22.04.1970
Sameinað þing: 46. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 958 í D-deild Alþingistíðinda. (3937)

928. mál, ríkisvegir í Reykjavík

Fyrirspyrjandi (Lúðvík Jósefsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir upplýsingarnar. Ég skildi svör hans þannig, að lengd þeirra vega, sem ríkið á að sjá um lagningu á og rekstur á innan borgarmarka Reykjavíkur væri 15.1 km og áætlaður stofnkostnaður þeirra, eða það að gera vegina eins og áætlanir eru um, mundi vera 365 millj. kr., en auk þess þyrfti ríkið að leggja fram í brýr á þessu svæði 27.5 millj. kr., og búið væri að verja í þessu skyni til veganna 64.8 millj. kr. Ég endurtek sem sagt þakklæti mitt til hæstv. ráðh. fyrir þessar upplýsingar, sem eru hinar merkilegustu.