17.04.1970
Neðri deild: 77. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 622 í D-deild Alþingistíðinda. (3499)
197. mál, rekstur Landssmiðjunnar
Forseti (MÁM):
Hv. 1. flm. gerði grein fyrir skoðun sinni hér utan dagskrár, og vísaði þar til 16. gr. þingskapa, þar sem stendur:
„Til fastanefnda getur hvor þd. vísað þeim málum, sem fyrir deildina eru lögð og þörf þykir. ...“
Það er því hv. þd. að segja til um það, hvort málinu skal vísað til n., en fram er komin till. um það, að málinu sé vísað til fjhn. deildarinnar og verður sú till. borin upp.