29.01.1970
Neðri deild: 46. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 417 í B-deild Alþingistíðinda. (335)

156. mál, Iðnþróunarsjóður

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Ég fagna því, að þetta frv. er fram komið og þá má segja, að yfirleitt horfi iðnaður mjög björtum augum til framtíðarinnar hvað það snertir að fá stóraukið fjármagn til uppbyggingar iðnaðarins. En það, sem ég vildi segja við þessa 1. umr. málsins hér í hv. d., var það í raun og veru, sem fram kom hjá 4. þm. Austf., að ég vildi spyrjast fyrir um það, hvort það væri ekki litið svo á, að þessi Iðnþróunarsjóður næði til niðursuðuiðnaðarins og jafnvel niðurlagningar. Hins vegar hefur mér skilist, að hann næði ekki til fiskiðnaðar almennt. En það má segja, að fiskiðnaður almennt hafi fengið fjármagn í gegnum Stofnlánadeild sjávarútvegsins, en hinn ungi og vanmáttugi niðursuðuiðnaður okkar hefur í raun og veru verið utan við flestallar fjárútveganir og þess vegna vildi ég gjarnan fá um það upplýsingar, hvort það væri ekki af hæstv. iðnrh. litið svo á, að tilgangur sjóðsins væri einnig að byggja upp niðursuðuiðnað og þá jafnvel líka niðurlagningariðnað.

Eina grein þessa stutta frv. vil ég leyfa mér að gera nokkra aths. við, en það er 4. gr. frv. Ég er andvígur því og í raun og veru róttækari en hv. 4. þm. Austf., að hann taldi rétt, að framkvæmdastjórnin væri ekki skipuð fulltrúum bankanna, en alveg sérstaklega þó ekki fulltrúa Seðlabankans. Ég tel enga ástæðu til þess, að í hvert skipti sem lagt er hér fram frv. og lög eru staðfest um sjóði, lánasjóði til atvinnuveganna, að endilega eigi bankastjórar að ráða slíkum framkvæmdasjóðum. Ég tel sjálfsagt í tilfellum sem þessum, að það eigi að vera fulltrúar þeirra atvinnugreina, sem sjóðunum er ætlað að styrkja og starfa fyrir og þeir eigi að vera þar í minni hl., þannig að það sé tryggt, að þeir geti gætt hagsmuna sinna samtaka, en að öðru leyti tel ég rétt, að löggjafarsamkoman kjósi hverju sinni meiri hl. í stjórn þessara sjóða, en ekki bankarnir. Og hvað sem líður viðhorfum manna til stjórnmálaflokka og stjórnmálamanna í landinu, þá treysti ég þeim miklu betur til þess að vera mannlegum og réttlátum í sambandi við atvinnuvegina heldur en framkvæmdastjórn, þar sem saman eru komnir 4—5 bankastjórar. Þess vegna ætla ég að lýsa því yfir hér í upphafi, að ég mun greiða atkv. á móti þessari grein frv. á síðari stigum málsins, en ég vænti þess, að hv. n., sem fær frv. til meðferðar, breyti þessu, því að þetta er orðið hvimleitt fyrirbrigði í frv., sem flutt eru um stofnlánasjóði.