17.04.1970
Neðri deild: 77. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 610 í D-deild Alþingistíðinda. (3483)

195. mál, símagjöld á Brúarlands- og Suðurnesjasvæði

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Ég ætla ekki að fara mörgum orðum um þessa till. Út af fyrir sig er ekkert óeðlilegt, þótt hv. þm. flytji till, í þessa átt og það er kannske eðlilegt, að um leið og þeir skrifa till., hafi þeir ekki sett sig inn í málið nægilega vel til þess að gera grein fyrir þeim vanda, sem því fylgir, að fylgja till. fram. Sjálfvirkur sími er nú kominn í flest kauptún á landinu, þ.e. 50 sjálfvirkar stöðvar komnar í gagnið. Og sjálfvirki síminn gefur tilefni til þess að endurskoða símataxta og svæði, sem geta verið samrýmanleg, og þess vegna er það, að þegar er hafin athugun á þessu máli. Það var í haust, sem sveitarstjórinn í Mosfellshreppi skrifaði póst- og símamálastjórninni og óskaði eftir því, að símataxtar frá Brúarlandsstöðinni yrðu athugaðir og samræmdir, eins og hann orðaði það. Þetta varð til þess, að farið var að athuga, hvort það væri sanngjarnt, sem sveitarstjórinn fór fram á, og ef það væri sanngjarnt, hvernig mætti uppfylla það. Það kom vitanlega strax í ljós, að til þess að uppfylla þessar óskir varð þegar að leggja í talsverðan kostnað í línulögn og viðbótarvélum. Þetta var vitanlega fært að gera á tiltölulega stuttum tíma, ef aðeins væri um þetta tiltekna svæði að ræða, Brúarlandssvæðið og Suðurnesin. En stjórn Landssímans hefur gert sér ljóst, að hún hefur jafnar skyldur við alla landsmenn og ef á að uppfylla kröfur vissra svæða, þá verður um leið að athuga, hvort sambærilegar kröfur geta ekki komið annars staðar frá, kröfur, sem eiga jafnan rétt á sér, og þess vegna er það, að ákveðið hefur verið að endurskoða símgjaldataxta um allt land og gera sér grein fyrir, hvar þörf er á að samræma þessa gjaldataxta. Þar eru til sambærileg svæði, eins og hv. síðasti ræðumaður var t.d. að minna á hér áðan. Hann taldi, að það væri sambærilegt við Brúarlandssvæðið.

Ég er síður en svo að mótmæla þessari till., að það verði framkvæmt, sem hún fer fram á. En ég vil aðeins vekja athygli á því, að það eru fleiri staðir á landinu, sem geta verið sambærilegir, sem eiga jafnan rétt á því að fá samræmingu og lagfæringu á þeim töxtum, sem nú eru greiddir. Og þess vegna er það, að póst- og símamálastjórnin hefur ákveðið að fá heildarmynd af landinu öllu og gera sér grein fyrir því, hvernig má samræma taxtana og hvernig má marka í sundur hin ýmsu svæði, sem eðli sínu samkv. eiga að vera á sama gjaldtaxta. Ég er sannfærður um, að þegar hv. þm. fara að hugsa um þetta, þá gera þeir sér grein fyrir því, að hér er um að ræða vandasamt verk, sem hlýtur að taka nokkurn tíma og er ekki hægt að taka eitt svæði út af fyrir sig nema gera sér grein fyrir því, hve mörg önnur svæði eiga sama rétt. Landssíminn er stofnun, sem allir landsmenn eiga jafna kröfu á og þess vegna verður að hafa samræmi og réttlæti í þeim ákvörðunum, sem teknar eru hjá þeirri stofnun. Og ég vænti þess, að Landssíminn sé ekki vændur um það að vilja sýna hlutdrægni. Á Suðurnesjum hafa taxtar verið samræmdir. Það var fyrir tæpum tveimur árum, þá var samræmdur símgjaldataxti á milli hinna ýmsu kauptúna á Suðurnesjum. Það eru ekki ýkjamörg ár síðan Hafnarfjörður var færður inn á Reykjavíkursvæðið, eins og orða mætti það. Áður gilti allt annað símagjald, þegar talað var til Hafnarfjarðar heldur en innanbæjar í Reykjavík. En þessu var breytt fyrir nokkrum árum. Og þannig er það með gjaldtaxta Landssímans. Þeir hljóta að þurfa stöðuga endurskoðun og samræmingu, og það er sérstaklega nú, vegna sjálfvirku stöðvanna, sem eru orðnar svo margar, að sérstök þörf er á þessari endurskoðun. Þessi endurskoðun er komin í gang. Ég vil ekkert um það segja, hvort henni verður hægt að ljúka í sumar eða á þessu ári, en ég vil fullyrða, að áhugi er fyrir því hjá póst- og símamálastofnuninni og verkfræðingum Landssímans að ljúka þessu yfirliti til þess að hægt sé að horfast í augu við, hvað það kostar að samræma gjaldskrárnar og sannfæra sig um það, að þær ákvarðanir, sem gerðar verða, séu réttlætinu samkvæmar.