04.03.1970
Sameinað þing: 37. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 810 í D-deild Alþingistíðinda. (3766)
914. mál, stofnun kaupþings
Ólafur Björnsson:
Herra forseti. Ég tel það mjög vel til fallið, að þessu máli skuli vera hreyft hér á hinu háa Alþ., því að ég tel, að það gæti orðið veruleg lyftistöng eðlilegu athafnalífi hér á landi, ef hægt væri að koma upp skipulögðum verðbréfamarkaði, bæði fyrir skuldabréf og hlutabréf, en það er einmitt slíkt hlutverk, sem kaupþing gegna. Ég minnist þess, að það mun hafa verið fyrir um það bil 15 árum eða meira, að ég hlustaði á erindi, sem norskur sérfræðingur í þessum efnum hélt hér, en hann sagði, að sig hefði furðað mjög á því, að ekki hefði tekizt að koma á fót í svo stórri borg sem Reykjavík kaupþingi, og minntist á það í því sambandi, að það hefði verið um s.l. aldamót, sem kaupþingi var komið á fót í Stafangri í Noregi, en íbúatala þar var þá aðeins 5000, og þetta kaupþing væri starfandi enn í dag og hefði starfað óslitið síðan. En það, sem kom mér til að standa hér upp, var, að ég vildi vekja athygli á því, sem ég tel að liggi til grundvallar þeirri leiðu staðreynd, að tilraunir, sem gerðar hafa verið til að koma hér á fót kaupþingi, hafa ekki borið árangur. Ég tel, að það sé ekki í sjálfu sér vegna þess, að löggjafarvaldið hafi ekki veitt nauðsynlega fyrirgreiðslu í því efni. Það hefur alllengi verið fyrir hendi í lögum heimild til þess að stofna kaupþing, og einnig tel ég, að það sé e.t.v. nokkuð ýkt, að það sé skattalöggjöfin, sem sé svo mjög þessu til fyrirstöðu, þó að sjálfsagt sé að gera nauðsynlegar umbætur á henni að mínu áliti. Nei, en það er annað, sem liggur til grundvallar tregðu almennings á því að leggja fé sitt í verðbréf, hvort heldur um skuldabréf eða hlutabréf er að ræða. Varðandi skuldabréfin, sem almenningur í nágrannalöndunum leggur í svo stórum stíl peninga sína í og jafnvel í miklu ríkara mæli heldur en í banka og sparisjóði, eins og fólk gerir hér, þá er það auðvitað fyrst og fremst verðbólgan, sem gerir það að verkum, að hér vill fólk ekki eiga skuldabréf, nema þá um verðtryggð skuldabréf sé að ræða, en það er undantekning. Varðandi hlutabréfin horfir þetta auðvitað öðruvísi við, því að sé um hlutabréf að ræða í góðum fyrirtækjum, þá eiga þau að vera sjálfkrafa verðtryggð. Vera má, að skattaástæður liggi þar að einhverju leyti að baki, en þó má á það benda, að verulegar umbætur hafa verið gerðar í þessum efnum, fyrst 1957, þegar tekinn var upp hlutfallslegur skattur á arð af hlutabréfum, og enn fremur með skattalagabreytingunni í kringum 1960. Og satt að segja dreg ég í efa, að skattar á arði af hlutabréfum séu til mikilla muna hærri hér á landi heldur en gerist í nágrannalöndunum, þar sem hlutabréfaeign er þó almenn. En það er annað, sem liggur þessu til grundvallar, og ég tel, að það sé aðalvandamálið, sem við er að etja. Ástæðan er sú, að almenningur hefur ekki neina trú á því, að hlutabréf gefi yfirleitt af sér nokkurn arð, og meðan svo er, skiptir það ekki verulegu máli, hvort arðurinn er skattlagður meira eða minna. En yfirleitt hefur það verið þannig hér, að menn reikna ekki með því að sjá nokkurn tíma eyri af þeim peningum, sem þeir leggja í hlutabréf. Ástæðan til þess, að menn gera það, er sú, að þeir vilja skapa sér og sínum aðstöðu til að fá vinnu hjá viðkomandi hlutafélagi, en menn reikna yfirleitt ekki með því að fá arð af þessum peningum. Og meðan svo er, þá þýðir lítið í rauninni að stofna hér kaupþing. Það þarf að skapa grundvöll fyrir því, að hlutabréfaeign geti gefið af sér arð, og þegar það hefur tekizt, má vænta þess, að almenningur leggi fé sitt í það eins og annað. En það mundi leiða of langt hér að ræða það mál til hlítar, hvernig þann grundvöll má skapa.