02.02.1970
Efri deild: 46. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 430 í B-deild Alþingistíðinda. (361)

156. mál, Iðnþróunarsjóður

Ólafur Jóhannesson:

Herra forseti. Það er aðeins eitt atriði, eitt ákvæði í þessu frv., sem ég þarf að gera örlitlar aths. við og það er raunar það ákvæði, sem hæstv. iðnrh. drap á, að nokkur ágreiningur hefði orðið um í Nd., þ.e.a.s. skipun hinnar svokölluðu framkvæmdastjórnar sjóðsins.

Ég vil í fyrsta lagi segja það, að ég hefði fyrir mitt leyti talið æskilegt, að þannig hefði verið hægt að koma þessum málum fyrir, að það hefði ekki þurft að setja á fót neina nýja stjórn eða n. til þess að annast þau málefni, sem framkvæmdastjórninni er ætlað að fara með. Við höfum hér ærið margar n. og sjóðsstjórnir, því að sá háttur hefur verið hafður á, að það hefur verið sett upp sérstök n. eða sérstök stjórn fyrir hvern fjárfestingarsjóð eða fyrirgreiðslusjóð og afleiðingin af því er orðin sú, sem ég hef stundum leyft mér að gagnrýna, að menn þurfa að leita á býsna marga staði, þegar þeir þurfa á fyrirgreiðslu að halda. Ég tel, að það væri fólgin í því mikil vinnuhagræðing, ef það væri hægt að sameina þetta eitthvað og ég hefði talið rétt að stíga slíkt spor í sambandi við þetta mál. Ég hefði vel getað hugsað mér það, að t.d. stjórn Framkvæmdasjóðs eða kannske stjórn Atvinnujöfnunarsjóðs hefði getað farið með það hlutverk, sem þessari framkvæmdastjórn er ætlað og þá hefði því samfara verið nokkur sparnaður, að vísu ekkert meginatriði, en að mínu viti rétt stefna með vinnuhagræðingu í þessu efni að dreifa þessu ekki eins og gert hefur verið, heldur stefna nokkuð að því að sameina þetta.

Þetta hefði ég kosið helzt, en að því frágengnu þætti mér bezt fara á því, að framkvæmdastjórnin væri þingkjörin n., svo sem reyndar kom fram till. um í hv. Nd. En samkvæmt þessu frv. er gert ráð fyrir því, að tilteknir bankar og sjóðir nefni menn í framkvæmdastjórnina. Það er að vísu ekki alveg óþekkt fyrirbrigði. Það má segja, að það sé t.d. í samræmi við það, sem tíðkast í sambandi við Fiskveiðasjóð, en annars held ég, að það sé ótvírætt aðalreglan um fjárfestingar– og framkvæmdasjóði, að það sé fyrir þeim þingkjörin n. Í Fiskveiðasjóði hefur það orðið þannig, að þar sitja bankastjórar úr bönkum þeim, sem eiga að tilnefna í stjórn Fiskveiðasjóðs. Ég man ekki, hvort það er alveg samkvæmt lögum, að það skuli vera bankastjórar, það getur vel verið, ég man það ekki. En hvað um það, þá sýnist mér, að það muni nokkrar líkur benda til þess, að það verði sá háttur hafður á í þessu sambandi líka, að það verði bankastjórarnir sjálfir, sem verði valdir í þessa stjórn. Nú eru náttúrlega bankastjórarnir ekki lakari menn en aðrir, síður en svo. En bankastjórar eru störfum hlaðnir menn, og það er gert ráð fyrir því í lögum um þessa banka, bæði viðskiptabankana og Seðlabankann, að bankastjórar sinni ekki öðrum störfum, nema þá að leyfi yfirmanna þeirra komi til. Og það álít ég út af fyrir sig eðlilegt ákvæði. Nú hefur ekki verið farið fullkomlega eftir þessu í framkvæmdinni, þannig að bankastjórar hafa tekið að sér, sjálfsagt með leyfi hlutaðeigandi yfirmanna, nokkur aukastörf. Ég leyfi mér að draga í efa, að það sé eiginlega fært að leggja á þá öllu meiri störf en þeir hafa, að þeir muni hafa starfsþrek til þess að inna meiri störf af hendi. Þess vegna er ég á móti því, að ofhlaða bankastjórana svo störfum og reyndar starfsmenn almennt. Ég held þess vegna, að þetta sé ekki heppilegt fyrirkomulag, sem þarna er gert ráð fyrir, heldur væri æskilegra, að þessi framkvæmdastjórn væri þingkjörin. Ég skal að vísu játa, að það eru viss rök, sem hæstv. iðnrh. gat um, að það sé nauðsynleg viss yfirsýn yfir allar lánveitingar og það ætti að réttlæta það, að bankastjórarnir eða fulltrúar bankakerfisins ættu þarna hlut að. Ég viðurkenni, að það eru viss rök, sem þarna er um að ræða. En þau rök hafa samt ekki leitt til þess, að þeirri reglu hafi almennt verið fylgt. Eins og ég sagði áðan, þá held ég, að það sé miklu tíðara, að það séu sérstakar nefndir, sérstakar stjórnir, sem fara með lánveitingar eða úthlutanir úr hinum ýmsu einstöku fjárfestingarsjóðum. Og þó að þetta geti haft sína kosti að vissu marki, að hafa þetta í höndum bankanna, eins og hæstv. iðnrh. drap á, þá held ég, að það geti líka haft sína ókosti.

