26.11.1969
Sameinað þing: 16. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 723 í D-deild Alþingistíðinda. (3624)

905. mál, knattspyrnugetraunir

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ég tel rétt, að það komi hér fram, að menntmrn. hefur engin kvörtun borizt og engin vitneskja borizt um óánægju í sambandi við þá getraunastarfsemi, sem ég var að gefa hinu háa Alþ. upplýsingar um. Það er í fyrsta skipti nú í ræðu hv. þm., sem mér berst til eyrna, að með þessa starfsemi sé óánægja hjá tilteknum aðilum, sem hann nefndi, þ.e. ungmennafélagshreyfingunni. Ég vil taka það skýrt fram, að rn. hefur allar götur síðan 1956, að getraunastarfsemin var lögð niður vegna þess, að á henni var beinlínis taprekstur, verið reiðubúið til þess að nota heimild íþróttalaganna um það að veita íþróttanefnd ríkisins leyfi til getraunastarfsemi, og það mál hefur verið, svo að segja árlega, til stöðugrar athugunar hjá íþróttanefndinni. En hún hefur aldrei að athuguðu máli treyst sér til þess að hefja starfsemina að nýju af ótta við það, að hún mundi leiða til taps. Þegar svo þessi starfsemi var byrjuð með hætti, sem líklega hefði orðið að telja ólöglegan, en þrír mjög stórir aðilar, forustuaðilar í íþróttahreyfingunni, vildu taka þessa áhættu á sig, því að í upphafi var litið á þetta sem áhættu, — ríkið tók enga áhættu á sig í þessu sambandi, — þá taldi menntmrn. sjálfsagt að verða við þessu og túlkaði lagaákvæðin þannig — um þann skilning hefur ekki verið ágreiningur mér vitanlega — að íþróttanefndin gæti framselt þennan rétt sinn til annarra aðila með samþykki menntmrn., og það samþykki fékkst. En nú hefur komið í ljós, að hér er um verulega tekjulind að ræða og við lögðum í menntmrn. megináherzlu á það, að hagnaðinum yrði varið í samræmi við ákvæði íþróttalaganna. Við mundum aldrei hafa samþykkt að framselja réttinn til getraunastarfsemi með öðru skilyrði en því, að ráðstöfun fjárins færi algerlega eftir ákvörðun íþróttalaganna. Það var mergurinn málsins frá okkar sjónarmiði séð. Nú er hins vegar komið í ljós, að hér er ekki um áhættufyrirtæki að ræða, á tæplega hálfu ári hefur hagnaðurinn numið 500–600 þús. kr., og eins og hv. þm. sagði alveg réttilega, þá virðist hann fara mjög vaxandi og hér virðist vera um að ræða tekjustofn, sem geti gefið Íþróttasjóði, íþróttahreyfingunni, talsvert á 2. millj. kr. á ári, eins og nú standa sakir. Einmitt með hliðsjón af því, ef svona færi, og það hefur raunar farið fram úr björtustu vonum, þá var leyfið haft tímabundið og getur komið til endurskoðunar um næstu áramót. Ég get með ánægju gefið þá yfirlýsingu, að rn. er að sjálfsögðu reiðubúið til þess að ræða þetta mál við alla þá aðila, sem áhuga hafa á því að eiga aðild að þessari starfsemi og mundu vilja nota hagnaðinn í samræmi við ákvæði íþróttalaga, sem ég tel vera merg málsins. Ef um er að ræða óánægju með þetta fyrirkomulag hjá tilteknum aðilum, þá er réttast fyrir þá að snúa sér til rn. með þær umkvartanir sínar eða með skoðanir sínar um málið, og ég get fullvissað alla aðila um það, að við munum taka það mál til vinsamlegrar og vandlegrar athugunar.