05.11.1969
Sameinað þing: 10. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 537 í D-deild Alþingistíðinda. (3257)
27. mál, eignakönnun
Flm. (Magnús Kjartansson):
Herra forseti. Ég flyt hér ásamt hv. alþm. Jónasi Árnasyni, Karli Guðjónssyni og Steingrími Pálssyni till. til þál. um eignakönnun, og er tillgr. svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta semja og leggja fyrir Alþ. eins fljótt og auðið er frv. til l. um eignakönnun. Skal tilgangur frv. vera sá að afla sem gleggstrar vitneskju um eignaskiptingu hér á landi og sérstaklega um eignasöfnun af völdum verðbólgu og gengislækkana, svo að síðar sé unnt að nota þá vitneskju til þess að afla fjár til aukins atvinnuöryggis og tekjujöfnunar.“
Till. samhljóða þessari var flutt á síðasta þingi og það snemma á þinginu, að nægur tími var til þess að afgreiða hana. Engu að síður urðu það örlög þeirrar till., að henni var vísað til n., hv. allshn. Sþ., og þar sofnaði hún svefninum langa. Ég fæ ekki skilið, hvernig á því stendur, að þessi till. fékk ekki afgreiðslu frá hv. n. Hér er ekki um að ræða mál, sem þarf neinnar sérstakrar könnunar við. Þetta mál þarf ekki að senda í ýmsar áttir til umsagnar. Það er einvörðungu um það að ræða, hvort menn vilja láta framkvæma eignakönnun eða ekki, og það hefði ekki átt að vera ofverk þessarar hv. n. að gera upp hug sinn um þetta atriði, koma með till. um afgreiðslu þessa máls og gera grein fyrir henni á rökstuddan hátt. Þetta vanrækti hv. n., því miður, og mér finnst það gerast allt of oft á Alþ., að nefndir ræki ekki þau störf, sem þær eiga að vinna.
Ástæðan til þess, að þessi till. er flutt, er að sjálfsögðu ærin. Eins og efnahagsástandið er hér á landi, verða í sífellu ákaflega miklar breytingar á eignaskiptingu og raunar tekjuskiptingu í landinu. Hér reka kollsteypurnar hver aðra. T.d. hafa verið framkvæmdar fjórar gengislækkanir á einum og sama áratug, þar af tvær þær síðustu á einu ári. Jafnhliða þessu hefur verið mjög ör verðbólguþróun, og er það raunar aðeins önnur hlið á sama vandamálinu.
Þessar kollsteypur leiða í sífellu til þess, að fram fer stöðug tilfærsla á fjármunum í þjóðfélaginu. Færðar eru til upphæðir, sem hverju sinni nema milljörðum kr. Og það er alkunna, að tilteknir valdamiklir aðilar í þjóðfélaginu notfæra sér þessa vitneskju. Þeir hafa orðið af því langa reynslu, hvernig mál þróast í verðbólguþjóðfélagi, og þeir kunna að hagnýta sér það. Við það bættist, að síðasta gengislækkun var boðuð með löngum fyrirvara. Öll þjóðin vissi nokkrum mánuðum áður en gengið var lækkað, hvað til stóð. Það var meira að segja tilkynnt með opinberri stjórnaraðgerð, þegar lagður var á sérstakur gjaldeyrisskattur. Allir þeir, sem tök höfðu á, höguðu að sjálfsögðu málum sínum með tilliti til þessarar vitneskju. Það er ekki nokkur vafi á því, að einmitt þessi aðferð, sem þá var beitt, að gefa mönnum þennan langa aðdraganda, leiddi til þess, að ýmsir valdamiklir fjármálamenn í þjóðfélaginu gátu hagnazt um mjög verulegar upphæðir á gengislækkuninni.
Auk þessarar kollsteypuþróunar í þjóðfélaginu, sem allir þekkja, höfum við á þessum áratug lifað mestu velmegunarár í sögu þjóðarinnar. Á árabilinu 1962–1966 jukust útflutningstekjurnar ár frá ári. Þá nutum við í senn bæði metafla og metverðlags á erlendum mörkuðum. Það hefur verið reiknað út, að heildartekjur af útflutningsvörum okkar hafi á þessu árabili orðið 20 milljarðar umfram það, sem orðið hefði í meðalárum. Á þessu árabili var einnig tekið mikið af erlendum lánum, tekið fé að láni erlendis og flutt inn í þjóðfélagið. Á þessum árum varð mjög mikil aukning á þjóðarauði. Hæstv. viðskmrh. hefur vakið athygli á því margsinnis að undanförnu, að þjóðarauður Íslendinga hafi á þessu árabili aukizt um yfir 30 þús. millj. kr. og raunar 32 þús. millj., ef bílar eru meðtaldir. Þannig hefur meira fé streymt um þjóðfélagið á þessu árabili en nokkru sinni fyrr. Og það er mjög eðlileg krafa, að um það liggi fyrir full vitneskja, hvar þessir fjármunir hafa stöðvazt. Þessi krafa er að sjálfsögðu borin sérstaklega fram af launafólki, því að það hefur verið til þess ætlazt, að launafólk klipi af tekjum sínum til þess að rétta við fjárhag þjóðarbúsins. Meira að segja láglaunafólki í landinu, því fólki, sem lægst kaup hefur, hefur verið ætlað að gefa eftir af samningsbundnum tekjum sínum með því að fallast á skerðingu á vísitöluuppbótum. En á sama tíma og þannig er komið fram við láglaunafólk í landinu, eru engar ráðstafanir gerðar til þess að reyna að ná í þá miklu fjármuni, sem vitað er, að einstakir aðilar hafa getað dregið sér vegna sérstöðu sinnar í þjóðfélaginu og vegna vitneskju sinnar um gengislækkanir og verðbólguþróun.
