29.01.1970
Neðri deild: 46. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 422 í B-deild Alþingistíðinda. (340)
156. mál, Iðnþróunarsjóður
Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Mér er ljóst, að þar sem frv. er seint fram komið og ég hef lagt áherzlu á afgreiðslu þess, þá verð ég mjög að takmarka mál mitt og skal þess vegna alveg sneiða hjá öllum deilum eða hugsanlegum deilum um þetta mál. Skoðanir manna um það, hvort fulltrúar stjórnmálaflokka eða bankastjórar séu mannlegri eða réttlátari, um það skal ég ekki hafa nein orð eða hvort menn telja, að hér þurfi að halda sérstaka ræðu til þess að halda uppi sjálfsvirðingu sinni í þinginu, sem yrði rituð í þingtíðindin, án þess að nokkur fyrirvari sé gerður um það, þegar menn taka til máls um hvaða mál sem er. En ég var spurður sérstaklega að því og það var innt eftir því, að kannske þyrfti að gera betri skilgreiningu á því, hvað teldist iðnaður í þessu sambandi, sem undir þennan sjóð mundi heyra og það af fleiri en einum þingmanni. Það er auðvitað sjálfsagt að athuga það mál nánar, og ég fellst alveg á fulla nauðsyn þess. En í stórum dráttum skilst mér, að það mundi fyrst og fremst skilgreinast af því, hvaða atvinnurekstur hér á landi greiðir iðnlánasjóðsgjald. Um það hafa verið settar reglugerðir og varðandi fiskafurðir, þá hafa niðursuðuverksmiðjurnar allar greitt iðnlánasjóðsgjaldið og verið taldar til iðnaðar. Það hefur hins vegar verið ein verksmiðja, niðurlagningarverksmiðja, sem hefur greitt útflutningsgjald og ekki iðnlánasjóðsgjald. En með reglugerðinni um verkaskiptingu ráðherra á grundvelli laga um Stjórnarráð Íslands frá áramótum, þá er alveg skýrt kveðið á um þetta, að fiskniðursuða og niðurlagning tilheyri iðnaðinum, þannig að frá þessu sjónarmiði er þetta ljóst. Ég man eftir því, að þegar við vorum að semja reglugerð um iðnlánasjóðsgjaldið, þá voru nokkur matsatriði um það t.d., hvað í landbúnaði skyldi greiða iðnlánasjóðsgjald, vera talið iðnaður í þeim skilningi. Við reyndum að greiða fram úr því eftir okkar beztu vitund og með samkomulagi við aðila og mér er ekki kunnugt um, að neinar deilur eða efi hafi risið um það. En slík atriði þurfa sjálfsagt í framkvæmdinni að athugast nánar. Aftur er það rétt um frystiiðnaðinn, sem tekið hefur verið fram, að hann hefur notið sinna stofnlána á öðru sviði heldur en í iðnlánasjóði og það hefur beinlínis verið tekið fram af hálfu stjórnvalda, sem sérstaklega hafa verið um það spurð, að sá iðnaður, fiskiðnaður, sem svo er kallaður, gæti ekki notið lána úr þessum sjóði.
