12.11.1969
Sameinað þing: 12. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 710 í D-deild Alþingistíðinda. (3612)

946. mál, ráðstafanir í geðverndarmálum

Fyrirspyrjandi (Magnús Kjartansson):

Herra forseti. Ég ber hér fram á þskj. 76 svo hljóðandi fsp. til hæstv. heilbrmrh.:

„Hvað hyggst ríkisstj. gera til þess að auka sjúkrarými handa geðsjúklingum og tryggja þeim bætta aðstöðu til endurhæfingar?“

Þessi fsp. er ekki borin fram að ástæðulausu. Geðsjúkdómar eru langalgengustu sjúkdómar hér á landi og raunar hvarvetna um heim. Hins vegar fer því mjög fjarri, að viðbúnaður okkar til þess að annast geðsjúklinga og lækna þá, eftir því sem geta hrekkur til, sé í samræmi við þörfina. Sérfræðingar telja, að þörfin á sjúkrarými vegna geðsjúklinga sé nú 600 rúm. Á aðalspítalanum, sem annast geðsjúklinga, Kleppi, er hins vegar aðeins gert ráð fyrir 200 rúmum og á Borgarspítalanum í Reykjavík eru 32 rúm. Eins og þessar tölur sýna, er þannig aðeins eðlilegt sjúkrarými fyrir rúmlega þriðja hvern sjúkling. Úr þessu neyðarástandi hefur verið reynt að bæta með því að troða inn í sjúkrahúsin mun fleira fólki en ráð var fyrir gert í upphafi. Á Kleppi eru nú t.d. 290 sjúklingar, en það er næstum því 50% meira en ráð var fyrir gert í öndverðu, og veldur það að sjálfsögðu þrengslum, sem eru jafnerfið fyrir sjúklingana og starfsfólkið. Auk þess hefur verið reynt að vista geðsjúklinga þar sem unnt var að koma þeim fyrir, á Vífilsstöðum, í hjúkrunarheimilinu í Stykkishólmi, að Arnarholti og Ási í Hveragerði. En þrátt fyrir þetta verða 200–300 sjúklingar út undan og verða að dveljast í heimahúsum. Raunverulega vantar sjúkrarými fyrir nær 400 sjúklinga. Stundum er um að ræða fólk, sem er svo þungt haldið, að það þarf á stöðugri gæzlu að halda, en samt líða mánuðir, áður en sjúkrahúsrúm fæst. Einnig hafa læknar neyðzt til þess að grípa til þess að útskrifa sjúklinga mun fyrr en æskilegt væri til þess að koma öðrum að, sem verr eru haldnir, og leiðir það oft til þess, að sjúkdómurinn tekur sig upp aftur. Hér er því um að ræða algert neyðarástand, ástand, sem hvílir mjög þungt á sjúkum mönnum og heilbrigðum aðstandendum þeirra.

Vandkvæðin á Kleppi aukast enn við það, að daggjöld þar eru aðeins reiknuð 650 kr. fyrir sjúkling, en þau eru t.d. reiknuð 1800 kr. á Landsspítalanum eða næstum því þrefalt hærri. Þetta leiðir m.a. til þess, að á Kleppsspítala er ekki hægt að hafa allt það sérlærða starfsfólk, sem þyrfti, og bitnar það mjög á almennum rekstri hans. Er talið, að ef vel ætti að vera, þyrftu að vera 10 geðlæknar í viðbót á Kleppsspítala og þar við bætist skortur á öðrum sérmenntuðum starfskröftum, þjálfuðu hjúkrunarliði, félagsráðgjöfum, sálfræðingum o.s.frv.

Ástandið er ekki síður alvarlegt að því er varðar endurhæfingu fyrir sjúklinga, sem eru á batavegi. Þrjú slík vistmannahús eru nú á Reykjalundi og hefur þeim fyrst og fremst verið komið upp fyrir frumkvæði og fjársöfnun Geðverndarfélagsins, en Reykjalundur hefur tekið að sér reksturinn. Í þessum þremur húsum er aðeins rúm fyrir 12 sjúklinga, en um 20 í viðbót dveljast í öðrum vistarverum á Reykjalundi. En þörf er talin á endurhæfingaraðstöðu fyrir um 150 sjúklinga. Þetta rými þyrfti þannig að fimmfaldast, ef vel ætti að vera. Einnig á þessum vistheimilum er svo ástatt, að daggjöldin eru óeðlilega lág, aðeins 500 kr., en þyrftu að vera tvöfalt hærri. Bitnar það auðvitað á þeirri þjónustu, sem unnt er að veita, og leiðir til þess, að nýting stofnunarinnar verður ekki nægilega góð.

Við höfum fyrr á þessu ári fjallað hér á hinu háa Alþ. um ástandið á fæðingar- og kvensjúkdómadeild Landsspítalans. Þær umr. hafa leitt til þess, að tekizt hefur um það ánægjuleg samstaða milli hæstv. ríkisstj., Alþ. og áhugafólks utan þings að ráðast í stórframkvæmdir og flýta þeim eins og unnt er. Staðreyndir sanna, að mikil þörf væri að taka geðverndarmálin svipuðum tökum. Þess vegna er fsp. mín flutt, svo að skýr vitneskja fáist um fyrirætlanir hæstv. ríkisstj. á þessu sviði og síðan sé hægt að leggja á ráðin sameiginlega á grundvelli þeirrar vitneskju.