15.12.1969
Neðri deild: 25. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 480 í B-deild Alþingistíðinda. (471)
9. mál, Rafmagnsveitur ríkisins
Frsm. (Pálmi Jónsson):
Herra forseti. Fjhn. þessarar hv. d. hefur haft frv. þetta til athugunar og rætt það allýtarlega á 5 fundum. Það kom fram við 1. umr. frv., að það er flutt til staðfestingar á brbl. frá 23. júní s. l. og við þá umr. var einnig greint frá því, af hvaða rótum það er runnið, að nauðsynlegt þótti að setja þessi brbl. N. varð eigi að síður sammála um að leita nánari upplýsinga um hag og rekstur Rafmagnsveitna ríkisins og hvaða framvindu mætti vænta um rekstur þeirrar stofnunar á næstu árum. N. kvaddi því á sinn fund rafmagnsveitustjóra ásamt nýskipaðri stjórn Rafmagnsveitna ríkisins og gáfu þeir aðilar n. margháttaðar upplýsingar og létu henni ýmis gögn í té. Meðal þeirra gagna voru ágrip af rekstrarreikningi Rafmagnsveitnanna frá 1968, rekstraráætlanir yfir árin 1969—1970, skrá um vanskilalán og ýmis fleiri atriði í sambandi við hag og rekstur stofnunarinnar. Eftir þessum gögnum kemur það í ljós, að á árinu 1968 varð 1.6 millj, kr. halli á rekstri Rafmagnsveitna ríkisins. Eru þá ekki með í þeim tölum vanskilalán stofnunarinnar, m.a. við orkusjóð, sem frá árunum 1967–1968 nema samtals 19.2 millj. kr. Þá eru þar ekki meðtalin vanskil á tollalánum, sem eru frá árunum 1966–1968 samtals 33.2 millj. kr., og í áætlun fyrir árin 1969 og 1970 13.8 millj. kr., eða samtals á þessum árum öllum 47 millj. kr.
Nú er það svo með tollalánin, að það er í rauninni óafgreitt mál, hvernig með þau verður farið, en fordæmi munu vera fyrir því, að ríkissjóður hafi gefið eftir tolla af vörum og varningi til Rafmagnsveitna ríkisins.
Eftir þeim rekstraráætlunum, sem fyrir liggja varðandi árið 1969, sem nú er senn á enda runnið, þá er þar reiknað með 3 millj. kr. halla og þá með því að inn í rekstur þess árs sé komin sú hækkun verðjöfnunargjaldsins, sem frv. þetta gerir ráð fyrir. Við rekstraráætlun þessa árs var einnig tekið tillit til þeirra sparnaðartill., sem RARIK–nefndin svokallaða, sem skipuð var snemma á þessu ári til að endurskoða hag og rekstur Rafmagnsveitna ríkisins, gerði till. um á seinni hluta síðasta vetrar og námu milli 19 og 20 millj. kr. Þess er þó þar að gæta, að þar var ekki nema að litlu leyti um beinan sparnað að ræða, heldur að miklu leyti endurskoðun á áætlun, þannig að áætlaður rekstrarkostnaður var skorinn niður, en tekjumegin var heildsala og smásala rafmagns hækkuð. Hinn beini sparnaður eftir þessum till. var mjög lítill. Þessi n. mun um þessar mundir vera um það bil að skila áliti, en fjhn. fékk ekki í hendur gögn frá henni og ég hef ekki séð þau enn. En þeirra mun að vænta innan tíðar.
Þessari versnandi afkomu Rafmagnsveitna ríkisins skal ég ekki fara langt út í að lýsa né af hverju hún stafar. Það var gert nokkuð við 1. umr. frv. Það má þó e.t.v. minna á stærstu liðina, sem munur er á milli ára 1968 og 1969. Þar eru t.d. vextir og afborganir af lánum, sem hækka á milli þessara tveggja ára um 36 millj. kr. Það verkar vissulega mjög mikið, að afborganir og vextir af þessum lánum, sem eru að miklu leyti erlend lán, hækka vegna gengislækkunarinnar síðustu og einnig vegna þess, að ný lán hafa verið tekin, á árinu 1968 20 millj. kr. og á árinu 1969 40 millj. kr. Einnig hækkar olíuverð o.fl. í samræmi við verðlagsþróun í landinu. Tekjuliðirnir hækka einnig verulega og þá fyrst og fremst orkusalan, bæði í heildsölu og smásölu, eða samtals um 68 millj. kr. milli þessara tveggja ára.
