28.01.1970
Sameinað þing: 32. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 796 í D-deild Alþingistíðinda. (3732)
911. mál, greiðslur til Sofnlánasjóðs fiskiskipa
Sjútvrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Svo sem fyrirspyrjandi hefur greint frá, er spurt um, hversu miklu er áætlað, að greiðslur af óskiptu aflaverðmæti samkv. lögum nr. 79 frá 31. des. 1968 nemi á árinu 1969, eins og þar greinir í undirliðum.
Svarið er: Samkv. upplýsingum Fiskifélags Íslands námu greiðslur í Stofnlánasjóð fiskiskipa 307.8 millj. kr. á tímaþilinu jan. til sept. 1969 og kostnaðarhlutdeild útgerðarfyrirtækja um 334.7 millj. kr. á sama tíma. Sé lauslega ætlazt á um aflaverðmæti tímabilsins okt. til des. með hliðsjón af afla fyrra árs, auk þeirra upplýsinga, sem þegar liggja fyrir um afla og sölur erlendis, verður svarið við fsp. sem hér segir, fyrir allt árið 1969:
1) Í Stofnlánasjóð fiskiskipa: a) til togara 124 millj. kr., b) til annarra fiskiskipa 304 millj. kr., eða samtals 428 millj. kr.
2) Til útgerðarfyrirtækja sem hlutdeild í almennum útgerðarkostnaði 391 millj. kr.