21.10.1969
Neðri deild: 4. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 478 í B-deild Alþingistíðinda. (466)

9. mál, Rafmagnsveitur ríkisins

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Hv. 6. þm. Reykv. vitnar í samtal, sem hann átti við framkvæmdastjóra Swiss Aluminium, Meyer að nafni, fyrir 2–3 árum. Ég efast ekkert um að þetta samtal hafi átt sér stað og það væri nokkuð langt gengið að segja, að hv. 6. þm. Reykv. færi þarna alveg rangt með. En mér virðist þetta geta nokkuð passað, þegar Meyer talar um, að þetta sé lægra raforkuverð, sem samið er um hér, heldur en annars staðar og hann segir einnig, að það sé alveg einsdæmi, hvernig samið hafi verið um skattana hér á landi. Það er alveg rétt, því um leið og þeir fá lægra orkuverð hér heldur en gerist, þá borga þeir hærri skatta. Þeir borga hér ákveðið framleiðslugjald af hverju tonni og það fer ekkert á milli mála, hvað þeir framleiða mikið, en annars staðar borga þeir af nettóhagnaði, sem alltaf verður óverulegur, eftir þeim afskriftareglum, sem þeir hafa. Þetta gæti þess vegna farið nokkuð saman.

Hv. þm. sagðist halda, að þetta væru lögfestir samningar, sem gerðir hefðu verið við erlend stóriðjufyrirtæki, en tók ekki dýpra í árinni, en eigum við ekki bara að bera þessa samninga alveg nákvæmlega saman og hætta að deila um þetta svona hvað eftir annað, án þess að hafa samningana fyrir framan okkur? Við höfum allir einu sinni lesið þessa samninga og kannske tvisvar. Við höfum einnig kíkt í norsku samningana. En þetta þarf að rifja upp til þess að geta rökrætt um þetta. Ég hef þá hugmynd, að okkar samningur sé a.m.k. eins hagstæður og sá norski. En við skulum, af því að það er skynsamlegast fyrir okkur, bíða með fullyrðingar í þessu efni, þangað til við höfum rifjað þessa samninga upp. Við eigum það sameiginlegt, að við höfum ekki lesið þessa samninga síðustu mánuðina a.m.k. og við þurfum að rifja þá upp til þess að geta komið hér með alls kyns fullyrðingar.