29.01.1970
Neðri deild: 46. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 417 í B-deild Alþingistíðinda. (336)

156. mál, Iðnþróunarsjóður

Ingvar Gíslason:

Herra forseti. Ég skal ekki hafa mörg orð um þetta mál, og þeir hv. þm., sem hér hafa talað, hafa tekið fram sumt af því, sem ég vildi gera að umræðuefni. En það er þá í fyrsta lagi um stjórn sjóðsins og þá ekki sízt það atriði, sem hv. síðasti ræðumaður og raunar einnig hv. 4. þm. Austf. minntist á, spurningin um það, til hvers þessi Iðnþróunarsjóður eigi að ná, nánari skilgreining á því, til hvaða iðngreina þessi sjóður eigi að ná, og ég vænti þess þá, að hæstv. ráðherra svari því.

Sama er að segja um 4. gr., þar sem fjallað er um stjórn sjóðsins, að ég tel, að sú grein sé ákaflega óheppileg og hefði verið æskilegra, að þeim málum hefði verið skipað á annan veg en gert er ráð fyrir. Hins vegar sýnist mér, að þarna sé úr vöndu að ráða fyrir okkur hér í þinginu, vegna þess að ég sé ekki betur samkv. 1. gr. þessa frv. en hér sé um að ræða staðfestingu á gerðum samningi. Við stöndum í rauninni frammi fyrir gerðum hlut, þannig að við verðum annaðhvort að hafna frv. með öllu ellegar samþ. það eins og það liggur fyrir, vegna þess að það segir svo í fylgiskjali, sem fylgir þessu þingskjali, um stjórnina, – og eins og menn vita, þá er það undirritað af ráðherrum Norðurlanda, – þar stendur, að framkvæmdastjórn skipi framkvæmdastjóri sjóðsins og 5 fulltrúar íslenzka bankakerfisins, þannig að það virðist vera frá þessu gengið nú þegar, að þetta skuli svo vera og er þetta samkomulag, sem ráðherrar annarra landa hafa undirritað og þess vegna dálítið erfitt um vik fyrir okkur þingmenn hér að breyta þessu. Á þetta vildi ég benda og held, að ég fari þar rétt með, en ég kann þessu þó ekki vel.

En ég hefði þó viljað minnast á eitt atriði, sem ég held að hafi ekki borið á góma hér í þessum umr., en er þó nokkurs virði. Ég ætla ekki að fara mikið út í EFTA–málið og hef ekki tekið þátt í umr. um það efni hér og skal láta það algerlega ógert að lýsa skoðunum mínum á því máli frá rótum, en hins vegar er mér ljóst, að við stöndum núna frammi fyrir því, að við verðum EFTA–aðilar um sinn a.m.k. og að því er stefnt, að við aðlögum atvinnuvegi okkar þessari aðild. En þá vil ég benda á það í þessu sambandi, að þegar rætt er um atvinnuvegina og EFTA–aðildina, þá hafa umr. um það verið ákaflega almennar, menn hafa rætt mjög almennt um, hvaða áhrif EFTA–aðildin kunni að hafa á iðnaðinn. Hins vegar hefur minna verið um það rætt, sem kannske er von, hvaða áhrif EFTA–aðildin kunni að hafa á hvert einstakt fyrirtæki, þannig að hver einstakur iðnrekandi veit ákaflega lítið um það, hvaða áhrif EFTA–aðildin muni hafa á hans sérstaka fyrirtæki. Og það er einmitt þetta, sem ég vil benda á. Það er ákaflega mikilvægt og ekki síður mikilvægt, en að ræða um þessi mál almennt og ræða um hver áhrif EFTA–aðildin mun í heild hafa á einstakar iðngreinar. En það, sem á skortir, er þetta, að hvert einstakt fyrirtæki geti, svo að vel sé, gert sér fyllilega grein fyrir því, hvaða áhrif EFTA–aðildin kunni að hafa á framleiðslu þess og starfsemi.

Og úr því að við erum á annað borð orðnir aðilar að EFTA og stöndum frammi fyrir því, þá hygg ég, að okkur vanti fjármagn eða réttara sagt, að fyrirtækin vanti fjármagn til þess að kosta ýmiss konar sérfræðilegar rannsóknir á því, hver áhrif EFTA–aðild hafi á rekstur þeirra og einnig, með hvaða hætti viðkomandi fyrirtæki geti aðlagað rekstur sinn harðnandi samkeppni, sem hlýtur að leiða af EFTA–aðildinni. Ég minnist á þetta atriði í sambandi við þetta mál vegna þess, að mér finnst, að það eigi og hljóti að koma til greina, að úr Iðnþróunarsjóði verði einstökum fyrirtækjum lánað nákvæmlega í því skyni, sem ég er hér að minnast á. Skal ég svo ekki hafa fleiri orð um þetta.