02.12.1969
Sameinað þing: 17. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 540 í D-deild Alþingistíðinda. (3267)
36. mál, leit að bræðslufiski
Flm:
(Vilhjálmur Hjálmarsson): Herra forseti. Flm. þessarar þáltill., sem hér er til umr., eru átta þm. Framsfl. úr öllum kjördæmum landsins. Þessi till., eða till. um sama efni, sem var flutt á síðasta þingi, seint á þinginu, komst til n., en fékk ekki afgreiðslu að öðru leyti. Hún er nú endurflutt hér með litlum breytingum; raunar aðallega áð formi til. Í fyrra lögðum við til, að skipuð yrði sérstök nefnd til að annast þau átriði, sem till. fjallar um, en núna leggjum við til, að ríkisstj. sé falið að láta gera þessa athugun og eins og vikið er að í grg., þá að sjálfsögðu í samráði við Hafrannsóknastofnunina. Tillgr.: er þannig, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþ. ályktar að fela ríkisstj. að láta hefja að loknum nauðsynlegum undirbúningi skipulega leit, rannsókn og veiðarfæratilraunir í því skyni að auka veiðar á bræðslufiski og gera þær veiðar fjölþættari. Athugun á þessu verði einkum beint að loðnu, spærlingi, sandsíli og kolmunna.“
Ég sagði áðan, að þessi till. hefði ekki náð afgreiðslu á síðasta þingi, enda flutt seint á þinginu. Aftur á móti var á síðasta þingi flutt önnur till. um hliðstætt efni, en takmarkaðra, þ.e. um leit og rannsóknir varðandi loðnu. Sú till. fékk ákaflega góðar undirtektir. Hún komst að vísu nokkuð seint til n., en n. afgreiddi hana samhljóða, og hún var einnig samþ. shlj. í hv. þingi ásamt viðauka um heimild fyrir ríkisstj. að taka skip á leigu í allt að 6 mánuði umfram það, sem ákveðið hafði verið þá þegar í fjárlögum, til þess að annast þessa leit. Mér finnst þessi skjóta afgreiðsla þingsins á þessari till. sýna það, að á hv. Alþ. er mikill skilningur á þessum málum.
Ég vil fara örfáum orðum um efni þessarar till., sem hér liggur nú fyrir. Ég vil fyrst drepa á það, hversu gengið hefur til með síldveiðar Íslendinga. Það hafa komið mörg síldveiðitímabil, jafnvel á því skeiði, sem við allir munum, og hroturnar hafa oft verið ákaflega skarpar. Menn hafa brugðizt myndarlega við, eftir því sem geta var til hverju sinni. Síldarverksmiðjur hafa verið byggðar þar á landinu, sem mest barst að af síldinni þá og þá. Þetta gerðist hér sunnanlands, þetta gerðist norðanlands og í síðustu og stærstu hrotunni í mjög stórum mæli á Austfjörðum. Einnig öfluðu Íslendingar sér, og ekki sízt í síðustu hrotunni, stórra og vel búinna veiðiskipa til þess að stunda þessar veiðar og afköst þeirra voru, á meðan bezt gekk, mjög mikil. Sú hefur alltaf orðið raunin á, að síldveiði í þessum mæli, síldarmokið, hefur staðið stutt hverju sinni og sú varð einnig raunin núna síðast. Og þá blasir það við, að við eigum stóran flota skipa, sem er mjög vel til þess fallinn að veiða bræðslufisk, veiða mikið, afkasta miklu, og við eigum mjög margar síldarverksmiðjur, sem nú hafa ákaflega lítil verkefni. Síðustu upplýsingar, sem ég hef séð um það mál, gefa til kynna, að afköst síldarverksmiðjanna samtals á öllu landinu séu hvorki meira né minna en um 20 þús. lestir á sólarhring. Og það gefur bendingu um, hversu gífurleg afkastageta þetta er, að loðnuvertíðin í fyrra, sem var hin bezta, hefur gefið fyrir allt síldarverksmiðjukerfið ekki nema um 10 daga verkefni. Og þegar mest veiddist af síldinni, var það, sem fór í bræðslu, ekki nema eins til tveggja mánaða viðfangsefni fyrir síldarverksmiðjurnar í heild.
