem þetta var ákveðið á. Hins vegar er ég alveg sammála hv. þm. um það, að vísitöluskerðing í þeirri mynd, sem þar var samið um, er algerlega fráleit og ég mun styðja hann og aðra í því eftir mætti, að frá því fyrirkomulagi, sem nú er, verði horfið. Það er hægt að sætta sig við það á neyðartímum, að það sé greidd sama uppbót á öll laun, hvað sem þar er miðað við, þannig að ekki sé greidd nein vísitöluuppbót á laun umfram ákveðið mark. Mér finnst, að tímabundið geti hinir hærra launuðu sætt sig við slíkt. En þetta fyrirkomulag, sem upp hefur verið tekið, að vísitöluuppbótin fellur niður, þýðir það t.d. hjá ríkinu og raunar á hinum almenna vinnumarkaði líka, að lægri launaflokkarnir hljóta smám saman að fara upp fyrir þá hærri, og það er alger fjarstæða. Þetta hefur ávallt verið skoðun mín, og ég vænti þess, að þess verði skammt að bíða, að þetta verði afnumið, sem aldrei hefði átt að innleiða að mínum dómi.