04.03.1970
Sameinað þing: 37. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 812 í D-deild Alþingistíðinda. (3771)
915. mál, fiskiðnskóli
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Fram að síðustu áramótum heyrði fiskiðnskólamálið undir sjútvrn. Frá áramótum heyrði það hins vegar undir menntmrn. Sjútvrn. hefur látið mér í té eftirfarandi skýrslu um aðgerðir þess í málinu:
„Í des. 1966 skilaði n., sem skipuð var samkv. þál. um fiskiðnskóla frá 30. apríl 1964, frv. til 1. um fiskiðnskóla á Íslandi ásamt grg. Í frv. n. er gert ráð fyrir, að skólinn verði staðsettur á Suðvesturlandi, hann verði í eigin húsakynnum, þar sem aðstaða verði til bóklegrar og verklegrar kennslu, skólatíminn verði full tvö ár, þar af verkleg þjálfun í 3 mánuði í upphafi skólatímans og 3 mánuði á milli bekkja. Í grg, með frv. kemur fram, að nm. telja nauðsynlegt, að skólinn starfræki fiskvinnslustöð með fullkomnum fiskvinnslutækjum, þar sem verkun sem flestra fiskafurða geti farið fram. Bendir n. í því sambandi á aðstöðu, sem fyrir er í húsakynnum rannsóknastofnana sjávarútvegsins að Skúlagötu 4, og taldi n. þar vera húsnæði, sem nota mætti fyrst í stað, enda komi skólinn svo fljótt sem við verði komið í eigin húsakynni. N. taldi, að nauðsynlegt væri, að skólinn ræki heimavist og mötuneyti til að jafna aðstöðu þeirra, sem skólann sækja.
Þar sem engin áætlun var í grg. n. um kostnað við stofnun og rekstur skólans, var það mál kannað sérstaklega. Var gerð fjárhagsáætlun með tilliti til þeirra hugmynda, sem fyrir lágu.
Í framhaldi af þeim athugunum eða síðla árs 1968 ákvað sjútvrn. að stofna til fiskiðnaðarnámskeiða í húsakynnum rannsóknastofnana sjávarútvegsins, er gætu orðið grundvöllur að fiskiðnskóla. Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins vann síðan að undirbúningi námskeiðahalds.
Byrjað var á því að halda uppi fræðslu fyrir nemendur Stýrimannaskólans í Reykjavík um meðferð og verkun sjávarafla, og verður þessu haldið áfram í vetur. Þeir, sem útskrifast úr fiskimannadeild skólans, munu sækja vikunámskeið hjá stofnuninni, þar sem þeir munu fá bæði bóklega og verklega fræðslu. Ákveðið var að taka hreinlætismálin fyrst fyrir á sérstökum námskeiðum, þar sem mjög aðkallandi þótti að veita fræðslu um þessi mál. Þrjú hálfs mánaðar námskeið hafa þegar verið haldin, og hafa sótt þau alls 38 eftirlits- og matsmenn sölusamtakanna og Fiskmats ríkisins. Áformað er að halda þessum námskeiðum í hreinlætistækni áfram, þar til verkstjórar og eftirlitsfólk sem flestra frystihúsa hafa sótt þau. Sum af þessum námskeiðum verða haldin úti á landi næsta sumar, t.d. á stöðum eins og Vestmannaeyjum, Akureyri og Ísafirði. Námskeið á öðrum sviðum verða einnig haldin í ár, t.d. námskeið í síldarverkun að beiðni síldarútvegsnefndar, svo og námskeið í fiskmjölsframleiðslu, og í athugun er að halda námskeið í niðursuðu og meðferð fiskvinnsluvéla. Til athugunar er einnig möguleiki á að halda á næsta ári fjögurra mánaða námskeið í almennri fiskverkun, en um lengri námskeið verður varla að ræða í húsakynnum stofnunarinnar. Kostnaður af þessum námskeiðum er borinn uppi af byggingarsjóði rannsóknastofnana sjávarútvegsins.“
Hér lýkur skýrslu sjútvrn. um afskipti þess af málinu.
Þá er rétt að fara fáeinum orðum um, hvernig menntmrn. hyggst vinna að þessu máli. Verkfræði- og raunvísindastofnun Háskólans mun á næstunni gera till. um nýskipan náms í deildinni. Nú er þar kennt til fyrri hluta í verkfræði og til BA-prófs í náttúrufræðum, en það er þriggja ára nám hið minnsta. Hugmyndir eru uppi um að taka upp fjögurra ára verkfræðinám til BS-prófs, og er náminu ætlað að vera skylt hinu nýja danska akademiska ingeniör-námi. Jafnframt er tilætlunin að haga kennslu þannig, að stúdentar geti stundað hér fyrrihlutanám í ýmsum raunvísindagreinum, en síðan verði samið við erlenda háskóla um, að þeir geti haldið áfram námi þar. Jafnframt hefur farið fram athugun á tæknifræðináminu sem og iðnnámi og verknámi í tengslum við það.
Þegar rn. berast till. verkfræðideildar, mun það skipa n. til þess að gera till. um endurskipulagningu tæknifræði-, iðn- og verknámsins í sambandi við fyrirhugaðar breytingar í verkfræði- og raunvísindadeild, þar eð nauðsynlegt er, að samræmi og tengsl séu á milli breytinga á verkfræði-, tæknifræði-, iðn- og verknáminu. Ættu hugsanlegar breytingar að geta komið til framkvæmda haustið 1970. Í þessu sambandi mun ég óska sérstaklega eftir því, að athugað verði rækilega, á hvaða námsstigi og með hverjum hætti bezt yrði séð fyrir menntunarþörf fiskiðnaðarins, t.d. hvort það verði gert með stofnun sérstaks skóla eða með sérstakri námsleið, einni eða fleirum, á einhverju stigi eða stigum þess hluta skólakerfisins, sem hér er um að ræða, þ.e.a.s. tækni- og verkfræðimenntuninni. Niðurstöður allra þessara athugana þurfa að liggja fyrir í síðasta lagi fyrir mitt sumar, til þess að til framkvæmda geti komið næsta haust, og mun ég leggja áherzlu á, að svo geti orðið.