10.12.1969
Neðri deild: 22. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 26 í B-deild Alþingistíðinda. (39)

95. mál, happdrætti fyrir Ísland

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Ég skal gjarnan taka undir þau orð hæstv. fjmrh. að tefja ekki mál þetta með miklum umr., ef það er vilji hv. þd. og þingsins, að mál þetta nái fram að ganga nú að þessu sinni. En vegna þeirra orða, sem komu fram í ræðu hans og reyndar af öðrum orðum um þær stórkostlegu byggingarframkvæmdir, sem fram undan eru hjá Háskóla Íslands og enginn efar, að nauðsynlegar eru, þá finnst mér rétt að draga fram um leið, að það eru auðvitað stórkostlegar framkvæmdir fram undan hjá þeim mörgu aðilum í þessu þjóðfélagi, sem nýta sams konar tekjustofn og Háskóli Íslands, þ.e. happdrætti.

Í dag er Happdrætti Háskóla Íslands með útgefna happdrættismiða, sem gefa þeim, ef það nýtist að fullu tæpar 193 millj. kr. í veltu. Þeir fengu heimild hjá þinginu á s.l. vetri til þess að bæta við þessa veltu upphæð, sem nemur tæpum 87 millj. kr. Þá hafa þeir um nokkur ár ekki notað heimildir, sem hefðu getað gefið þeim tæpar 22 millj. kr. Samtals er þetta velta upp á rúmar 280 millj. kr., ef þeir miðar væru uppseldir, sem forráðamenn Happdrættis Háskólans gætu haft til ráðstöfunar í dag.

Í framhaldi af þeim orðum mínum, sem ég sagði hér áðan, að það væru fleiri aðilar í þjóðfélaginu, sem notuðu happdrætti sér til styrktar, þá vil ég aðeins benda hv. þm. t.d. á samtök eins og Hjartavernd, Íþróttasamband Íslands, Krabbameinsfélag Reykjavíkur og í rauninni heildarsamtök krabbameinsfélaganna, Blindrafélagið, Sjálfsbjörg, Styrktarfélag vangefinna, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, auk tveggja næst stærstu happdrættanna, SÍBS og DAS, en öllum er kunnugt um, hvert ágóði þeirra rennur.

Nú held ég, að það fari ekki á milli mála, að þegar slíkt forgangshappdrætti með jafnstórkostlegri aukningu og hér er um að ræða tekur til starfa, þá mun þetta hafa stórkostleg áhrif á afkomu hinna happdrættanna. Og ég held, að hv. fjhn. þessarar d. ætti að reyna að gera sér nokkra grein fyrir því, hvort og hve mikil áhrif þetta mun hafa á starfsemi hinna aðilanna, þeirra aðila, sem ég hef hér þegar drepið á, að ég tali nú ekki um alla aðra, stjórnmálaflokka og önnur slík samtök, sem einnig nota þessa tekjuöflunarleið og hvort það muni ekki verða sívaxandi þrýstingur á hv. Alþ. á næstunni til þess að standa undir, ekki aðeins nauðsynlegum, heldur mundi ég segja lífsnauðsynlegum aðgerðum á þeim sviðum, sem þessi samtök hafa unnið að undanförnu. Ég vildi því mjög gjarnan, bæði af þessu tilefni og öðru, að hv. n. gæfi deildinni nokkrar upplýsingar við 2. umr. og ég held, að þær séu ekki flóknari en svo, að það sé mjög auðvelt fyrir n. að afla þeirra hjá þeim, sem hafa með Happdrætti Háskólans að gera. Það er í fyrsta lagi: Hvað á Happdrætti Háskólans mikið í sjóði nú? Og vegna þess að okkur bárust upplýsingar á s.l. vetri um áætlaðar tekjur happdrættisins fyrir árið 1968, þá er auðvitað mjög nauðsynlegt að fá nú að vita, því að reikningar þess árs hljóta að liggja fyrir nú, hverjar tekjurnar hafi verið fyrir árið 1968 og einnig, hvað Happdrætti Háskólans áætlar, að tekjur þess verði miklar eftir væntanlega breytingu, því að það er auðvitað þýðingarmikið fyrir þm., þegar þeir hafa í huga þær miklu framkvæmdir, sem vissulega eru nauðsynlegar á vegum Háskóla Íslands á næstu árum, að geta gert sér grein fyrir því, hvað forráðamenn happdrættisins séu bjartsýnir í þessari peningaöflun sinni. Svo mætti reyndar spyrja forráðamenn Happdrættis Háskóla Íslands að því um leið, hvort þeir hefðu þá skoðun, að slíkt happdrætti hefði ekki áhrif til hins verra fyrir önnur happdrætti landsins, þegar við horfum á þá staðreynd, að það hefur verið og er enn mun minni kaupgeta hjá almenningi heldur en var fyrir a.m.k. tveimur árum, þannig að umleikis fé fólks til þess að kaupa happdrættismiða hlýtur að vera minna en þá.

Að síðustu vildi ég svo víkja nokkrum orðum að þeirri skoðun, sem komið hefur oftar en einu sinni fram hjá bæði blöðum og á opinberum vettvangi, þess efnis, að virðingin fyrir Alþ. hefði farið minnkandi á undanförnum árum og hefur verið bent á ýmsar ástæður til þess, að svo væri. Mér satt að segja krossbrá, þegar ég varð þess var, að þetta mál var ekki búið í 2. umr. í fyrri d., þegar sjálfir forráðamenn Háskóla Íslands eru farnir að auglýsa þessa breytingu sem staðreynd á næsta ári, þó að hvorug deild Alþ. sé búin að fjalla um það. Þetta finnst mér út af fyrir sig vera atriði, sem er vítavert og ekki samboðið þeim mönnum, sem þarna eru forráðamenn.