Ég vil aðeins taka það fram varðandi það, sem fram kom hjá hv. 3. þm. Norðurl. e., að það vantaði á, að einstök fyrirtæki gætu gert sér grein fyrir áhrifum EFTA–aðildar á rekstur þeirra, að þá var á s.l. ári gerð alveg sérstök gangskör að því, að hin einstöku fyrirtæki gætu gert sér grein fyrir áhrifum hugsanlegrar EFTA–aðildar á rekstur þeirra. Þá voru settar á laggirnar, eins og skýrt hefur verið frá reyndar hér í þinginu við önnur tækifæri, nefndir ýmissa greina í iðnaðinum, sem ýtarlegar viðræður voru hafðar við af þeim embættismönnum og sérfræðingum, sem fjölluðu um EFTA–málin og hugsanleg áhrif EFTA–aðildar. Það hefur komið fram í viðræðum fulltrúa iðnrekenda við ráðherra, – fjmrh., viðskrh., iðnrh., – að gaumgæfilega væri fylgzt með einstökum greinum í iðnaðinum, ef fram kæmi í framkvæmdinni, að áhrif aðildarinnar væru t.d. of þungbær og neikvæðari, en áður hefði verið gert ráð fyrir. Af þessum sökum verður því eitt af veigameiri atriðum í sambandi við framkvæmd iðnaðarmála á fyrstu árum EFTA–aðildar að gera sér grein fyrir áhrifunum. Að þessu er þegar hafinn undirbúningur. Þar með eru t.d. stórvægileg mál, eins og t.d. skattamálin, sem þurfa að breytast almennt vegna hugsanlegra áhrifa á iðnfyrirtæki í samkeppni við erlend iðnfyrirtæki. Einnig er verið að undirbúa og hugsunin að reyna að koma sem allra fyrst í framkvæmd sérstöku útflutningslánakerfi, sem við höfum ekki haft fram að þessu, í líkingu við það, sem aðrar þjóðir í EFTA og reyndar utan EFTA hafa til stuðnings sínum útflutningsiðnaði. Það er auðvitað gefið mál og hefur verið ljóst, að ýmis iðnfyrirtæki hér þurfa á tækniaðstoð að halda og aðstoð við rannsóknir á sínum hag og markaðskannanir og það er einmitt gert ráð fyrir því, að 10% af stofnframlagi Iðnþróunarsjóðsins megi verja m.a. til þess að styðja atriði eins og þetta. Á sama tíma hefur verið leitað eftir tækniaðstoð frá Sameinuðu þjóðunum, þeirra stofnun, OECD, sem skammstöfuð er á erlendu máli og hér eru núna staddir þrír fulltrúar frá stofnun þeirri, sem er mjög stór stofnun og hefur aðsetur sitt í Vín, til þess að ræða við fulltrúa iðnaðarins og iðnrekenda, iðnrn. og Rannsóknaráð ríkisins og aðrar skyldar stofnanir, rannsóknastofnanir iðnaðarins, um þá hugsanlegu tækniaðstoð, sem þessi stofnun gæti einmitt veitt á þessum tímamótum, sem við núna stöndum. Sömuleiðis höfum við athugað nokkuð, hvort við gætum notið að einhverju leyti aukinnar aðstoðar frá OECD, sem við á sínum tíma nutum töluverðrar tækniaðstoðar frá, en það mál er ekki eins langt komið. Þetta vildi ég aðeins nefna til að vekja athygli á því, að á slíkum sviðum verður auðvitað að hafa sérstaka gát, einmitt í sambandi við fyrstu þátttöku okkar í EFTA og á fyrstu tímunum og hvernig málin þróast, enda hefur iðnrn. þegar gert ráðstafanir til þess, að á þessu ári verði unnið að iðnþróunaráætlun fram til ársins 1980, – ég veit ekki, hvort ég má nota orðið áratug, hvort hann er byrjaður eða ekki byrjaður, – og það er m.a. út frá því sjónarmiði, að auðveldara verði að gera sér grein fyrir áhrifum á einstök fyrirtæki og hugsanlegum frávikum frá slíkum áætlunum, sem gerðar yrðu. Ef langtímaáætlun yrði gerð, 5–10 ára, þá mundi sennilega í framkvæmdinni hafður sá háttur á, eins og tíðkast mjög, að endurskoða hana frá ári til árs með smábreytingum, sem gera þarf.
Ég skal svo ekki hafa mín orð fleiri og endurtek það, sem ég sagði í upphafi, að í þeim mismunandi skoðunum eða deilum, sem upp hafa komið, mun ég ekki á þessu stigi málsins taka neinn þátt.