12.11.1969
Sameinað þing: 12. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 715 í D-deild Alþingistíðinda. (3615)
946. mál, ráðstafanir í geðverndarmálum
Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Varðandi tekjuöflun til Geðverndarfélagsins, sem síðasti ræðumaður taldi að hefði enga sérstaka tekjuöflun, þá vil ég aðeins geta þess, að félagið leitaði eftir því við ríkisstj. að fá fastan tekjustofn í svipuðum mæli eins og ýmis önnur félög, sem vinna annaðhvort að heilbrigðismálum eða mannúðarmálum, hafa fengið. Ríkisstj. fyrir sitt leyti var reiðubúin til þess að láta þeim í té þann tekjustofn, sem þeir leituðu þá eftir og var í tengslum við auglýsingar á eldspýtnabréf, en hins vegar hefur raunin orðið sú, að þetta hefur orðið þeim að litlu eða engu gagni, sem talizt getur. En eftir þessu leituðu þeir, og fengu tilstyrk ríkisstj. eða samþykki hennar fyrir því að reyna að afla sér slíks tekjustofns. Eins og kunnugt er, hafa mörg félögin tappagjald eða hluta af tappagjaldi, sem svo er kallað, einhvern hluta af framleiðslugjaldi á sælgæti o.s.frv. Annars hefur það oft verið til umr. innan ríkisstj., að það væri kominn tími til að taka þau mál til heildarendurskoðunar, þessi sérstöku gjöld til hinna og þessara. Það er nokkuð undir hælinn lagt og sennilega nokkur mismunun í því, hvernig menn njóta þeirra. Nær væri að reyna heldur að efna til sameiginlegrar fjársöfnunar, með einu eða öðru móti, í sameiginlegan sjóð, sem lyti sérstakri yfirstjórn og reyndi að láta þá menn njóta nokkurs jafnréttis, sem að þessum málum vinna. En á þessu sviði hafa margir áhugasamir einstaklingar og félög lagt feikilega mikið af mörkum, og það hefur verið, held ég, sameiginleg skoðun okkar í stjórninni, að það bæri að veita þessum félögum verulegan stuðning og taka í framrétta hönd áhugamannanna fremur en að ætlast til þess eða reyna það, sem yrði sjálfsagt erfitt, að taka á þeim verkefnum eingöngu af opinberri hálfu.
Það er misskilningur, sem hv. 6. þm. Reykv. sagði, að ég hefði sagt í mínu svari áðan, að það þyrfti að bíða eftir skipulagningu landsspítalalóðarinnar. Ég vék ekkert að því. Ég sagði, að verið væri að ganga frá þeirri skipulagningu. Hún mun koma fyrir þingið í sérstöku formi innan fárra daga og þess vegna vildi ég ekki fara að ræða hana neitt frekar. En það er efnislega orðin samstaða milli fyrirsvarsmanna Reykjavíkurborgar og ríkisins um skipulag landsspítalalóðarinnar, sem gerir aðstöðuna hér allt aðra, því að þá verður lóðarrými fyrir byggingar fyrir geðsjúkdóma og aðrar heilbrigðisstofnanir um ófyrirsjáanlegan tíma á þeirri nýju landsspítalalóð, sem þá verður um að ræða. Ég vildi ekki eyða tíma hér í fsp.- tímanum til þess að ræða um þetta, af því að það kemur í sérstöku formi fyrir Alþ. að heimila undirskrift samninga fyrir hönd ríkisins í sambandi við makaskipti á lóðum og öðru, sem er í tengslum við þessa samningagerð.
Það er náttúrlega mjög ánægjulegt, að hv. þm. er hér sí og æ að bjóða fram sína aðstoð og samvinnu við að leysa hin mestu vandamál í þjóðfélaginu og er hér sí og æ að hæla sér af því, að það sé honum að þakka og hans miklu aðgerðum hér á Alþ. — (Gripið fram í.) Það fólst alveg nákvæmlega í orðum hv. þm., og þetta er ekki í fyrsta skipti, sem hann er að gorta af aðgerðum sínum í þessu máli. Það er ágætt, að menn bjóða fram svona ríkan vilja og eru svo mikillátir af getu sinni til þess að koma málum í framkvæmd, og ég skal ekkert vera að amast við því.