Nú er það að vísu svo, að verð á vinnsluvörum verksmiðjanna hefur verið mjög breytilegt eins og skiljanlegt er, þegar þess er gætt, hve miklar sveiflur eru í framleiðslu þessara vörutegunda, bæði hér og annars staðar. En þrátt fyrir það fer ekkert á milli mála, að síldarverksmiðjurnar hafa skilað mjög verðmætri útflutningsvöru og framlag þeirra til þjóðarbúsins hefur verið mjög þýðingarmikið. Nú virðist það næsta eðlilegt, að þegar síldveiði hefur þorrið um sinn, þá leiti menn annarra úrræða um hráefnisöflun, gefi því gætur, hvort ekki sé unnt með einhverjum hætti að nýta hina miklu afkastagetu þessara stórvirku framleiðslutækja. Á ég fyrst og fremst við verksmiðjurnar, en raunar einnig við skipaflotann, sem, eins og ég sagði áðan, er mjög vel til þess fallinn að nýta hann að hluta til þess að veiða bræðslufisk. Og þá er þess að minnast, að fróðir menn telja, að til séu í hafinu hér umhverfis landið eða nálægt landinu eigi færri en fjórir fiskistofnar aðrir en síldin, sem vel getur komið til mála að nýta sem hráefni fyrir síldarverksmiðjurnar. Ég skal ekki eyða löngu máli í að rekja skoðanir fiskifræðinga um þetta efni. En í þeim örfáu orðum, sem ég segi um það; styðst ég við grein, sem Jakob Jakobsson fiskifræðingur birti í 3. hefti Ægis á þessu ári. Hann fer ekkert dult með það; að hann telur, að við þá fjóra fiskistofna, sem hann þar nefnir, séu mjög miklar vonir bundnar, þó að hins vegar hljóti að kosta töluverðar athuganir, leit og veiðarfæratilraunir, ef auðið á að verða að nýta þá.
Fyrst skal ég nefna loðnuna. Hún hefur verið nokkuð veidd. Hún er eiginlega í sérflokki hvað þessa fjóra stofna snertir að því leyti, að hún hefur þegar verið veidd töluvert hér við land. Í fyrstu voru þær veiðar með ákaflega frumstæðum hætti og í mjög smáum stíl. Hún var þá eingöngu veidd til beitu og aðallega á Austurlandi eða við suðausturströndina. Síðan fóru þær veiðar mjög vaxandi og loðna til beitu hafði um tíma mjög mikla þýðingu fyrir Iínuvertíðina við Suðausturland. Hins vegar eru liðin allmörg ár síðan tekið var að veiða loðnu í stærra mæli og þá til bræðslu. Og svo að ég fari fljótt yfir sögu, þá var loðnuvertíðin í fyrra sú gjöfulasta, sem orðið hefur hér við land, en þá veiddust um 170 þús. tonn, sem gáfu, að mig minnir, eitthvað um 350 millj. kr. í erlendum gjaldeyri. Nú er það álit fiskifræðinga, að í mörgum tilfellum eigi að vera hægt að lengja loðnuvertíðina. Loðnan hefur sitt heimkynni norður í höfum og það er algengast, að hún komi upp að suðausturströnd landsins og veiðist fyrst þar, en hugsanlegt er, að með því að fylgjast með göngum hennar megi byrja að veiða hana norðar. Hún kemur stundum upp að Norðausturlandi og jafnvel þó að hún ekki kæmi alveg upp undir land, þá ætti að mega veiða hana úti fyrir. Þessi skoðun fékk byr síðast í fyrravetur, en þá var nokkuð mikið magn af loðnu úti fyrir Austfjörðum og að því er talið var í veiðanlegu ástandi og við veiðanleg skilyrði vegna veðurs á þeim tíma, sem verkfallið stóð yfir. Það er sem sagt álitið, að lengja megi veiðitímann á þennan hátt, með því að fylgjast með göngum loðnunnar að landinu, þegar hún kemur til þess að hrygna, en einnig, að hugsanlegt sé að veiða loðnuna að sumrinu fyrir norðan land og þá dýpra úti, því að þar hafa síldarleitarskip orðið vör við mikið magn af loðnu oftar en einu sinni í sumar var töluvert leitað að þessum fiski, en sú leit bar minni árangur en menn höfðu vonazt eftir. Í raun og veru segir það þó ákaflega lítið um málið í heild, m.a. vegna þess, að loðnan er mjög skammlífur fiskur. Hún hrygnir aðeins einu sinni og deyr síðan og þegar þess er einnig gætt, að þroskaaldur hennar er mjög misjafn, hún getur orðið kynþroska tveggja ára og einnig fjögurra ára, og að þroskinn er háður skilyrðunum í sjónum hverju sinni, þá er það auðvitað augljóst, að búast má við mjög breytilegum árangri af loðnuveiðum hér við land og það er ekki á vísan að róa með hana og sízt að sumrinu, þó að það geti verið um svo mikla möguleika að ræða einnig þá, að skylt sé að okkar dómi, flm. þessarar till., að gefa þeim möguleikum einnig sérstakar gætur. Við álítum því, að þrátt fyrir lítinn árangur af loðnuleitinni í sumar, þurfi enn að efla rannsóknir á þeim fiskistofni og leitast við að fylgjast vel með göngum hans, ef auðið kynni að verða að einhverju leyti a.m.k. að leiðbeina við veiðar á henni líkt og gert var á sínum tíma, þegar síðasta síldveiðihrotan hófst. En enginn vafi er á því, að síldarleitin átti þar stóran hlut að.
