08.04.1970
Sameinað þing: 43. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 936 í D-deild Alþingistíðinda. (3910)
201. mál, nefndir
Forseti (BF):
Út af þessum umr. um þingsköp vill forseti taka fram, að það er að sjálfsögðu rétt, svo sem fram hefur komið í máli hæstv. forsrh., að fsp. skulu vera skýrar og um afmörkuð efni og mál, og við það miðaðar, að hægt sé að svara þeim í stuttu máli, sbr. 31. gr. þingskapa. Allir hv. þm. viðurkenna sjálfsagt, að oft hefur orðið misbrestur á þessu. Forseti vill aðeins í því sambandi taka fram, að um það er ekki við aðra að sakast en hv. Alþ. sjálft. Það er Alþ., sem tekur ákvörðun um, hvort fsp. skuli leyfðar samkv. því, sem segir síðar í tilvitnaðri grein þingskapa.
Vegna þeirra umr., sem hafa orðið um þessa ákveðnu fsp., hefur forseti fyrir sitt leyti ekkert á móti því að fresta að bera hana undir atkv. þingsins, og athuga í millitíðinni, hvort fyrirspyrjandi vill eitthvað breyta henni eða afmarka hana nánar, þannig að hún fullnægi betur ákvæðum 31. gr. þingskapa um það, hvernig fsp. skuli vera. En forseti ítrekar, að það er þingið sjálft, sem á að skera úr því umræðulaust, eins og segir í sömu grein, hvort fsp. skuli leyfðar eða ekki.