08.04.1970
Sameinað þing: 43. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 901 í D-deild Alþingistíðinda. (3873)

923. mál, ómæld yfirvinna

Jón Kjartansson:

Herra forseti. Ég ætla aðeins að segja nokkur orð í sambandi við þær umr., sem hér hafa farið fram varðandi yfirvinnugreiðslur til opinberra starfsmanna. Að mínum dómi eru þessar umr., sem hér hafa farið fram um ómælda vinnu opinberra starfsmanna, fyrst og fremst til komnar vegna þess, að forstöðumenn ríkisstofnana hafa fengið greitt fyrir yfirvinnu sína, sem þeir sannanlega hafa innt af hendi. Það er mín skoðun, að ef það hefðu verið einvörðungu póstmenn eða kennarar eða aðrir opinberir starfsmenn, sem hefðu fengið greitt fyrir þessa yfirvinnu, þá hefði þetta ekki verið gert að slíku máli sem það hefur verið gert, bæði í blöðum og hér á Alþ. Og vil ég þá fyrst vekja athygli á því, að ég tel, að rn. hafi haft heimild til að gera þetta. Í auglýsingu um laun ríkisstarfsmanna, reglur um vinnutíma, yfirvinnugreiðslu o.fl. samkv. dómi kjaradóms 3. júlí 1963, sem birt var í Stjórnartíðindunum 1963 á bls. 184, segir svo í niðurlagi 15. gr.:

„Forstöðumenn stofnana eiga ekki rétt á yfirvinnugreiðslu samkv. 1. mgr. Þurfi þeir þó að vinna verulega yfirvinnu vegna embættisanna, er heimilt að greiða þeim sérstaka þóknun til viðbótar mánaðarlaunum þeirra. Slíka greiðslu ákveður fjmrn. með samkomulagi við viðkomandi starfsmann og vitund BSRB.“

Þarna tel ég, að gengið hafi verið út frá því, að rn. mættu greiða forstöðumönnum fyrir yfirvinnu, ef hún er unnin. Ég vil sérstaklega leiðrétta það hér, sem hefur komið fram í umr., að það eru margir, sem telja, að hér sé verið að greiða forstöðumönnum ríkisstofnana fyrirvinnu, sem þeir hafa ekki innt af hendi, og það sé verið að laga eitthvert bil milli launaflokka. Ég held, að það sé alls ekki rétt. Forstöðumenn opinberra stofnana eru sú stétt manna, sem hefur ekkert stéttarfélag. Læknar hafa sitt stéttarfélag, prestar hafa sitt, verkfræðingar, og svo mætti lengi telja. En þeir mega þó eiga það þessir menn, sem hafa unnið í þjónustu ríkisins og vinna, að þeir hafa ekki stofnað til sérstaks stéttarfélags til að hækka sín laun. Þeir hafa hins vegar ekki viljað láta traðka á sér þannig, og þeir hafa viljað vitna í þær reglur, sem þeir telja, að ættu að gæta þess, að þeir fengju greitt fyrir sína vinnu. Og ég vil upplýsa það, að mér er kunnugt, að það eru alls ekki forstöðumenn opinberra stofnana, sem í dag eru tekjuhæstu menn þeirra stofnana, sem þeir vinna við, alls ekki. Ég held, að ég þurfi ekki nema bara að líta út um gluggann til að sjá hér skrifstofuhús einnar ríkisstofnunar, — það er Póstur og sími, — og mér er sagt, að það séu tugir starfsmanna Pósts og síma, sem hafi hærri laun en póst- og símamálastjóri.

Það getur vel verið, að það séu einhverjir talsmenn þessarar stefnu. Ég segi fyrir mig, að ég roðnaði, þegar ég var að ýta á eftir því við rn. að fá þessa eftirvinnu. Það þarf enginn að halda, að hún hafi verið borin fram á silfurdiski. Það þurfti sannarlega að ýta á rn. til að fá þetta og sanna okkar mál, hvað við hefðum unnið. Ég segi það aftur, að ég her kinnroða fyrir það, þegar ég er að fara fram á hærri laun og þegar ég lít á launaskrá þess starfsfólks, sem vinnur í sömu stofnun og ég og hefur 5. launaflokk.

Ég held, að það þurfi að endurskoða laun opinberra starfsmanna almennt, en óneitanlega verða þeir menn, sem eiga að bera ábyrgð á rekstri stofnana og eiga að sjá um, að þar fari allt sem bezt úr hendi, að fá umbun fyrir sín störf. Það er kannske ekki daglegur viðburður hjá forstöðumönnum ríkisstofnana, en vikulegur viðburður, að þeir kalla inn sína helztu trúnaðarmenn að loknum vinnudegi og eru þá með þeim á fundi um mál varðandi stofnanirnar kannske í 3–4 klst. Hér er um að ræða skrifstofustjóra, bókara og deildarstjóra. Þessir menn fara af þessum fundi með nokkur hundruð kr. í vasanum, kannske allt að 1000 kr., en forstöðumaðurinn á ekki að fá neitt. Þetta finnst mér ekki rétt. Þá er það vitað mál líka, að forstöðumenn stofnana fara með vinnu heim til sín á kvöldin til að auðvelda afgreiðslu næsta dags. Og ætli það sé ekki daglegur viðburður hjá forstöðumönnum, að þeir þurfa að eyða svo og svo miklum tíma á kvöldin til að ræða í síma um mál varðandi stofnunina?

Ég ætla að varpa eftirfarandi fsp. fram: Hefði verið réttara af rn., þegar forstöðumenn opinberra stofnana óskuðu eftir að fá laun greidd samkv. þessari grein, sem ég las upp, hefði verið réttara af þeim að neita forstöðumönnunum um þessa launagreiðslu? Ég held, að þá fyrst hefði mátt átelja hæstv. ráðh. fyrir þeirra afstöðu.