21.01.1970
Sameinað þing: 31. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 781 í D-deild Alþingistíðinda. (3703)
128. mál, strandsiglingar
Fyrirspyrjandi (Vilhjálmur Hjálmarsson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram fsp. á þskj. 180 út af strandferðunum og vil fylgja henni úr hlaði með örfáum orðum.
Ég held, að það sé kunnara en svo, að það þurfi að rekja hér í einstökum atriðum, að vissir þættir í þróun vöruflutninga hér á landi hafa tvímælalaust orðið óhagstæðir. Þróunin hefur orðið óheppileg og ég vil segja óhagkvæm þjóðhagslega séð. Ríkið hefur haldið uppi strandferðum, styrkt þær verulega um nokkurra áratuga skeið, og það er nú svo, að það mun víðast vera reynslan, að vöruflutningar með skipum á sjó eða vötnum eru taldir með ódýrustu vöruflutningum, sem völ er á.
Nú hefur þróunin verið sú hér um nokkuð langt skeið, að vöruflutningar hafa færst óeðlilega mikið frá þessari útgerð ríkissjóðs og yfir á aðra aðila. Ég skal einungis nefna tvennt í þessu sambandi: Annars vegar það, sem oft hefur mjög viljað við brenna, að aðrir aðilar hafa tekið beztu vörusendingarnar, þær hagkvæmustu, og komið þeim til skila, en strandferðaskipin svo veitt aðra þjónustu, sem minna gaf. Og svo annað hitt, sem nú hefur á síðustu árum færzt mjög í vöxt, að vörur eru fluttar með bílum eftir veiku vegakerfi um miklu lengri vegalengdir heldur en sennilegt er að geti talizt hagkvæmt. Nú er kannske ekki vinsælt að taka upp fast skipulag í þessum efnum, Íslendingar eru yfirleitt ragir við það. Aðrar þjóðir hafa hins vegar talið það nauðsynlegt og gert það. Slíkt skipulag er hægt að framkvæma bæði með beinum og óbeinum aðgerðum. 1. liður fsp. er varðandi þetta efni, og er á þessa leið: „Hefur ríkisstj. undirbúið till. um skipulagningu vöruflutninga á sjó og landi á langleiðum innanlands?“
Það er raunar eins með annan liðinn. Það á ekki að þurfa að skýra hann með mörgum orðum, þó auðvitað sé það misjafnt, hvað menn hafa kynnzt því náið, bæði hv. þm. og aðrir, þ.e.a.s. þeim gífurlegu erfiðleikum, sem hafa verið um langt skeið á afgreiðslu á vörum hjá Skipaútgerð ríkisins, alveg sérstaklega hér í Reykjavík, en þó sjálfsagt líka á fleiri stöðum á landinu. Nú er búið að hleypa af stokkunum nýju skipi, sem allir fagna. Það er vafalaust ágætt skip, og það er bæði tiltölulega hraðskreitt og hefur mikla flutningsgetu miðað við eldri skip og hefur nýja tækni við lestun og losun. En það er alveg gefið, að ef þetta skip og það, sem nú er í smíðum, ef þau eiga að notast fyllilega, þá verður að gera úrbætur varðandi aðstöðuna í landinu. Það verður alveg óhjákvæmilegt. Það er nokkuð langt síðan farið var að ráðgera þessar aðgerðir hjá Skipaútgerðinni, en af því hefur ekki orðið enn og maður hefur ekki heyrt neitt um það, hvað í bígerð er í þessu efni á hærri stöðum. Ég er satt að segja hræddur um, að þetta hafi ekki verið athugað nægilega og ekki séu í undirbúningi neinar aðgerðir, þó maður voni hins vegar, að þegar sé farið að vinna að þessum málum. En það væri alveg fráleitt, ef ætti að spilla árangri af jafnágætri framkvæmd og smíði strandferðaskipanna nýju með því að láta það undir höfuð leggjast að gera úrbætur á þessu sviði.
Annar liður fsp. er þannig: „Hafa verið gerðar ráðstafanir til þess að bæta aðstöðu til vöruafgreiðslu hjá Skipaútgerð ríkisins, svo að tæknibúnaður og aukin afkastageta nýju strandferðaskipanna komi að fullum notum?“
Í 3. lið er svo vikið að farþegaflutningum á sjó. Esja hefur nú nýlega verið kvödd og vissulega með söknuði af þeim, sem notið hafa þjónustu hennar í 30 ár. Hún hefur verið happafleyta og má kannske segja, að skipið hafi verið bæði traust og stolt fólksins á ströndinni að vissu leyti. Hekla hafði áður verið seld, en báðar voru farþegaskip eins og þau þóttu bezt henta á þeim tíma, þegar þessi skip voru byggð. Það hefur ekkert heyrzt heldur um neinar fyrirætlanir varðandi þetta atriði, flutning farþega á sjó. En á þessu máli eru tvær hliðar: Annars vegar þjónusta við landsmenn og þá einkum á veturna, þegar vegir teppast og erfiðara er um samgöngur á landi, og svo þjónustan við erlenda og innlenda ferðalanga. Það er vitað mál, að sumarferðir gömlu skipanna voru ákaflega vinsælar og mikið notaðar, og manni finnst það mjög ósennilegt, að nú, þegar ferðamannastraumur er vaxandi og það er talið mikið atriði að örva hann, þá sé skynsamlegt að kippa þessari þjónustu við ferðamenn alveg burtu. Þessi atriði öll hafa nokkuð verið gagnrýnd opinberlega, m.a. af minni hálfu. En það hefur ekki heyrzt neitt frá opinberum aðilum um það, hvað fyrirhugað sé í þessu efni, og þess vegna er þessi liður fsp. fram borinn, en hann er á þessa leið:
„Hvað ætlast ríkisstj. fyrir varðandi farþegaflutninga með ströndum fram: a) vegna sumarferða innlendra og erlendra ferðalanga, b) til þjónustu við þær strandbyggðir, sem erfiðasta sókn eiga til flugvalla á vetrum?“
Ég hef ekki þessi orð fleiri, en bíð svara hæstv. ráðh.