En því verða menn auðvitað að gera sér grein fyrir, — og þess vegna segi ég það, að ekki á að þurfa að standa á neinu skipulagi þarna, — að þessi mál eru ein af þeim erfiðustu fjárhagslega fyrir ríkið. Ríkissjóður hefur lagt miklu meira til þessara mála en nokkru sinni áður á undanförnum árum, svo að mér sé kunnugt, ef þær fjárfúlgur, sem eru lagðar til þessara mála, eru umreiknaðar í sambærilegu verðlagi, sem gefur aðeins sannan og réttan samanburð, — ég er ekki að tala þar um framlög í krónutali. Það hefur verið haldið áfram þessum miklu framlögum af hálfu ríkisins, sem eru meira en tvöfalt meiri með sambærilegu verðlagi á undanförnum 5–6 árum en ég veit nokkru sinni áður dæmi um á svipuðu tímabili, þrátt fyrir það að við höfum orðið fyrir miklum áföllum efnahagslega, eins og kunnugt er, og það hefur gert aðstöðuna erfiðari. Ákveðið var að ráðast í byggingu fæðingardeildarinnar og kvensjúkdómadeildarinnar á undan geðsjúkdómadeildinni á landsspítalalóðinni, en ég hef sagt það margsinnis áður, að heilbrigðisstjórnin hafði ályktað, áður en þau mál komu til umr. hér á Alþ. í fyrra, að þetta tvennt ætti að sitja fyrir af nýjum byggingum, eftir að því er lokið, sem nú er verið að byggja. Það er augljóst, að þegar ákveðið var að hefja byggingu á næsta vori á fæðingar- og kvensjúkdómadeildinni, þá hlaut það óhjákvæmilega að hafa nokkuð veruleg áhrif á byggingartíma nýrrar geðsjúkdómadeildar. Það er auðvitað fjöldi manna, það þarf ekki að fara neitt leynt, og fjöldi lækna, sem hélt því fram, að miklu meiri þörf væri á því, að geðsjúkdómadeildin kæmist í notkun á undan fæðingar- og kvensjúkdómadeildinni. Þetta gat vel verið álitamál, og við höfðum ekki fyrir okkar leyti úr þessu skorið. En mér var alltaf ljóst, að hér gat verið um mikið álitamál að ræða, að hefja byggingu kvensjúkdómadeildarinnar á næsta vori. Nú hefur það verið gert fjárhagslega mögulegt með því að veita nokkurt fé til þess á fjárl., en jafnframt með því að afla lánsfjár til bráðabirgða, þannig að tiltækar væru á fjárlögum 1970 10 millj. og 20 millj. af lánsfé til þess að hefja þessar framkvæmdir.
Ég er alveg sammála hv. þm. um nauðsyn aðgerða á þessu sviði, nauðsyn þess að fjölga sjúkrarúmum og reyndar að efla margháttaða aðra starfsemi, en því miður verð ég að segja það, og það vita hv. þm. alveg eins og ég, að það er auðvitað víðar en á þessu sviði og einnig víðar en í sambandi við kvensjúkdóma- og fæðingardeild, sem vöntun er fyrir sjúkrarúm. Það fer nokkuð eftir því, hvaða kröfur menn gera, hvað menn telja mikla nauðsyn á hverjum tíma, og nauðsynin verður auðvitað líka að metast af getunni til að koma þessum málum í framkvæmd. En þegar hafðar eru í huga þær byggingarframkvæmdir, sem staðið hafa yfir á landsspítalalóðinni og við Borgarsjúkrahúsið í Reykjavík, þar sem ríkið hefur borgað 60% kostnaðarins á undanförnum árum, við spítala á Húsavík, við spítala í Vestmannaeyjum, við spítalabyggingu á Akranesi, og með því að ljúka nýlega nýjum spítölum, eins og á Sauðárkróki, sem ekki eru til þess að gera mjög ungir, og miðað við önnur áform, sem fram undan eru, þá endurtek ég það, sem ég sagði áðan; að hér er auðvitað um að ræða eitt af meginviðfangsefnum og erfiðari viðfangsefnum, sem Alþ. og ríkisstj. á við að glíma frá fjárhagslegu sjónarmiði. Ég held, að eitt af því fyrsta, sem ég sagði, þegar ég tók við embætti heilbrmrh. og ræddi um heilbrigðismálin, hafi verið, að ef menn gerðu kröfu til þess, að meira væri að gert heldur en áætlanir, sem í það og það skiptið lægju fyrir hjá ríkisstj., gerðu ráð fyrir, þá yrðu menn auðvitað að vera reiðubúnir til þess að leggja fram meira fé af opinberri hálfu, úr ríkissjóði, meira fé en ella, og það yrði þá naumast gert með öðrum hætti en þeim, að menn yrðu að láta annað sitja á hakanum, vegi, brýr, skóla o.s.frv. Þetta er hlutur, sem fjárveitingavaldið, fjvn , verður að gera upp við sig.