10.12.1969
Neðri deild: 22. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 25 í B-deild Alþingistíðinda. (38)
95. mál, happdrætti fyrir Ísland
Fjmrh. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, er þess efnis að heimila Happdrætti Háskóla Íslands að gefa út nýjan flokk hlutamiða, þannig að flokkarnir verði fjórir. Á síðasta þingi var samþ. heimild til happdrættisins um, að flokkarnir yrðu þrír. Það hefur komið í ljós við nánari athugun þess máls, að það þykir hagkvæmara af ýmsum ástæðum að hafa flokkana fjóra, m.a. vegna þess, að eftirspurn eftir fjórðungsmiðum og hálfmiðum hefur minnkað mjög mikið og aðaleftirspurn verið eftir heilmiðum og þetta mundi þá leiða til þess, að hægt væri að kaupa heilmiða, miðað við alla þessa 4 flokka, því að ætlunin er ekki að fjölga miðunum sjálfum, þ.e.a.s. hlutatalan verður sú sama. Hvaða áhrif þetta hefur, skal ekki um sagt, en það er þó skoðun forráðamanna happdrættisins, að þetta muni auka og bæta rekstur þess og gera því fært að afla nokkuð aukins fjár til síns verkefnis, en eins og hv. þdm. er kunnugt, er hlutverk happdrættisins að standa undir byggingum Háskóla Íslands. Það er jafnframt kunnugt öllum hv. þdm., að fram undan eru stórkostleg verkefni á þessu sviði, svo stórkostleg, að það er ljóst, að ekki er nein leið til þess, að happdrættið geti nema að hluta til staðið undir þessum byggingum. Hins vegar þykir sjálfsagt og eðlilegt að stuðla að því eftir föngum, að happdrættið geti rækt þetta hlutverk, sem því hefur frá upphafi verið ætlað og það með sem beztum hætti, þó að ríkið þurfi einnig að koma til.
Í Ed. var þetta frv. samþ. einróma og vildi ég leyfa mér að vænta þess, að frv. mætti sama skilningi hér í hv. Nd. Ég vil jafnframt taka það fram, að til þess að það komi að fullum notum á næsta ári, þá er nauðsynlegt, að frv. fáist afgreitt endanlega hér á Alþ. fyrir áramót og vil ég því leyfa mér að beina þeim tilmælum til hv. n., sem fær málið til meðferðar, að hún leitist við að hraða störfum, enda er hér um einfalt mál að ræða og allar upplýsingar um það fáanlegar frá stjórn happdrættisins með litlum fyrirvara, svo að hægt verði að
afgreiða frv. endanlega frá d., áður en Alþ. lýkur nú störfum fyrir jólaleyfi.
Ég sé ekki ástæðu til, herra forseti, að fara um þetta fleiri orðum, en legg til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjhn.