22.04.1970
Sameinað þing: 46. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 941 í D-deild Alþingistíðinda. (3919)

201. mál, nefndir

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Mér skilst, að það sé nú betra að vera stuttorður, ef eitthvað á að komast áfram með dagskrána, og skal því ekki eyða dýrmætum tíma Alþingis í framsögu fyrir þessari fsp., en flm. hennar er ekki á þingi núna, eins og menn vita. Fsp. er á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta: „Hvaða nefndir eða ráð eru skipuð af ráðherrum og kosin af Alþingi? Hverjar af þessum nefndum eru fastanefndir? Enn fremur óskast upplýst: 1. Hve fjölmennar eru nefndirnar? 2. Hvert er verkefni þeirra? 3. Hver er þóknun nefndarmanna og annar kostnaður við nefndastörfin?“

Ég sé ekki ástæðu til þess að fylgja þessu úr hlaði með neinni ræðu, og læt þetta duga.