04.03.1970
Sameinað þing: 37. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 807 í D-deild Alþingistíðinda. (3763)

914. mál, stofnun kaupþings

Þórarinn Þórarinsson:

Herra forseti. Þar sem aðalflm. þessarar fsp., Eyjólfur K. Jónsson, á nú ekki sæti á Alþ., leyfi ég mér að fylgja þessum fsp. úr hlaði, en þær fjalla annars vegar um undirbúning að stofnsetningu kaupþings og hins vegar um það, hvenær vænta megi, að slík stofnun hefji starfrækslu.

Ljóst er, að almenningshlutafélög eiga auknu hlutverki að gegna í náinni framtíð. En eitt skilyrði þess, að slík félög verði hér rekin með árangri og unnt reynist að fá menn til þátttöku í þeim, er, að upp rísi kaupþing, þar sem verzlað verði með hlutabréf, þannig að almenningur geti komið þessari eign sinni í peninga, ef hann þarf á þeim að halda, og jafnframt veiti kaupþing það aðhald, sem nægir til þess að slík félög verði rekin af réttsýni og dugnaði.

Eins og hv. alþm. er kunnugt, stendur nú yfir endurskoðun á reglum skattalaga um skattlagningu fyrirtækja, og einnig er í undirbúningi löggjöf, sem auðvelda mun samvinnu og jafnvel samruna fyrirtækja. Tilgangur þessara lagabreytinga er að bæta stöðu þeirra, sem verja vilja fjármunum sínum til beinnar þátttöku í atvinnulífinu, og verður að gera ráð fyrir því, að þessar lagabreytingar verði með þeim hætti, að arðvænlegt verði fyrir alþýðu að ráðstafa sparifé sínu að verulegu leyti til hlutabréfakaupa, sem mjög munu styrkja atvinnuvegina.

Í 15. gr. laga nr. 10 frá 1961, um Seðlabanka Íslands, er bankanum heimilað að kaupa og selja ríkisskuldabréf og önnur trygg verðbréf, og skal þar vinna að því, að á komist skipuleg verðbréfaviðskipti. Er bankanum heimilt í því skyni að stofna til og reka kaupþing, þar sem verzlað yrði með vaxtabréf og hlutabréf samkv. reglum, sem bankastjórnin setur og ráðh. staðfestir. Þrátt fyrir þetta ákvæði, sem senn er nú áratugsgamalt, hefur bankinn enn ekki hafið þessa starfrækslu. Hafa forsvarsmenn bankans á það bent, að tilgangslítið væri að stofna kaupþing, sem ekki hefði nein verðbréf til að verzla með. En hvatamenn að stofnun almenningshlutafélaga benda á, að samhliða stofnun slíkra félaga verði kaupþing að rísa, jafnvel þótt umsvif þess verði lítil fyrst í stað. Okkur flm. fsp. virðist tímabært að vinda nú að því bráðan bug að koma kaupþingi á fót og teljum eðlilegt, að hér á hinu háa Alþ. verði gefnar upplýsingar í þá átt, sem spurt er um.