10.11.1969
Neðri deild: 12. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 486 í B-deild Alþingistíðinda. (488)

15. mál, menntaskólar

Frsm. (Benedikt Gröndal):

Herra forseti. Frv. til l. um menntaskóla var flutt á síðasta þingi og var þá vísað til menntmn. þessarar hv. d. Menntmn. tók frv. þá til rækilegrar athugunar og hafði samband við alla aðila, sem það beinlínis varðar. N. gerði margar brtt. við frv. og voru þær samþ. hér í d.

Nú hefur frv. verið endurflutt og hafa verið gerðar á því þær breytingar, sem óskað var eftir og samþ. voru í n. á síðasta þingi. Þess vegna hefur menntmn. ekki séð ástæðu til þess að hefja nú aftur ýtarlega athugun á frv., en vill greiða fyrir framgangi þess með því að afgreiða það fljótt. Þó gerir n. tvær brtt., sem ekki eru um efnisatriði, en þær eru á þskj. 72.

Önnur brtt. er orðalagsbreyting varðandi yfirkennara. Í 13. gr. eru taldar upp þær stöður, sem eiga að vera við menntaskóla. Samkv. ósk menntaskólakennara var þar bætt inn yfirkennurum, sem hafa gegnt fullri kennslu við menntaskóla í 16 ár, en að sjálfsögðu er ekki ætlunin, að neinum menntaskóla beri skylda til þess að ráða menn, sem hafa kennt lengi, heldur er aðeins verið að halda við hefð, sem tíðkazt hefur við menntaskólana til þess.

Síðari brtt. er um að breyta orðalaginu „frjálsra valgreina“ í „valgreina“, þ.e. sleppa orðinu „frjálsra“. Það var gert í öllu frv. s.l. vor, en þá hefur sézt yfir þetta eina atriði.

Með þessum tveimur smávægilegu breytingum leggur menntmn. einróma til, að frv. verði samþ.