15.04.1970
Sameinað þing: 45. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 915 í D-deild Alþingistíðinda. (3888)
192. mál, útgáfustyrkur til vikublaðs
Fyrirspyrjandi (Lúðvík Jósefsson):
Herra forseti. Mér sýnist, að inn í þessar umr. sé blandað gersamlega óskyldum atriðum. Hv. 4. þm. Norðurl. e. ræddi hér um, hvað væri sanngjarnt að gera, hvort það væri sanngjarnt að styðja vikublöð og hvort hér væri um styrk eða greiðslu að ræða. Ég hef fyrir mitt leyti ekki á neinn hátt sagt það, að sú greiðsla, sem nú fer fram til dagblaðanna, eigi að skoðast sem styrkur. Ég spurði aðeins um það, hvaðan fjmrh. kæmi heimild til þess að veita einu vikublaði útgáfustyrk, vegna þess, að hann hafði tilkynnt alþjóð, að hann gerði það. Hann orðaði það þannig, að hann hefði greitt ákveðnu vikublaði tiltekna fjárhæð í útgáfustyrk. Það, sem hér er um að ræða, er vitanlega þetta: Alþingi hefur ákveðið að heimila að greiða eða verja tiltekinni upphæð til þess að kaupa fyrir dagblöð, og það kom alveg skýrt fram, eins og hæstv. forsrh. staðfesti hér í því, sem hann sagði, að þegar um þessi mál var fjallað fyrir afgreiðslu síðustu fjárlaga m.a. af formönnum þingflokkanna, þá tók ég það alveg skýrt fram af minni hálfu, að það væri ekki um neitt samkomulag við mig að ræða um þennan lið, nema hann væri orðaður eins og hann var á fjárlagafrv. og var samþykktur. Hitt er svo vitanlega annað mál, að hæstv. fjmrh., og nú er það upplýst af hæstv. menntmrh., að Alþfl. og Sjálfstfl. hafa komið sér saman um það að ákveða, að hliðstæð greiðsla þeirri, sem gengur til dagblaðanna, skuli einnig ganga til þessa eina vikublaðs. Heimildin er þá ekki önnur en þessi, að þessir tveir flokkar hafa komið sér saman um að gera þetta. Ég hef bent á það, að allar túlkanir benda til, að hér hafi raunverulega verið um það að ræða í upphafi, að það væri verið að greiða flokkunum þetta sem styrk. Sú röksemdafærsla stenzt ekki, því að þá er það augljóst mál, að þá hefur verið gert ráð fyrir því að láta einn flokkinn í landinu hafa tvöfaldan styrk. Og ég neita því líka, að gert hafi verið samkomulag við þingflokkana um þetta. Það mun vera rétt, sem hæstv. menntmrh. sagði hér, að á sínum tíma beittu sér ýmsir forustumenn flokkanna hér á Alþ. fyrir því að taka upp nokkurn stuðning við dagblöðin, og úr röðum okkar Alþb.-manna var þar um að ræða einn af áhrifamestu mönnunum, sem stóðu að útgáfu Þjóðviljans, Einar Olgeirsson. Hann gerði það, eins og aðrir, sem áhugamaður um útgáfu á dagblaðinu, en hér var ekki um neitt samkomulag við okkar þingflokk — (Gripið fram í.) Það var ekki mitt að ákveða, hverjar væru fjárlagaheimildir. Það var gert samkomulag um það. Hvort eitthvað hafi skort á, að leitað hafi verið eftir formlegri heimild, það er allt annað mál. En það er sem sagt alveg út í hött, þegar hv. 4. þm. Norðurl. e. er hér að tala um, að ég sé að dæma þessa greiðslu sem sérstakan styrk. Ég er aðeins að spyrja um það, hvaðan ráðh. hafi komið sú heimild að greiða þann útgáfustyrk, sem hann segist hafa greitt. Það er alveg augljóst mál á því, sem hér hefur komið fram, að aðeins er um eitt vikublað að ræða, sem nýtur þessa stuðnings. Og þessi stuðningur hefur verið veittur þessu vikublaði, áður en til kom stofnun þingflokks og áður en til kom að stofna nýjan flokk. Það er svo aftur á móti skiljanlegt, að þeir hafa kannske haft nokkurn hug á því, sjálfstæðismenn og Alþfl.-menn, sem samþykktu það í ríkisstj., að það þyrfti á þessu að halda, til þess að þingflokkur og flokkur yrði stofnaður.