Það er gert ráð fyrir því í þessum samningi, að lán megi veita til fyrirtækja í einkaeign eða í eigu opinberra aðila og til fjárfestingarlánasjóða. Ég held, að það sé ekki heppilegt, eins og útkoman verður, ef þetta verður samþ. svona, að það séu fyrirsvarsmenn í einstökum fjárfestingarsjóðum, sem fara þarna að nokkru leyti a.m.k. með ákvörðunarvald.

Þetta vildi ég aðeins benda á, en ætla ekkert að vera að fjölyrða um það frekar. En ég vænti þess, að hv. iðnn., sem fær þetta frv. til meðferðar, taki þessar aths. eða ábendingar mínar til íhugunar. Að vísu er það rétt, sem hæstv. iðnrh. sagði, að það er ákvæði í samningnum á þessa lund, að framkvæmdastjórnin skuli skipuð fulltrúum íslenzka bankakerfisins. En það er gefið mál, að fyrir hina samningsaðilana, Norðurlandaþjóðirnar, getur þetta ekki skipt máli. Ég get ekki skilið það, að þetta sé nokkurt atriði fyrir þær. Þetta hlýtur að vera komið inn fyrir ósk frá íslenzku ríkisstj. Ég get ekki séð, að þetta sé nokkurt atriði fyrir Norðurlandaþjóðirnar og ég álít þess vegna, að þær mundu hiklaust fallast á breytingu á þessu ákvæði, ef á þyrfti að halda, þannig að ég held, að menn ættu ekki að setja það of mikið fyrir sig, þó að þetta hafi komizt þarna inn í samninginn. Það má reyndar kannske um það deila, hvort það sé eðlilegt, að ákvæði um þessa ráðsmennsku á sjóðnum hér innanlands sé í samningnum. Það virðist alveg hafa verið nægilegt að hafa þá ákvörðun um stjórn, sem þar er.

Annars finnst mér, en ég ætla ekki að fara að gera neitt sérstakt veður út af því, að það sé nokkuð óljós verkaskipting á milli þessarar svokölluðu stjórnar og svo aftur þessarar framkvæmdastjórnar og virðist mér, að stjórnin geti, ef hún vill það, haft tögl og haldir, en geti svo framselt framkvæmdastjórninni það af sínu valdi, sem hún kýs. En hvað sem því líður, þá tel ég, að þetta ákvæði geti ekki verið atriði, sem okkar samningsaðilar leggi nokkra áherzlu á, og þess vegna mundi vera auðvelt að fá því breytt, ef mönnum sýndist það.

Svo vil ég segja það um þennan Iðnþróunarsjóð, að ég vænti góðs af honum. Ég tel það lofsvert af Norðurlandaþjóðunum að hafa veitt okkur þá aðstoð, sem um er að tefla. Ég fyrir mitt leyti vil ekki á nokkurn hátt vanmeta þá aðstoð, sem þar kemur fram og það er siður en svo, að ég telji okkur það nokkra minnkun að þiggja aðstoð frá þessum frændþjóðum okkar. Ég efa það ekki, að sú aðstoð er af þeirra hálfu veitt af góðum hug. Og þó að það megi segja að vísu, að þessi sjóður hrökkvi skammt til þess að koma hér á allsherjar iðnvæðingu, þá er ég fyrir mitt leyti ekki í vafa um það, að hann getur gert verulegt gagn og þess vegna fagna ég þessari sjóðsstofnun og álít, að við þurfum að halda þannig á þeim málum, að hann verði okkar iðnaði að sem mestu gagni. Hitt er svo annað mál, sem ég þarf ekki að undirstrika hér, en kom fram í sambandi við EFTA–umr., að ég hefði raunar talið, að þennan sjóð hefði átt að stofna, áður en við gerðumst aðilar að EFTA og áhrifa slíks sjóðs hefði þurft að vera farið að gæta verulega í framkvæmd, áður en við gerðumst aðilar að EFTA, en um það atriði þýðir ekki að tala, úr því sem komið er.