Raunar væri einnig mjög fróðlegt að láta framkvæma könnun sem þessa, vegna þess að hún mundi leiða í ljós, hvernig eignaaukningu í landinu hefur verið háttað, og þar á meðal hvað fjármunamyndun hefur verið þjóðhagslega hagkvæm. Við heyrum oft tölur um það, fluttar af hæstv. ráðh., að eignamyndun hafi verið ör á þessu tímabili, t.d. í iðnaði og ýmsum slíkum greinum, en maður heyrir minna um það, að hve miklu þjóðhagslegu gagni þessi fjármunamyndun hafi komið. En við könnun sem þessa mundi fást aukin vitneskja; einnig um þetta atriði.
Við minnum á það flm. í grg. okkar, að um efni þessarar till. liggur fyrir mjög skýr yfirlýsing frá hæstv. núv. forsrh. Í umr., sem urðu á þingi 12. des. 1966, komst hann svo að orði um hugsanlega gengislækkun, með leyfi hæstv. forseta:
„Loks vil ég gefa þá afdráttarlausu yfirlýsingu, að núv. ríkisstj. kemur ekki til hugar að fella gengið. Það er að vísu rétt, að þannig getur staðið á í þjóðfélagi, að það sé nauðsynlegt að fella gengi, eins og dæmin sýna, bæði hér og annars staðar, og það er auðvitað alveg fásinna, ef ég ætlaði að segja, að aldrei kæmi til mála að fella gengi á Íslandi. Slíkt mundi ég aldrei segja, einfaldlega af því, að ég ræð því ekki. Og það mundi enginn maður trúa mér. Hitt segi ég og við það skal ég standa, að ég skal aldrei verða með gengislækkun framar, nema því aðeins að ráðstafanir verði gerðar til þess, að þeir, sem ætla sér að knýja fram gengislækkun til þess að græða á henni, fái að borga sinn brúsa fyllilega.“
Þetta eru afar skýr ummæli, og ég vil vekja athygli á því, að hæstv. forsrh. segir: Ég mun aldrei verða með gengislækkun framar, nema þetta liggi fyrir. Honum er það ljóst, að hann hefur staðið sjálfur að gengislækkunum, sem hafa leitt til þess, að sérstakir aðilar hafa hagnazt stórlega á þeim. En hann lofaði því hátíðlega héðan úr ræðustól Alþ., að hann mundi aldrei standa að slíkum málum framar. Eftir þetta hefur hæstv. forsrh. staðið að því að lækka gengið tvívegis, en engar ráðstafanir hafa verið gerðar til þess, að þeir, sem græða á gengislækkun á ómaklegan hátt, fái „að borga sinn brúsa fyllilega.“ Engar slíkar ráðstafanir hafa verið gerðar. Ég hef rætt þetta atriði við hæstv. forsrh. nokkrum sinnum á þingi, og hann hefur komið með afar einkennilegar skýringar. Hann hefur sagt, að hann hafi átt við einhverja vissa aðila, sem unnu að gengislækkun á árinu 1965, og ég held, að það hafi meira að segja komið fram hjá honum, að hér hafi verið um einhverja framsóknarmenn að ræða. Nú má það vel vera, að einhverjir vondir menn úr Framsfl. hafi staðið að slíkum tilraunum á þessu árabili, en þetta vandamál er margfalt víðtækara, og ég hugsa, að þeir, sem hagnast á gengislækkunum, séu frekar í öðrum flokki. Og ég held, að það geti ekki verið neinn ágreiningur um það, að fyrir utan þá aðila, sem hæstv. ríkisstj. segist vilja aðstoða með gengislækkunum sínum, þ.e. útflutningsatvinnuvegina, hagnast aðilar, sem ekki leggja fram neina jákvæða þjóðfélagslega þjónustu. Þannig hagnast alls konar annarlegir verðbólgubraskarar og fjármálamenn. Og á þessum tímum tel ég það algerlega ósæmilegt, að ekki sé gerð gangskör að því að láta þessa aðila bera sínar byrðar fyllilega til jafns við aðra.
Ég held, að það sé ástæða til þess að spyrja hæstv. viðskmrh., fyrst hann er hér staddur einn ráðh. og allir vita, að hann er mikill áhrifamaður í núv. ríkisstj., hvort ekki megi vænta þess, að hæstv. ríkisstj. sýni lit á því, þrátt fyrir þá töf, sem orðin er, að standa við það loforð, sem hæstv. forsrh. gaf, þegar hann hét því, að þeir, sem högnuðust óeðlilega á gengislækkunum, fengju að borga sinn brúsa fyllilega. Ég held, að það ætti að vera nokkuð nærtækt fyrir hæstv. viðskmrh. að svara þessari spurningu, vegna þess að hann heyrir til flokki, sem kennir nafn sitt við íslenzka alþýðu, sem ég veit, að ætlast til þess, að þannig verði að verki staðið.
Ég vil leggja til, að umr. verði frestað og málinu vísað til hv. allshn., og ég vil vænta þess, að hún sinni þessu máli af ögn meiri myndarskap nú en í fyrra.