03.12.1969
Sameinað þing: 18. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 746 í D-deild Alþingistíðinda. (3644)

906. mál, Hagráð

Fyrirspyrjandi (Þórarinn Þórarinsson):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir svör hans, sem voru skilmerkileg, og ég tel það sérstaklega til fyrirmyndar, að þm. skuli vera afhent skrifleg skýrsla um störf Hagráðs, eins og hér er gert, í stað þess að ráðh. lesi þetta upp, eins og oft hefur verið vaninn hér áður. Ég álít, að það mundi mjög greiða fyrir eða stytta fyrirspurnatíma hér á Alþ., ef ráðh. afhentu slíkar skýrslur eins og þessa, líkt og gert var í sambandi við aðra fsp. nú á dögunum, í staðinn fyrir að flytja hér langa skýrslu, sem erfitt er að fylgjast með.

Í sambandi við svar ráðh. vil ég annars segja það fyrst og fremst, að ég tel það mjög miður farið, að störf Hagráðs hafa alveg fallið niður á þessu ári. Ég álít, að slík samvinna stéttanna eða samráð stéttanna, eins og ætlazt er til að eigi sér stað innan Hagráðs, eigi að geta haft verulega þýðingu og eigi að geta greitt fyrir lausn ýmissa vandamála, vegna þess að þar á að skapast aðstaða til þess að stéttirnar kynnist viðhorfi hver annarrar betur en ella mundi verða. Ég álít það enga afsökun í þessum efnum, að einhverjar sérstakar annir hafi verið hjá Efnahagsstofnuninni og hún hafi því ekki getað fullnægt því verkefni, sem lög gera ráð fyrir. Það hefði þá átt að sjá fyrir því, að hún hefði mannafla til að gera það, sem lögin leggja henni á herðar að gera. Ég álít ekki heldur, að þær atvinnumálanefndir, sem starfa á þessu ári, komi á neinn hátt í staðinn fyrir Hagráð, vegna þess að verksvið þeirra er miklu þrengra en Hagráðs. Verksvið þessara atvinnumálanefnda er fyrst og fremst að fást við það tímabundna atvinnuleysi, sem hefur verið hér á þessu ári, og þess vegna er þeim ekki ætlað að starfa nema eitt ár. Hagráði er ætlað að hafa miklu stærra og yfirgripsmeira verkefni, fjalla um efnahagsmálin og framkvæmdamálin í heild sinni, ekki aðeins með tilliti til yfirstandandi tíma, heldur líka til framtíðarinnar. Þess vegna verður því ekki haldið fram með neinum rétti, að það sé nein afsökun fyrir því, að störf Hagráðs hafi verið felld niður á þessu ári, að atvinnumálanefndirnar hafi starfað. Ég vil vænta þess, að hér verði breyting á, að Hagráð verði vakið til lífsins aftur og það fái þær upplýsingar og þær skýrslur, sem lög gera ráð fyrir að það eigi að fá.

Ég vil í þessu sambandi láta sérstaklega í ljós undrun mína yfir því t.d., að í lögum um Hagráð er gert ráð fyrir því, að ríkisstj. leggi fyrir þjóðhags- og framkvæmdaskýrslur, en það virðist aldrei hafa verið gert á þeim tíma, sem það ráð hefur starfað. Það hefur að vísu verið lögð fram svokölluð framkvæmdaskýrsla ríkisstj., sem nær yfir mjög takmarkaðar ríkisframkvæmdir, en engin heildarþjóðhagsskýrsla eða framkvæmdaskýrsla, eins og gert var ráð fyrir, þegar lögin voru samþ. Ég álít, að það sé mjög mikilvægt, að slíkar skýrslur séu gerðar, til þess að Alþ. og aðrir aðilar, sem hér eiga hlut að máli, geti áttað sig á því betur en ella, hver þróunin sé og að hverju sé stefnt. Þetta mun vera gert í öllum okkar nágrannalöndum. Ísland er sennilega eina ríkið í V.-Evrópu, þar sem slíkar skýrslur eru ekki gerðar, þó ég telji það mjög miður farið.

Ég skal svo ekki lengja þessar umr. meira.

Ég vænti þess, að þær verði til þess, að Hagráð verði endurvakið að nýju og látið starfa með þeim hætti, sem umrædd lög gera ráð fyrir.