Hinir þrír fiskistofnarnir, sem nefndir eru í grein Jakobs Jakobssonar, hafa miklu minna og sumir ekkert verið veiddir hér við land. Hann nefnir spærlinginn. Í sumar voru gerðar tilraunir. Einn bátur frá Vestmannaeyjum gerði tilraunir með slíkar veiðar, og þær gáfu góðan árangur og studdu álit fiskifræðinga um það, að þessi fiskur sé veiðanlegur hér við land. Spærlingurinn er í hlýja sjónum sunnan við landið gagnstætt loðnunni, sem er kaldsjávarfiskur. Hann leggur leið sína einkum upp að landinu sunnan- og suðvestanverðu. Ég skal ekki fara langt út í það, en hans hefur oft orðið vart hér við land. Spærlingurinn hefur verið veiddur t.d. á Norðursjávarsvæðinu í töluverðum mæli. Það er álitið, að ef spærlingsveiðar ættu að verða stundaðar að marki hér við land, þyrfti að gera töluverðar veiðarfæratilraunir. Hann hefur verið veiddur í ýmis veiðarfæri ytra, hringnót og vörpur, bæði flotvörpur og botnvörpur, og er eðlilegt, að það þurfi að reyna að átta sig á því, hvernig bezt hentar að standa að þeim veiðum hér við land, auk þess sem betur þarf að fylgjast með göngum þessa fisks.
Í þriðja lagi er svo nefnt til sandsílið. Lifnaðarhættir þess eru ólíkir háttum loðnu og spærlings að því leyti, að það er grunnsjávarfiskur og það er heldur ekki bundið við ákveðna landshluta, eins og þær fisktegundir, heldur hefur þess orðið vart víðs vegar í kringum landið. Svo til engar rannsóknir hafa verið gerðar á þeim fiskistofni, en það er álit Jakobs, að einnig það sé veiðanlegt að verulegu marki. Og hann bendir á, að það gæti gefið aukna fjölbreytni í veiðar á bræðslufiski, því að til veiða á sandsíli hentuðu smærri skip en til veiða á hinum tveimur tegundunum, sem ég nefndi áðan, og það er finnanlegt víðs vegar við landið.
Að síðustu skal svo nefndur til kolmunninn. Þetta er fremur smávaxinn fiskur. Úthafsfiskur er hann. Stærðin á honum mun vera 30–40 sm og sagt er, að hann hrygni um eða utan við landgrunnsbrúnir Norðvestur-Evrópu, og hefur til skamms tíma verið haldið, að hann héldi sig svo til eingöngu í hlýjum sjó. En hann hefur alveg afsannað þessa kenningu. Hans hefur orðið vart þráfaldlega og stundum í mjög stórum mæli á síldveiðisvæðunum fyrir austan land, og það hefur komið fyrir, að hann hefur beinlínis gengið inn í kalda sjóinn. Þessi fiskur hefur aldrei verið nýttur hér, og lifnaðarhættir hans eru lítt rannsakaðir. En það er staðreynd, að magnið er oft mikið og hugsanlegt er, að einnig hann gefi töluvert mikla möguleika.
Þessi örfáu atriði, sem ég hef hérna greint varðandi þessa fjóra fiskistofna, gefa það alveg tvímælalaust til kynna, hvað hér gæti verið um mikla og fjölbreytta möguleika að ræða. Og þegar ég segi fjölbreytta, þá á ég alveg sérstaklega við það, að líklegt er, að þessa fiskistofna megi veiða bæði á mjög mismunandi árstímum og einnig á ýmsum veiðisvæðum. Hér er þá líka, eins og af sjálfu leiðir, um mjög yfirgripsmikið verkefni að ræða, ekki einasta í fiskileit, heldur margs konar rannsóknarstarfsemi og svo veiðarfæratilraunum. Ég legg áherzlu á það, sem ég ætla, að hv. þm. sé að vísu ljóst, að leitin að loðnu í ár og þær tilraunir, sem gerðar voru með spærlingsveiðina, geta aldrei verið annað en örlítil byrjun á mjög umfangsmiklu verkefni, sem ekki verður hægt að sinna nægilega nema með töluvert miklum undirbúningi og skipulagningu.
