11.03.1970
Sameinað þing: 38. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 849 í D-deild Alþingistíðinda. (3809)
918. mál, sjónvarpsmál
Benedikt Gröndal:
Herra forseti. Síðustu orð hv. fyrirspyrjanda eru skiljanleg, og ég veit, að hver maður hér í salnum tekur undir þau. Það er æskilegt að útbreiða sjónvarpið eins ört og framast er unnt. Hins vegar vil ég ekki láta hjá líða að geta þess, að í samanburði við önnur lönd, miklu stærri og auðugri en okkar, hefur útbreiðsla sjónvarpsins, sem hefur náð til yfir 90% þjóðarinnar á liðlega 3 árum, raunverulega gengið kraftaverki næst. Það eru tvær ástæður fyrir því. Hin fyrri er stefna yfirvalda, sem tryggðu vissan tekjustofn til útbreiðslunnar og sá tækjastofn, sem er mikill, hefur verið algerlega aðskilinn frá öðrum rekstri og látinn fara í þetta verkefni eitt. Í öðru lagi vildi ég segja, að Landssíminn og verkfræðingar hans hafa unnið afburðagott verk á þessu sviði. Þeir hafa leyst verkefni, sem mér er persónulega kunnugt um, að margir útlendir verkfræðingar töldu fyrir fram að væru óleysanleg á þann hátt, sem orðið hefur.
Aðalástæðan til þess, að ég kvaddi mér hljóðs, er hins vegar sú, að hv. fyrirspyrjandi nefndi í frumræðu sinni, án þess að gera um það frekari fsp., að hljóðvarp heyrðist líka illa í Skagafirði. Það er rétt. Þetta er töluvert vandamál, sem Ríkisútvarpið á við að stríða. Það voru erfiðar aðstæður í Skagafirði og sums staðar á Austurlandi, vegna þess að ný langbylgjustöð var sett í Reykjavík fyrir nokkrum árum og gamla stöðin flutt að Eiðum. Var útvarpað á sömu bylgjulengd og eru nokkrir staðir á landinu, þar sem bylgjurnar mætast og skapa dálitla truflun. Við héldum, að við værum vel á vegi með að leysa þetta, en þá gerist það, að reist var suður í Marokkó sterk langbylgjustöð, sem nú veldur nýjum og mjög hvimleiðum truflunum á hljóðvarpsmóttöku, ekki hvað sízt um norðanvert landið og alla leið vestur á Vestfirði. Því miður er alþjóðasamstarf á þessu sviði svo veikt og svo lélegt, að ekki virðist vera hægt að gera neitt til þess að stöðva þetta.
Það er aðeins ein lausn til á þessu máli, og hún er að ganga miklu lengra í þá átt að koma upp örbylgjuhljóðvarpi, koma upp FM-stöðvum svokölluðum. Þær eru nú til á nokkrum stöðum á landinu, en þær eru skyldar sjónvarpinu og eftir að sjónvarpið kemur, er ástæða til að ætla, að það verði hægt að byggja upp kerfi örbylgjustöðva á nákvæmlega sama hátt og nota nákvæmlega sömu staði.