03.02.1970
Efri deild: 47. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 459 í B-deild Alþingistíðinda. (426)
116. mál, verslunaratvinna
Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Ég lagði þetta frv. fyrir þingið í Nd., en frá áramótum hefur orðið verkaskipting, eins og kunnugt er, þannig að málefni um verzlunaratvinnu heyra undir viðskrh. og ætti hann því formlega að mæla fyrir frv. hér og enda ætlaði hann að gera það, en hann hefur ekki áttað sig á því, hve störf d. hafa gengið fljótt. Ég mun því hlaupa í skarðið.
Þetta frv. er í raun og veru flutt í nánum tengslum við frv. um breyt. á l. um iðju og iðnað og hefur það þann sama megintilgang, að styrkja aðstöðu stjórnvalda til þess að tryggja það, að atvinna í verzlunar rekstri og þá fyrst og fremst erlendra aðila hér á landi geti ekki átt sér stað gegn vilja íslenzkra stjórnvalda. Þetta er meginatriði frv. og tel ég, að ekki þurfi frekar orðum um það að fara nú. Þetta hefur töluvert verið rætt áður í sambandi við EFTA–málin í Sþ. og þm. kunnugt, um hvað er hér að ræða.
Ég legg til, herra forseti, að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og þá til sömu n. og hinu frv., þ.e. hv. iðnn.