29.04.1970
Sameinað þing: 49. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 521 í D-deild Alþingistíðinda. (3240)

62. mál, áætlunargerð vegna fjárhagsaðstoðar við íþróttastarfsemina

Halldór E. Sigurðsson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka fjárveitingan. fyrir afgreiðslu á málinu. Þó að hún sé nokkuð á annan veg en upphaflega var lagt til, þá var algjört samkomulag um það í fjvn. að afgreiða málið á þann hátt í því trausti, að hæstv. ríkisstj. beiti sér fyrir því, sem þar er lagt til, og treysti ég því, að þessi undirtekt Alþ., sem ég vona að verði, hafi jákvæð áhrif á málið í heild, og það er mergur málsins.