15.04.1970
Sameinað þing: 45. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 924 í D-deild Alþingistíðinda. (3894)
192. mál, útgáfustyrkur til vikublaðs
Ólafur Jóhannesson:
Herra forseti. Ég hef nú satt að segja heldur litla tilhneigingu til þess að taka þátt í þessum umr., en ég tel þó eftir atvikum rétt að segja örfá orð. Ég get nú ekki vitnað um forsögu þessa máls, af því að ég átti þar ekki aðild að og tók þar ekki þátt í. Hins vegar tók ég þátt í þeim fundi, sem um þetta var haldinn í vetur, þegar til umr. var nokkur hækkun á þeirri fyrirgreiðslu, sem blöðin hafa fengið. Og mér er að sjálfsögðu ljúft að taka það fram, að það er rétt, sem hæstv. forsrh, sagði, bæði um sín eigin orð og eins um orð hv. þm. Lúðvíks Jósefssonar. Hv. þm. Lúðvík Jósefsson lýsti því yfir, að það væri ekkert samkomulag af sinni hálfu, ef greiðslu ætti að haga á þessa leið, en hæstv. forsrh. lýsti því hins vegar yfir, að þessu mundi, ef ég man rétt, verða hagað á sömu lund og gert hefði verið áður. Og á þessum fundi var einnig hv. þm. Hannibal Valdimarsson. Ég leit því svo á og verð að segja, að ég gerði ráð fyrir því, að þó að þessi fjárlagaliður væri orðaður eins og hann er orðaður, greiðsla til dagblaða, þá mundi verða haldið sama hætti í þessu efni eins og að undanförnu, og það mundi verða innt af hendi nokkur greiðsla til Frjálsrar þjóðar.
Hitt var svo okkur öllum, held ég, ljóst, að skipun þessara mála var ekki alls kostar skemmtileg eða eðlileg. Þess vegna urðum við sammála um það, að þessi mál yrðu tekin upp til rækilegrar athugunar. Ég tek algerlega undir það, sem hæstv. menntmrh. sagði, að hér er vissulega um vandamál að ræða, sem er öllum fyrir beztu, að um verði rætt rólega og að það mál sé athugað rólega. Það þýðir ekkert að vera að loka augunum fyrir því, að sum dagblöðin hér hafa átt við mjög mikla fjárhagsörðugleika að etja. Þó að menn séu mismunandi sinnis um þann boðskap, sem þau flytja, þá hygg ég, að þeir séu fáir, ef þeir eru þá nokkrir, sem vilja gerast formælendur fyrir því, að þau blöð verði að hætta vegna fjárhagserfiðleika, og þess vegna er þetta vandamál, sem verður að horfast í augu við, hvernig á að veita þeim fyrirgreiðslu eða greiðslu fyrir þá þjónustu, sem þau inna af hendi, hvernig svo sem það er orðað. Ég hygg það mála sannast, að til þessa hafi verið stofnað með nokkuð óformlegum hætti og það hafi þá kannske ekki legið alveg ljóst fyrir og liggi ekki ljóst fyrir enn, a.m.k. deila menn um það, hvort þarna sé fremur um að ræða styrk til dagblaða eða flokka. Þetta þarf að gera upp og koma því á hreint.
Ég þykist engan hafa blekkt í þessu efni, enda hef ég ekki nálægt þessu komið á annan hátt en þennan að taka þátt í þessum fundi og eiga minn þátt í því, að nefnd væri Skipuð til þess að athuga framtíðina í þessum málum. Og ég veit ekki betur en sú nefnd sé að starfa, og ég vona, að það verði árangur af hennar starfi. Þetta vil ég nú segja um það.
Hins vegar hnaut ég um orðalag hjá hæstv. forsrh., ef ég hef þá heyrt það rétt, — það getur verið, að mér hafi misheyrzt, — hann sagði eitthvað á þá lund, að það hefði verið unnið að því hér á bak við, skildist mér, að athuga um fyrirgreiðslu við þingflokka. Ég veit nú ekki betur en þetta hafi verið gert fyrir sæmilega opnum tjöldum, undir forsæti hæstv. forseta, og að í þeirri nefnd hafi setið fulltrúar frá öllum þingflokkum. Mér er reyndar ekki kunnugt um annað en að í þeirri nefnd hafi verið sæmilegt samstarf. Og ég tek alveg undir það, sem hér hefur verið sagt af öðrum, — ég man nú ekki í svipinn af hverjum, — að hvernig svo sem þessum málum verður ráðið til lykta, — og ég vona, að það fáist farsæl lausn á þeim, — þá má ekki blanda því saman við spurninguna um það, hvernig á að bæta starfsháttu Alþingis og starfsskilyrði þingflokka. Þeirri spurningu verður að mínum dómi að halda alveg utan við þetta.
Ég held, að við þurfum sem sagt að halda áfram að vinna að þessu máli og athuga það. Það getur vel verið, að hægt sé að finna aðra leið en þessa, sem farin hefur verið, til einhverrar þjónustu við blöðin, og þetta mál þarf allt að athuga og skoða, og það þarf að finna nýtt form fyrir þetta, þannig að umræður sem þessar komi ekki til.