22.10.1969
Sameinað þing: 6. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 634 í D-deild Alþingistíðinda. (3512)

20. mál, fæðingardeild Landsspítalans

Fyrirspyrjandi (Magnús Kjartansson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. heilbr.- og félmrh. fyrir þau svör, sem hann hefur gefið við fsp., þau voru skýr svo langt sem þau náðu, og ég vil lýsa alveg sérstakri ánægju yfir því, að undirtektir hæstv. ráðh. eru allt aðrar nú en þær voru í marz í vor. Hæstv. ráðh. vildi draga það í efa, að rétt hefði verið hermt hjá mér, að afstaða hans hefði breytzt í meðförum málsins við lok síðasta þings, en um það liggja fyrir alveg glöggar staðreyndir. Þegar hæstv. ráðh. svaraði fsp. minni, sagði hann orðrétt, að hann teldi ekki, — og nú kemur þessi orðrétti kafli: „miklar horfur á því, að unnt verði að hefja nýjar framkvæmdir fyrr en 1972“. Síðar í þessum umr. komst hæstv. ráðh. þannig að orði, með leyfi hæstv. forseta: „en miðað við þau fjárráð, — og ég hef enga tilhneigingu til þess að láta málin líta betur út, þótt hér séu margir áheyrendur, — þá geri ég ekki ráð fyrir því, að það væri hægt af fjárhagsástæðum að hefja framkvæmdir fyrr en á árinu 1972.“

Ég tel það mikið fagnaðarefni, að þessi afstaða hæstv. ráðh. hefur breytzt og að hann telur rétt að hefja framkvæmdir tveimur árum fyrr en hann taldi gerlegt í marz í vor. Þetta er tvímælalaust árangur af þeirri baráttu, sem háð hefur verið í þágu þessa máls utan þings og innan. Mér kom það nokkuð á óvart, þegar ég sá fjárlagafrv., hvað sú upphæð, sem þar var tiltekin til þessa verkefnis, 10 millj. kr., var lág, en nú hefur hæstv. ráðh. gefið skýringu á því máli. Hann segist vera að gera ráðstafanir til þess, að til viðbótar þessari upphæð komi 20 millj. kr., sem fáist að láni annars vegar í Seðlabankanum og hins vegar í viðskiptabönkunum, og vissulega má segja, að ef tryggt verður, að fjármunir verði nægilegir til þess að hægt sé að hafa þann hraða á byggingarframkvæmdum, sem mestur verður, þá sé þeirri hlið málsins borgið. Hins vegar verð ég að draga nokkuð í efa, að það sé raunsætt, sem hæstv. ráðh. sagði, að unnt mundi vera að endurgreiða þessi lán með voninni um fjárveitingar, sem ekki þurfi að nota eftir nokkur ár, til þessara mála. Ég vil minna hæstv. ráðh. á það, sem hann veit að sjálfsögðu fullvel, að á öðru sviði heilbrigðismála er einnig um að ræða mjög alvarlegt ástand og það er í sambandi við geðlækningar. Ástandið er þannig nú, að þar eru langir biðlistar manna, sem þurfa að komast í sjúkrarúm, og þarna er um að ræða fólk, sem á í mjög miklum erfiðleikum. Ég veit dæmi um fólk, sem er það sjúkt, að hreinlega verður að vera yfir því að staðaldri, en kemst samt ekki á sjúkrahús. Á þessu sviði eru óhjákvæmilegar stórfelldar framkvæmdir, það er alveg ljóst, og ég held, að hæstv. ráðh, verði að reikna með þessum framkvæmdum einnig, þrátt fyrir þessi fyrirheit, sem gefin hafa verið um skjótar framkvæmdir í sambandi við fæðingardeildina og kvensjúkdómadeildina.

Eitt atriði er það, sem mér væri forvitni á að fá nánari skýringu á hjá hæstv. ráðh. Hann greindi frá því, hvernig hin nýja viðbygging væri hugsuð og hvað hún yrði stór í aðalatriðum að rúmmáli og flatarmáli og hvernig raðað yrði niður í þessa byggingu. En hvernig verður háttað geislalækningum í sambandi við hana? Nú er það alkunna, að kóbalttækinu var komið fyrir í algeru bráðabirgðahúsnæði og það hlýtur að vera ætlunin, að það tæki og önnur hliðstæð aðstaða verði sett í samband við kvensjúkdómadeildina nýju. Mér þætti fróðlegt að heyra, hvort þetta er ekki ætlun hæstv. ráðh. og hvort nokkur hætta er á því, að þær bráðabirgðaráðstafanir, sem gerðar voru, tefji fyrir endanlegri lausn á þeirri hlið málsins.

Ég vil svo að lokum enn ítreka það, að ég lýsi ánægju yfir því, hvað tekizt hefur að þoka þessu máli áleiðis, og ég tel það vera hæstv. heilbrmrh. til sóma, að hann hefur tekið tillit til áhuga og óska manna, bæði utan þings og innan í þessum málum.