Á árinu 1970 er gert ráð fyrir í þessum áætlunum, að reksturinn verði í jafnvægi, en lengra ná áætlanir Rafmagnsveitnanna ekki. En eftir þeim upplýsingum, sem stjórn og rafmagnsveitustjóri gáfu n., má frekar vænta þess, ef ekki verður um stórfelldar breytingar á verðlagsþróun innanlands að ræða, að reksturinn færist í jákvæða átt heldur en hitt. Þessi hækkun verðjöfnunargjaldsins, sem er 100% og nemur á ársgrundvelli um 35 millj. kr., mun að dómi Rafmagnsveitna ríkisins leiða til þess, að smásöluverð rafmagns til notenda hækki um 4–5%. Þó að hér sé um verðjöfnunargjald að ræða, þá verkar það ekki mjög mikið til þess að jafna verð á rafmagni til notenda í landinu. Sá verðmunur stendur óbreyttur í krónutölu, en hins vegar vegur það töluvert hlutfallslega, þannig að verðmismunurinn er mun minni hlutfallslega eftir en áður og er gjaldið því spor í þá átt að jafna þennan verðmun.
Í 6. gr. þessa frv. er ákvæði þess efnis, að ráðh. sá, sem fer með raforkumál, skipar 3 menn til þess að eiga sæti í stjórn Rafmagnsveitna ríkisins. Hér er um nýmæli að ræða. Áður hefur þessi stofnun ekki lotið sérstakri stjórn, heldur verið stjórnað af rafmagnsveitustjóra undir yfirstjórn raforkumrh. Á hinum síðustu misserum hefur þess nokkuð orðið vart, að gagnrýni hafi gætt á því skipulagi, sem ríkir í stjórn rafveitumála í landinu. Hefur þar verið um að ræða spurninguna um sterka yfirstjórn Rafmagnsveitna ríkisins annars vegar, en aukna aðild sveitar– og héraðsstjórna og í sumum tilfellum aukið sjálfræði einstakra landshluta, að því er varðar þeirra eigin raforkumál, hins vegar. Um þessi atriði urðu m.a. töluverðar umr. á raforkumálaráðstefnu Sambands ísl. sveitarfélaga fyrir nokkrum vikum. Komu þar fram óskir frá fulltrúum einstakra landshluta, sem gengu mislangt í þessum efnum. Þeir, sem lengst vildu ganga, vildu taka stjórn þessara mála að verulegu leyti úr höndum Rafmagnsveitna ríkisins og í eigin hendur. Fulltrúar annarra landssvæða vildu fá beina aðild að stjórn Rafmagnsveitnanna og enn aðrir virtust því hlynntir, að skipað yrði eins konar fulltrúaráð héraðsstjórna og héraðsrafveitna til þess að fylgjast með og hafa áhrif á stjórn Rafmagnsveitna ríkisins. Með ákvæðum 6. gr. þessa frv. er vissulega gengið nokkuð til móts við þau sjónarmið, sem hér hefur verið lýst og þarna hafa komið fram, m.a. með því að einn úr þriggja manna stjórn Rafmagnsveitnanna skuli skipaður samkv. till. Sambands ísl. rafveitna, sem er samband héraðsrafveitna í landinu. N. ræddi þessi atriði nokkuð og var efins í því, að með ákvæðum 6. gr. frv. væri fundin frambúðarlausn þessara mála. T.d. gerir frvgr. ráð fyrir því, að stjórnin sé skipuð án takmörkunar á skipunartíma og er það mál, sem vissulega er til athugunar. N. var þó sammála um að gera ekki að svo komnu máli aðrar aths. við 6. gr. frv. en þær, sem hér hafa komið fram í framsögu, þar sem hún telur næsta líklegt, að þessi atriði verði tekin til nánari athugunar síðar, þegar betri undirbúningur hefur farið fram.
N. flytur eina brtt. við frv. Hún er þó ekki efnisleg, heldur einungis formleg. Það er við 7. gr., að í stað þess, að lög þessi öðlist gildi 1. júlí 1969, komi: „Lög þessi öðlast þegar gildi.“ Brbl. tóku gildi 1. júlí s.l. og gilda þar til þetta frv. hefur verið afgreitt. Ef það nær samþykki hv. Alþ., er eðlilegt að þau lög, sem með því eru samþ., taki þá þegar gildi. Ef það verður fellt, þá falla jafnframt brbl., og er því gildistakan sniðin eftir því.
Að öðru leyti mælir n. einróma með því, að frv. verði samþ. óbreytt.