12.11.1969
Sameinað þing: 12. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 660 í D-deild Alþingistíðinda. (3533)

52. mál, lán og styrkveitingar atvinnumálanefndar ríkisins

Fyrirspyrjandi (Þórarinn Þórarinsson):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. forsrh. fyrir mjög greinargóð svör. Ég verð að segja það, að sú skýrsla, sem hefur verið lögð hér á borðið hjá okkur þm, um úthlutun lána og styrkja á vegum atvinnumálanefndar ríkisins, er til fyrirmyndar og ætti að vera öðrum sjóðum til fyrirmyndar, en mér finnst þar aðeins á vanta, — en úr því verður vafalaust hægt að bæta síðar, — að gefa ætti út skýrslu, sem alveg væri sundurliðuð í lán til einstaklinga og einstakra fyrirtækja, þannig að menn gætu fengið sem greinilegasta mynd af því, hvort hér hefði ekki allt farið fram með eðlilegum hætti. Ég vil aðeins minna á í þessu sambandi, að ég og nokkrir flokksmenn mínir höfum lagt fram frv. um Iðnlánasjóð, þar sem lagt er til, að sá háttur verði tekinn upp með starfsemi þess sjóðs, að hann birti árlega sundurliðaðar skýrslur um lánveitingar sínar og vænti ég, að það fái góðar undirtektir og þetta verði yfirleitt tekið upp í sambandi við alla opinbera sjóði, svo að hægt sé að fylgjast fullkomlega með því, hvernig þeirra starfsháttum er fyrir komið, og hvort sú úthlutun, sem þeir hafa með höndum, sé ekki fullkomlega sanngjörn og eðlileg. Að sjálfsögðu gefst ekki tækifæri til þess hér að ræða um störf atvinnumálanefndar ríkisins, sem skýrsla forsrh. gefur þó að ýmsu leyti tilefni til. En það sem ég vildi leggja sérstaka áherzlu á að þessu sinni, er það, að mér virðist mega lesa það út úr þessari skýrslu, að hlutur Reykjavíkur hafi verið mjög fyrir borð borinn í sambandi við úthlutun á styrkjum og fjárlánum þeirra þriggja sjóða, sem hér um ræðir. Samkvæmt þeirri skýrslu, sem hér liggur fyrir, þá hefur Reykjavík fengið í sinn hlut aðeins 14.3% af því fé, sem atvinnumálanefnd ríkisins, Atvinnujöfnunarsjóður og Fiskveiðisjóður hafa ráðstafað á þessu tímabili, 14.3%, en hins vegar sýna þessar skýrslur einnig, að atvinnuleysi hefur verið tiltölulega mest í Reykjavík. Þann 30. júní s.l. eru t.d. 44.7% allra atvinnuleysingja skráðir í Reykjavík, og nú fyrir nokkrum dögum eða 31. okt. 1969 eru 33.8% allra skráðra atvinnulausra hér í Reykjavík. Mér sýnist á þessum tölum, að framlag, sem Reykjavík hefði átt að fá frá umræddum sjóðum, hefði átt að vera miklu hærra en raun ber vitni, og þetta mál þarf alveg sérstaklega að taka til athugunar í sambandi við framtíðarlánveitingar og styrkveitingar úr þessum sjóðum. Ég vil alveg sérstaklega vekja athygli á því, að á þessum tíma, sem skýrslan nær til, veitir Atvinnujöfnunarsjóður aðeins 0.8% af lánsfé því, sem hann ráðstafar, til Reykjavíkur. Þetta er augljóslega allt of lágt, þegar tillit er til þess tekið, að atvinnuleysi hefur verið mest hér í Reykjavík og að sjálfsögðu hefði Atvinnujöfnunarsjóður átt að taka tillit til þess. Vegna þess að ræðutími er hér takmarkaður við fsp., þá skal ég ekki ræða frekar um þetta efni, aðeins leggja áherzlu á það aftur, að Reykjavík fái bætt úr því misrétti, sem hún hefur auðsjáanlega orðið fyrir, en að lokum vildi ég beina þeirri fsp. til hæstv. forsrh., hvort málefni byggingariðnaðarins hafi ekki borið neitt á góma í atvinnumálanefndinni að undanförnu, en það er augljóst, að það atvinnuleysi, sem er í landinu og sérstaklega hér í Reykjavík, stafar af því, hve mikill samdráttur hefur orðið hjá byggingariðnaðinum. Það skal viðurkennt, að gerðar hafa verið nokkrar ráðstafanir, sem atvinnumálanefnd hefur sjálf átt þátt í, til að bæta aðstöðu byggingariðnaðarins, en þær ráðstafanir hafa náð allt of skammt og þess vegna þurfa að koma hér til miklu meiri og viðtækari aðgerðir. Þess vegna vildi ég að lokum beina þeirri fsp. til hæstv. ráðh., hvort þetta mál hafi ekki verið sérstaklega rætt í atvinnumálanefnd og hvort ekki megi vænta forgöngu hennar um það, að frekari ráðstafanir verði gerðar til þess að bæta aðstöðu byggingariðnaðarins.