18.03.1970
Sameinað þing: 39. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 597 í D-deild Alþingistíðinda. (3447)

175. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Fjmrh. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Ég skal ekki lengja mikið þessar umr., aðeins þakka öllum þeim hv. þm., sem hafa tekið þátt í þeim, vegna þess að umr. leiða glöggt í ljós. að þess var einmitt mikil þörf að láta málið aftur koma til kasta Alþ. Enda þótt segja mætti, svo sem ég sagði í frumræðu minni, að ákvörðun um setningu löggjafar hefði þegar verið tekin með hinni fyrri þál., þá liggur það engu að síður ljóst fyrir eftir þessar umr., að eftir að nefndin lauk störfum og skýrslan liggur fyrir hafa vaknað ýmsar spurningar í hugum manna, sem gera það nauðsynlegt; að málið sé íhugað hér innan hins háa Alþ. á nýjan leik.

Hv.. 1. þm. Norðurl. v. vitnaði í mín orð um ágreiningsatriði í nefndinni og sagði, að ég hefði talið þau vera um meginatriði. Til þess að það valdi ekki misskilningi, vil ég taka fram, að. hafi ég komizt svo að orði, þá hefur það ekki verið nákvæmlega rétt hjá mér, vegna þess að ágreiningsatriðin eru að vísu veigamikil atriði, en þau snerta eingöngu framkvæmdahlið staðgreiðslukerfisins, en í rauninni ekki efnisatriði þess sjálfs, þannig að ég tel ekki, að þau skipti að því leyti meginmáli, þótt þau þurfi að íhuga, áður en gengið er frá þeim atriðum. Ég nefndi þetta aðeins sem dæmi um það, að segja mætti, að svo sem þál. var orðuð á sínum tíma, væri eðlilegt þegar af þessari ástæðu, að málið kæmi til kasta þingsins, af því að nefndin hefði ekki orðið sammála, en það væri þó ekki það, sem ylli því fyrst og fremst, að ég hefði valið þá leið að leggja þetta mál aftur fyrir Alþ., heldur hitt, sem umr. hafa snúizt um, að þessar upplýsingar, sem nú liggja fyrir og ýmsar eru nýjar af nálinni, ef svo má segja, eða leiða betur í ljós eðli málsins, hafa þegar vakið nýjar spurningar, sem glöggt hefur komið hér fram, að þm. telja nauðsynlegt að íhuga á nýjan leik.

Ég tel einnig nauðsynlegt að taka fram, til þess að það misskiljist ekki, að þó að ég orði þáltill. eins óg hér er gert, þ.e. upphaf hennar, að löggjöf skuli vera í meginefnum í samræmi við till. nefndar þeirrar, sem Alþ. kaus og nú hefur skilað áliti, þá ber ekki, svo sem ég áðan sagði, að líta á það sem yfirlýsingu mína um það, að þetta skuli gert, heldur taldi ég eðlilegt miðað við fyrri afstöðu Alþ., að till. væri orðuð á þessa leið, og ég hef vitanlega ekkert við það að athuga, ef Alþ, þykir rétt að breyta till. í það horf, sem hv. 4. þm. Austf. vék hér að, að ríkisstj. yrði falið að semja frv. um staðgreiðslukerfið án þess að marka ákveðna stefnu um það, hvort fylgt skyldi í meginefnum þessu nál., en á hinn veginn teldi ég það þó miklu varða og vera í rauninni nauðsynlegt, að það kæmi ljóst fram í álítsgerð Alþ. eða í nál., þegar þar að kemur, hvort það er skoðun Alþ., að það eigi að halda sér í meginefnum við það skattkerfi, sem við búum við, eða hvort eigi að leita eftir því að breyta skattkerfinu. Ég er alveg sammála hv. síðasta ræðumanni. sem var formaður umræddrar nefndar, að í rauninni var ekki mikill kostur fyrir nefndina annar en að byggja á óbreyttu kerfi í meginatriðum. Það eru mörg pólitísk vandamál því bundin að breyta skattheimtunni sem slíkri, þannig að í þessu fólst ekki nein ádeila á hv. nefnd fyrir það, að hún hefði ranglega að málinu unnið. En ég held hins vegar, að nál. leiði það glöggt í ljós, að þetta kerfi kemur ekki nema að takmörkuðu gagni, ef við ekki getum gert veigamiklar breytingar á ríkjandi skattkerfi sjálfir. Og þetta mundi ég leggja mikla áherzlu á, að kæmi skýrt fram í áliti nefndarinnar og þeirri ályktun, sem Alþ. endanlega gerir um málið.

Hitt er annað mál, sem hv. 1. þm. Norðurl. v. sagði, að það er áreiðanlega hægara sagt en gert að breyta skattkerfinu í meginefnum, en eins og ég sagði áðan, væri það þó vissulega mjög þýðingarmikið, ef menn gætu sameinazt um það varðandi beinu skattana að hafa skattstigana sem fæsta, helzt ekki í meginefnum nema einn á meginhluta skattanna. Það eru til dæmi þess annars staðar, þar sem um fleiri skatta er að ræða og staðgreiðslukerfi er, að þar eru skattstigar jafnan mjög fáir. Þá eru hinir hærri skattstigar ekki látnir taka til kerfisins nema að takmörkuðu leyti, og þá þarf ekki að reikna út eftir á nema skatta þeirra aðila.

Varðandi svo það, hvernig eigi að halda áfram vinnubrögðum í málinu og í tilefni af orðum hv. 1. þm. Norðurl. v. um það, að hann teldi meira um vert, að menn íhuguðu málið rækilega heldur en það endilega að hraða afgreiðslu þess, þá skal ég taka það fram, að ég hef að sjálfsögðu ekkert á móti þeirri málsmeðferð heldur. Ég tel mér aðeins skylt, vegna þess að þessi mál heyra efnislega undir mig, að láta ekki standa á því af hálfu rn., að unnið sé að framgangi þeirra með þeim hraða, sem kostur er á. En ég tel málið nú vera í höndum Alþ. og mun fyrir mitt leyti ekki gera neina sérstaka kröfu til þess, að það hraði afgreiðslu málsins umfram það, sem það telur nauðsynlegt. Ég vek aðeins athygli á því, að ef ætlunin væri að undirbúa málið fyrir næsta þing, þá liggur náttúrlega í augum uppi, að það þarf að fá lokaafgreiðslu frá Alþ. á þessum vetri. Telji þm. það ekki skipta öllu máli, heldur að þetta verði íhugað nánar í sumar og málið þá endanlega afgreitt í haust hér frá Alþ., þá er það atriði, sem að sjálfsögðu er á valdi þingsins sjálfs að ákveða.