12.11.1969
Sameinað þing: 12. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 675 í D-deild Alþingistíðinda. (3544)

52. mál, lán og styrkveitingar atvinnumálanefndar ríkisins

Einar Ágústsson:

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að lengja þessar umr. neitt. Það er eðlilegt, að sitt sýnist hverjum, þegar takmörkuðu og of litlu fjármagni er úthlutað. Þegar of lítið er til ráðstöfunar, þá verða deilur um það, hver fær hvað. En enda þótt ég telji nú, að tæpast sé líklegt, að nokkur maður hafi misskilið mig áðan nema hv. 4. þm. Reykn., en hann vildi telja, að ég hefði amazt við því, að lán til opinberra framkvæmda í Reykjavík hefðu verið veitt, þá tel ég rétt að taka fram, a.m.k. hans vegna og kannske þá einhverra annarra, ef fleiri væru, sem ég efast nú reyndar um, að ég var alls ekki að amast við því. Það er öðru nær. Og t.d. ráðstöfun á hluta af þessu fjármagni, 26 millj. kr., sem veittar voru Hitaveitu Reykjavíkur til nýlagningar hitaveitu hér, var ákveðin samkv. tilmælum atvinnumálanefndar Reykjavíkur og samþ. af öllum borgarfulltrúum í Reykjavík sem sú framkvæmd, sem einna mest mundi auka atvinnu af þeim, sem þá voru til taks. En það, sem ég vakti athygli á hér og hef áhyggjur af og hef raunar gert áður, er það, að mér virðist, að það sé stefna þeirra, sem ráða, að leysa úr atvinnuleysinu fyrst og fremst með því að auka opinberar framkvæmdir. Það kann að vera, að einkaframtaksmaður eins og sá hv. þm., sem ég var að ávarpa, hafi engar áhyggjur af þessu, honum finnist vel fyrir öllu séð með því, að opinberar framkvæmdir veiti fólkinu atvinnu. En ég hef þessar áhyggjur og hef haft nokkuð lengi, hvað snertir okkur hér í Reykjavík, áhyggjur af því, að undirstöðuatvinnuvegirnir eru að dragast saman hér. Það er sáralítil útgerð úr Reykjavík. Togurunum hefur fækkað hér niður í mjög fá skip. Það er sáralítill bátaútvegur úr Reykjavík. Fiskvinnslustöðvarnar eru margar lokaðar. Þetta er það, sem ég hef áhyggjur af, og þetta er það, sem mér fannst, að skýrsla sú, sem hér hefur verið lögð fram, sýni enn fremur, að ekki sé ástæðulaust, þar sem ég benti á það, að af 99 millj. kr. umsóknum til atvinnurekstrar einstaklinga hefði verið lánað 2.5 millj. kr. Ég gat þess um leið, að það hefði verið veitt opinber aðstoð til opinberra framkvæmda, 50 millj., ekki til þess að vanþakka það, heldur til að sýna, hvert stefndi.