15.04.1970
Sameinað þing: 45. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 927 í D-deild Alþingistíðinda. (3899)

925. mál, framhaldsdeildir gagnfræðaskólanna

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Eins og hv. þm. er kunnugt, voru gefin út brbl. 27. ágúst 1969, um breyt. á lögum nr. 48 1946, um gagnfræðanám. Fólu þau í sér heimild handa menntmrn. til að leyfa að stofna til allt að tveggja ára framhaldsdeilda við gagnfræðaskóla, er taki við nemendum að loknu gagnfræðanámi eða landsprófi miðskóla. Fjórum slíkum framhaldsdeildum var komið á fót haustið 1969, á Akranesi, Akureyri, í Neskaupstað og Reykjavík. Alls hófu nám í þessum deildum 170 nemendur, en eitthvað mun hafa helzt úr lestinni, og munu 160 nemendur ganga undir vorpróf. Brbl. þessi voru lögð fyrir Alþ., er það kom saman í haust. Jafnframt var setning reglugerðar undirbúin, þannig að hægt væri að gefa hana út þegar er Alþ. hefði samþykkt lögin. Frv. til staðfestingar á brbl. var samþ. í Ed. Alþ. í gær. Lögin voru staðfest af forseta Íslands í morgun og reglugerðin þá jafnframt gefin út. Þess skal getið, að í reglugerðinni er ekki ákveðið um rétt framhaldsdeildanemenda til að setjast í Kennaraskóla Íslands og stafar þetta af því, að löggjöfin um Kennaraskóla Íslands er í endurskoðun. Á þessari stundu er þess vegna ekki fært að setja reglugerðarákvæði um tengsl framhaldsdeildanna við Kennaraskólann, en það mun verða gert eins fljótt og unnt er. En tiltölulega fáir nemendur framhaldsdeildanna, hér í Reykjavík a.m.k., munu hafa valið sér kjörsvið, sem sé miðað við áframhaldandi nám í Kennaraskólanum. Reglugerðin er stutt, og málið upplýsist bezt með því, að ég lesi hana upp, með leyfi hæstv. forseta:

Reglugerð um réttindi nemenda úr framhaldsdeildum gagnfræðaskólanna til inngöngu í aðra skóla.

1. Nemendur, sem lokið hafa prófi 1. eða 2. árs í framhaldsdeildum gagnfræðaskólanna, skulu að öðru jöfnu hafa forgangsrétt til inngöngu í sérskóla og framhaldsskóla umfram umsækjendur með skemmra almennt undirbúningsnám.

2. Auk þeirra almennu réttinda, sem um getur í 1. gr., skulu próf frá framhaldsdeildum gagnfræðaskólanna veita þann rétt til inngöngu í einstaka framhaldsskóla sem hér segir:

Tækniskóli Íslands: Lokapróf fyrra árs á tæknikjörsviði veitir rétt til inngöngu í síðari helming undirbúningsdeildar, enda fullnægi umsækjandi kröfum skólans um verklegan undirbúning. Sérstakar lágmarkskröfur um einkunnir: Í fyrsta lagi, meðaleinkunn í öllum greinum 5,0. Meðaleinkunn í raungreinum (tvígild): stærðfræði, eðlisfræði, efnafræði 5,0. Lokapróf síðara árs á tæknikjörsviði veitir rétt til inngöngu í raungreinadeild. Lágmarkskröfur um einkunnir: Í fyrsta lagi, meðaleinkunn í öllum greinum 6,0; í öðru lagi, meðaleinkunn í raungreinum 6,0, í þriðja lagi, einkunn í einstökum raungreinum 3,0.

Iðnskólar: Lokapróf fyrra árs, án tillits til kjörsviðs, veitir rétt til styttingar iðnskólanáms um fjóra mánuði, enda hafi viðtökuskóli að dómi menntmrn. tök á að skipuleggja kennslu í sérgreinum og faggreinum í samræmi við slíka styttingu námstímans. Lágmarkskröfur um einkunnir engar. Lokapróf síðara árs, án tillits til kjörsviðs, veitir rétt til styttingar iðnskólanáms um átta mánuði með sömu skilyrðum og greinir hér að framan.

Vélskóli Íslands: Lokapróf fyrra árs á tæknikjörsviði veitir rétt til inngöngu í 1. bekk (2. stigs) skólans án inntökuprófs, enda fullnægi umsækjandinn kröfum skólans um verklega þjálfun. Lágmarkskröfur um einkunnir engar. Lokapróf síðara árs veitir ekki réttindi umfram þau próf, sem lokapróf fyrra árs veitir.

Bændaskólinn á Hvanneyri: Lokapróf síðara árs, án tillits til kjörsviðs, veitir rétt til inngöngu í framhaldsdeild skólans að loknu búfræðiprófi með tilskilinni lágmarkseinkunn. Lágmarkskröfur um einkunnir: Meðaleinkunn í öllum greinum 6,0.

Garðyrkjuskóli ríkisins að Reykjum í Ölfusi: Lokapróf fyrra árs, án tillits til kjörsviðs, veitir rétt til að hefja nám á öðru námsári skólans, enda fullnægi umsækjandi kröfum skólans um verklega þjálfun. Lágmarkskröfur um einkunnir eru engar. Lokapróf síðara árs veitir eigi réttindi til styttingar námstímans umfram þau, sem lokapróf fyrra árs veitir.

Hjúkrunarskóli Íslands: Próf á hjúkrunarkjörsviði veitir forgangsrétt til inngöngu í skólann umfram umsækjendur með annað jafnlangt undirbúningsnám. Lágmarkskröfur um einkunnir engar.

Menntaskólar: Lokapróf fyrra árs, án sérstakra lágmarkseinkunna, veitir rétt til að hefja nám í menntaskóla á fyrsta námsári, en sé um að ræða að hefja nám á öðru námsári í menntaskóla, skal eftirtöldum skilyrðum fullnægt: a) Að skólastjóri eða námsráðgjafi mæli sérstaklega með umsækjanda til menntaskólanáms, og séu meðmælin send beint til viðtökuskóla. b) Að umsækjandi standist próf við inntökuskólann í þeim greinum, sem kenndar eru á fyrsta námsári hans, en ekki í framhaldsdeildum gagnfræðaskólanna. c) Að umsækjandinn afli sér viðbótarkennslu í þeim greinum, þar sem viðtökuskóli telur að námsefni framhaldsdeilda gagnfræðaskólanna nægi ekki til undirbúnings undir áframhaldandi nám í menntaskóla, og skal umsækjandinn í þeim tilgangi eiga aðgang að haustnámskeiðum þeim, sem haldin eru við menntaskólana, með sömu kjörum og reglulegir nemendur menntaskólanna. Heimilt er viðtökuskóla að fresta prófum þeim, sem um getur í b-lið, ef um er að ræða greinar, sem ekki teljast beinn undirbúningur undir nám á öðru námsári skólans. Lágmarkskröfur um einkunnir: Meðaleinkunn í öllum greinum 5,50, einkunn í hverri grein 4,0. Lokapróf síðara árs veitir eigi réttindi til styttingar námstímans umfram það, er lokapróf fyrra árs veitir.

3. Þegar tiltekin eru einkunnamörk, er jafnan átt við einkunn á vorprófi.

4. Ákvæðin um Garðyrkjuskólann og Bændaskólann á Hvanneyri í þessari reglugerð eru sett í samráði við landbrn.

5. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt lögum frá 15. apríl 1970, um breyt. á lögum nr. 48 7. maí 1946, um gagnfræðanám, öðlast þegar gildi.

Með þessu vona ég, að fsp. sé svarað.