11.03.1970
Sameinað þing: 38. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 550 í D-deild Alþingistíðinda. (3284)

42. mál, rekstrarlán iðnfyrirtækja

Frsm. meiri hl. (Bragi Sigurjónsson):

Herra forseti. Till. þessi til þál. um rekstrarlán iðnfyrirtækja lá í líku formi fyrir allshn. í fyrra og síðan eins nú, og varð allshn. ekki sammála um afgreiðslu till. Meiri hl. allshn. leggur til, að till. sé afgreidd með rökst. dagskrá svo hljóðandi:

„Þar sem vitað er, að öll mál iðnaðarins, þar á meðal lánamál hans, eru í gagngerri athugun hjá ríkisvaldinu, og vel má vera, að sú athugun leiði til hagfelldari lánafyrirgreiðslu en í till. þessari felst, telur Alþ. ekki tímabært að samþykkja bindandi úrlausnir varðandi rekstrarlán iðnfyrirtækja, og tekur því fyrir næsta mál á dagskrá.“