03.12.1969
Sameinað þing: 18. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 758 í D-deild Alþingistíðinda. (3670)
904. mál, héraðslæknar
Fyrirspyrjandi (Gísli Guðmundsson):
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir svör hans, þótt segja megi, að þau séu ekki verulega uppörvandi fyrir þá, sem í hlut eiga. Sumt af því, sem fram kom í svari hæstv. ráðh., er að mínu áliti umdeilanlegt, en ég mun ekki fara út í rökræður um þetta mál að þessu sinni. Ég hef alltaf haft von um það, að takast mætti að útvega lækna í þessi læknishéruð með aðstoð læknasamtakanna, og á ég þar fyrst og fremst við Læknafélag Íslands og raunar einnig við félagsskap læknanema í Háskólanum. Mér þótti vænt um, að fram kom skilningur á því hjá hæstv. ráðh., að því miður eru litlar vonir um, að læknamiðstöðvar geti leyst vandræði manna í landshlutum, þar sem eins stendur á og í þessum læknishéruðum, sem ég nú hef nefnt. Sem sagt, ég hef alltaf haft von um, að það væri hægt að útvega menn í þessi héruð með samvinnu við læknasamtökin og þar sem hæstv. ráðh. hefur upplýst, að full viðleitni sé í þá átt af hálfu heilbrigðisstjórnarinnar að hafa slíka samvinnu við læknasamtökin, þá vil ég nú mega vona, að sú viðleitni beri árangur áður en þau frv. um læknamál koma til afgreiðslu, sem nú liggja fyrir Alþingi.