03.02.1970
Efri deild: 48. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 455 í B-deild Alþingistíðinda. (402)
115. mál, iðja og iðnaður
Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Ég skal nú ekki lengja þessar umr. En mér finnst ástæða til þess að vekja athygli á því, sem mér finnst, að nokkurs misskilnings gætir í viðhorfi þm. samkv. því, sem fram hefur komið í ræðu hv. síðasta ræðumanns. Þessi lög og lög um verzlunaratvinnu eða frv. um breyt. á þeim, eru ekki flutt til þess að samræma löggjöf okkar ákvæði EFTA–samningsins, heldur eru þau flutt til þess að verja okkur gegn hugsanlegum áhrifum af ákvæðum EFTA–samkomulagsins, sem ég og sagði í minni fyrri ræðu. Ég hefði nú talið það óþarft, en að tilhlutan ríkisstj. er þetta nú samt sem áður sett og þetta gerðu Norðmenn. Þetta hefur verið rætt við EFTA–ráðið, og mundu það ekki teljast neinar vanefndir á skuldbindingum okkar gagnvart samningnum, ef svona ákvæði væru fyrir hendi.
Í öðru lagi er það ekki rétt, að hér sé verið að afsala sér meiri rétti til ráðh. heldur en verið hefur, því ef þessi breyting er ekki gerð á l. um iðju og iðnað, hefur ráðh. samkv. þessum l., sem eru í gildi og mundu þá gilda, ef ekki yrði við þeim hróflað, rétt til þess að veita hvaða erlendu fyrirtæki sem er rétt til iðjurekstrar hér á landi, enda þótt útlendingar ættu 100% af hlutafénu. Þetta er sú gildandi löggjöf, sem við búum við, svo að hér er ekki verið að breyta neitt til frá því, sem verið hefur. Hins vegar hefur það verið yfirlýst stefna núv. ríkisstj. að koma til Alþ., þegar svo stendur á, að um meiri háttar mál er að ræða og var því lýst yfir bæði í sambandi við samningana um álverið, þar sem Íslenzka álfélagið er, eins og kunnugt er, eign erlends fyrirtækis eða hlutaféð allt eign Alusuisse og einnig í sambandi við Kísiliðjuna, enda þótt útlendir ættu þar innan við helming af hlutafé, eða 30–35%, ég man nú ekki, hvað það var nákvæmlega.
En þetta ætla ég hins vegar ekki að hafa fleiri orð um, en mér finnst, að menn verði að gera sér grein fyrir þessum efnisatriðum málsins.