Það er almennt viðurkennt, a.m.k. í orði, að það sé mjög nauðsynlegt fyrir okkur Íslendinga að efla raunvísindastarfsemi í þágu okkar atvinnuvega. Það var komið inn á þetta á mjög myndarlegan hátt síðast í gær í erindi, sem flutt var í Háskólanum í tilefni dagsins. Það eru vissulega víða ákaflega opin skörð í þann varnarvegg, sem þekking og tækni ættu að vera okkar atvinnuvegum og þar með fyrir okkar afkomu. Mér er ákaflega ofarlega í huga í því sambandi, þó að það sé ekki skylt mál þessu, hversu lítið er vitað um túngróður okkar, og þau gífurlegu áföll, sem bændastétt landsins hefur orðið fyrir af völdum kals í túnum. Og mér virðist, að stjórnarvöld hafi ekki verið nægilega vakandi t.d. í því máli. Það er fyrst í ár, eftir að margir bændur í stórum landshlutum hafa verið svo til graslausir árum saman, að sett er upp sérstök athugun í þessu sambandi. En þetta er allt önnur saga. En hvar sem eitthvað er af alvöru fengizt við vísindastarfsemi í þágu atvinnuveganna, eins og t.d. rannsóknir vegna sjávarútvegsins, kemur það óðar í ljós, hversu þýðingarmikil þau störf eru.
Þótt undarlegt megi virðast, þá sýnist mér vera nokkur tilhneiging til þess að draga úr vissum þáttum í starfsemi Hafrannsóknastofnunarinnar um leið og aðrir þættir starfsins eflast. Þannig virðist nú t.d. fyrirhugað að leggja leitarskipinu Hafþóri, þegar hafrannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson kemur til nota. Ég hefði haldið, að hlutverk Bjarna Sæmundssonar væri fyrst og fremst áformað á öðru sviði en til beinnar fiskileitar, og finnst mér því mjög misráðið að leggja Hafþóri. Það hefur töluvert verið kostað til Hafþórs, hann hefur verið útbúinn með ýmsum tækjum og búnaði, sem hentar til þess hlutverks, sem hann hefur haft, og ég held, að það sé ekki á rökum reist, að hafrannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson geti komið inn í það hlutverk. Það hefur stungið í augu á fjárlögum síðustu tveggja ára og svo á fjárlagafrv. núna, hverjar breytingar hafa orðið á tiltekinni fjárveitingu til þessara mála, þar sem gjaldaliður heitir: Til fiskileitar og veiðarfæratilrauna. Ég held, að sú fjárhæð hafi fyrst og fremst verið ætluð til veiðarfæratilrauna. En í fjárlögum 1968 er þessi upphæð 4.3 millj., 1969 2.3 millj. og núna í fjárlagafrv. er þessi upphæð 775 þús. kr. Þegar menn hugleiða, hvert verð liggur nú í öllum veiðarfærum, þá er það augljóst mál, að eftir að fjárveiting til veiðarfæratilrauna er komin niður fyrir milljón, þá er nánast ekkert hægt að gera nýtt á því sviði. Þetta sýnist vera alveg fráleitt, og ég vil leggja áherzlu á það, að þetta er í algeru ósamræmi við þann vilja, sem fram kom hjá Alþ. í fyrra við afgreiðslu á till. um að fylgjast með loðnugöngunum, því að sú afgreiðsla var mjög afgerandi. Hún var einróma um að efla þessa leit, og í henni fólst heimild til þess að taka skip á leigu í 6 mánuði, það ætla ég að jafngildi heimild um aukin útgjöld upp á nál. 6 millj. Það er vissulega ekkert venjulegt, að samþykktar séu slíkar tillögur frá stjórnarandstöðunni. Nei, mér virðist það, sem þarna er að gerast, þó að — ég legg áherzlu á það — þó að aðrir þættir séu efldir, — ekki í samræmi við þann þingvilja, sem fram kom í vor.
Flm. þessarar till. líta svo á, að um leið og starfsemi haf- og fiskirannsókna eru efldar almennt, þá sé nauðsynlegt að fara inn á þau svið, sem þessi till. fjallar sérstaklega um, miklu meira en nú hefur verið gert. Ég vil aðeins árétta það, sem ég þegar hef tekið fram: 1) Sérfræðingar telja, að hér geti verið um mikla möguleika að ræða. 2) Við eigum mjög hentugan skipastól, sem eðlilegt væri að nýta til aukinna veiða á bræðslufiski. 3) Afkastageta síldarverksmiðjanna er gífurleg og ónotuð að mestu. 4) Vissulega hefur þjóðin næg not fyrir þann erlenda gjaldeyri, sem hún kynni að fá til viðbótar, ef menn sneru sér að þessum málum af alvöru.
Með hliðsjón af þeim ágætu viðtökum, sem till. um loðnuleitina fékk í fyrra, vildum við nú mega vænta þess, að einnig þessi till. fái góðar undirtektir hér á hv. Alþ. Till. um þetta efni mun hafa verið vísað til hv. fjvn. og ég vil, herra forseti, leggja til, að svo verði einnig gert um þessa till.