22.04.1970
Sameinað þing: 46. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 957 í D-deild Alþingistíðinda. (3935)

928. mál, ríkisvegir í Reykjavík

Fyrirspyrjandi (Lúðvík Jósefsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að spyrja hæstv. samgrh. um eftirfarandi: „Hve langir eru vegir innan borgarmarka Reykjavíkur, sem ríkissjóður á að leggja og annast rekstur á samkv. vegalögum? Hvað er áætlað, að þessir vegir kosti fullbúnir? Hvað hefur ríkið þegar lagt í þessa vegi? Hvað kosta brýr á þessum vegum?

Ég hef oft rekið mig á það, að mikill misskilningur er á ferðinni hjá mönnum um það, hvernig sé háttað kostnaði við vegagerð hér innan borgarmarka Reykjavíkur. Sjálfur hef ég ekki getað áttað mig á því til fullnustu, hvaða vegi hér er um að ræða, og ég tel því, að hér sé um svo þýðingarmikið mál að ræða, að ástæða sé til þess að fá upplýsingar um það á Alþ., og vænti ég, að hæstv. ráðh. sjái sér fært að gera það.