29.10.1969
Sameinað þing: 8. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 646 í D-deild Alþingistíðinda. (3524)
39. mál, landgræðsla
Fyrirspyrjandi (Eysteinn Jónsson):
Herra forseti. Gróið land og lífið í sjónum umhverfis landið hafa frá fyrstu tíð verið undirstöður mannlífs á Íslandi. Þessa verður því að gæta sem sjáaldurs augna sinna. Fleira kemur að sjálfsögðu til í nútíma búskap, svo sem hagnýting orkulinda og hreint loft. Ómengað vatn og sérkennileg og fjölbreytileg fegurð landsins munu reynast sístækkandi þættir í þjóðarauði Íslendinga, ef skynsamlega verður á haldið og þessu dýrmæti ekki spillt fyrir andvaraleysi og handvömm. Þetta hygg ég heppilegt að rifja upp fyrir sér við sem flest góð tækifæri. Því geri ég það hér.
Vísindamenn okkar hafa komizt að raun um, að enn fýkur meira og blæs upp af landinu en grær að nýju og má því segja, að enn haldi landið áfram að fjúka undan fótum landsmanna. Nú vitum við þetta, og sérfræðingar okkar þekkja leiðir til þess að snúa vörn í stórsókn og þolir slíkt enga bið, því að sjálf undirstaðan er í húfi. Mikið hefur verið gert og mjög gott forustustarf unnið af frammámönnum okkar í þessum greinum, sem ekki er tóm að rekja hér á örfáum mínútum, og þeim hefur tekizt með stakri lagni og áhuga í samstarfi við áhugamenn að vekja áhugaöldu um landgræðsluna, sem ómetanlegt mun reynast, ef hyggilega og af framsýni er á málum haldið af öllum þeim, sem hér verða að eiga hlut að. Má í þessu sambandi minnast, hvernig áhugamenn í mörgum byggðarlögum landsins hafa nú sem sjálfboðaliðar hafizt myndarlega handa í þessu, bæði í byggð og óbyggðum og beitt í því skyni margs konar félagssamtökum.
Af öllu þessu vekur það þó mestan fögnuð, að æskufólkið tekur vaxandi ástfóstri við þetta verkefni með ungmennafélagshreyfinguna í fararbroddi, sem raunar alla tíð hefur haft ræktun landsins á oddinum. Veltur nú mjög á, að yfirvöld landsins, þing og stjórn, efli þetta starf og styðji fyrir sitt leyti sem mest má verða til hvatningar og örvunar. Er svo að sjá sem sú hlið málsins þurfi skoðunar við og því flyt ég þessa fyrirspurn. Til nánari skýringar á tilefni hennar vil ég, með leyfi hæstv. forseta, lesa nokkrar línur úr grein í síðasta hefti Skinfaxa, málgagni ungmennafélaganna, þar sem gerð er grein fyrir landgræðslustarfi þess félagsskapar, oft í samstarfi við önnur félög og áhugafólk, sem nánar greinir í ritinu. Í þessari grg. segir svo í Skinfaxa, með leyfi hæstv. forseta:
„Hér er um að ræða aukningu landgræðslustarfsins miðað við s.l. ár. Þó hefði þetta sjálfboðaliðsstarf ungmennafélaganna getað orðið a.m.k. tvöfalt meira, ef fé hefði verið fyrir hendi til kaupa á fræi og áburði. Landgræðsla ríkisins hefur takmarkað fé til kaupa á þessum hlutum og framboð ungmennafélaganna til landgræðslustarfsins er miklu meira en tilsvarandi fjárveiting ríkisvaldsins til efniskaupa“.
Ég tel nú alveg víst, að Alþ. vilji mikið til vinna, að öll sjálfboðavinna, sem hugsanlegt er að fá til þess að græða upp örfoka land, komi að fullum notum. Alþ. þarf á hinn bóginn að vita, hvað til þarf, og því flyt ég þessa fsp., sem svo hljóðar, með leyfi hæstv. forseta:
„Hvað telur ráðh. (landbrh.), að hækka þyrfti fjárveitinguna til landgræðslu, miðað við reynsluna s.l. sumar, til þess að þeir, sem sá vilja í sjálfboðavinnu í örfoka land, geti átt kost á að fá ókeypis fræ og áburð?“