05.03.1970
Efri deild: 51. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 492 í B-deild Alþingistíðinda. (501)
15. mál, menntaskólar
Frsm. (Auður Auðuns):
Herra forseti. Menntmn. hefur rætt þetta frv. til l. um menntaskóla ýtarlega á mörgum fundum. Eins og kemur fram í nál., hafa mætt á nefndarfundum nokkrir þeir aðilar, sem unnu að samningu frv., nánar tiltekið skólameistarinn á Laugarvatni, rektor Menntaskólans við Hamrahlíð og ráðuneytisstjórinn í menntmrn., og enn fremur hafa mætt á fundi fulltrúar og þ. á m. formaður Félags menntaskólakennara, en áður hafði n. borizt erindi frá félaginu.
Þetta frv. hefur legið lengi fyrir Alþ., bæði á síðasta þingi og nú þessu. Fyrir þetta þing var frv. lagt í þeirri mynd, sem það hafði eftir meðferð þess í hv. Nd. í fyrra, en þar voru gerðar á því ýmsar breytingar. Þm. hafa þess vegna haft góðan tíma til þess að kynna sér frv. Líka fylgdi hæstv. menntmrh. því úr hlaði í fyrra með ýtarlegri framsöguræðu og nú aftur á þessu þingi, svo að mér sýnist ekki ástæða til þess að fara að rifja upp enn einu sinni efni frv. almennt né heldur í einstökum greinum. En ég vil aðeins segja það, að ég hygg, að þm. yfirleitt séu þeirrar skoðunar, að þetta frv. miði að miklum umbótum á menntaskólastiginu. Það er þó í þessu sambandi vert að geta þess, að sum þau nýmæli, sem frv. hefur að geyma, eru þegar komin til framkvæmda í ýmsum menntaskólanna.
Eftir rækilega athugun á frv. voru nm. sammála um það, að gera þyrfti á því nokkrar breytingar, og flytur n. um það brtt. á þskj. 374. Ég skal þá strax snúa mér að því að gera grein fyrir þessum brtt. n.
Sú gr. frv., sem hvað mest var rædd í n., var 13. gr. þess. Og við þá gr. er 1. brtt. menntmn. í þremur stafl. Ég skal víkja fyrst að stafl. a, sem er við 1. mgr. 13. gr. Í 2. mgr. 13. gr. frv. segir, að við hvern menntaskóla skuli skipað í þau störf, sem svo eru talin upp. N. þótti einsætt, að það hlyti að velta bæði á stærð skólanna og ýmsum öðrum aðstæðum, hvort og hvenær nauðsynlegt væri að ráða í öll þau störf, sem talin eru upp í gr. Það ríkja t.d. allt önnur viðhorf, þegar hugsað er um lítinn skóla, við skulum segja Ísafjarðarskólann, og svo aftur stærstu menntaskólana. N. taldi rétt, að því væri þá sniðinn stakkur með ákvæðum í reglugerð, hvenær ráða skyldi það starfslið, sem upp er talið í 13. gr. Þá fannst n. líka nokkuð óeðlilegt, að það væri skipað í öll þessi störf. Í frv. er gert ráð fyrir, að það megi fela kennurum, og þá hverjum einum, fleiri en eitt af þessum störfum samtímis. Það kæmi þá væntanlega til lækkunar á kennsluskyldu eða niðurfellingar að öllu, allt eftir því hve viðamikil þau störf yrðu, sem kennurunum yrðu falin. Það mundi líka vera heppilegt að hafa ráðningu í sum þessara starfa tímabundna. Það mun einnig hafa vakað fyrir þeim, sem stóðu að samningu frv., og sú skoðun kom greinilega fram á nefndarfundi hjá þeim fulltrúum, sem þar mættu af hálfu menntaskólakennaranna. Þessi tvö atriði, sem ég nú nefndi, eiga við a-lið í 1. brtt. menntmn.
Þá kem ég að stafl. b í 1. brtt., sem á við A-lið 13. gr. frv., og þar er lagt til, að 4. tölul. falli niður, en hann er svo hljóðandi í frv.: „Yfirkennarar, enda hafi þeir gegnt fullri kennslu við menntaskóla í 16 ár, en eru þó eigi deildarstjórar.“ Það liggur alveg ljóst fyrir, að menntaskólakennarar nefnast yfirkennarar, þegar þeir hafa gegnt fullu starfi í 16 ár, án þess að nokkur breyting verði á störfum þeirra eða launaflokkshækkun fylgi. Það sýnist því allsendis óeðlilegt að telja upp yfirkennara í hópi þeirra starfa, sem ráða skal í, því að starfsheitið kemur af sjálfu sér eftir 16 ára starf. Ég mun síðar koma aftur að yfirkennurunum.
Þá er það c-liður í 1. brtt., sem á við B-lið 13. gr. í 1. tölul. Í B-lið 13. gr. segir: „Fulltrúi, er sé skólastjóra og yfirkennara til aðstoðar við dagleg störf.“ Brtt. n. er sú, að í stað orðsins „yfirkennara“ komi „aðstoðarskólastjóra“. Þetta er nánast leiðrétting, sem mönnum hefur yfirsézt, eftir að þessum lið hafði verið breytt í meðförum þingsins í fyrra. Þá hét sú staða, sem nú er í frv. kölluð aðstoðarskólastjórastaða, yfirkennarastaða. Sem sé, brtt. er einungis leiðrétting til samræmingar við þá breytingu.
2. brtt. n. er við 14. gr. og er, eins og þar segir, um, að á eftir 1. mgr. komi ný mgr., svo hljóðandi: „Þeir kennarar, er gegnt hafa fullri kennslu við menntaskóla í 16 ár, hljóta starfsheitið yfirkennarar.“ Þetta hefur tíðkazt undanfarin ár, án þess þó, eins og ég áður sagði, að nein breyting yrði á störfum kennara við það eða launahækkun fylgdi. Kennarar, sem kennt hafa þetta langan tíma fulla kennslu, bera heitið yfirkennarar, og n. sýndist ekki ástæða til þess að fara að breyta til í þeim efnum. En eins og ég áður sagði, sýndist mönnum eðlilegt, að þetta ætti heima í 14. gr. frv., en ekki í 13., sem fjallar um störf, sem þarf að ráða í.
Um 3. brtt., sem menntmn. flytur, er það að segja, að þar — í 1. mgr. 16. gr. — er um hreint samningsatriði að ræða, samkv. lögum um samningsrétt opinberra starfsmanna, og slíkt ákvæði á því ekki heima í frv.
4. og síðasta brtt. er við 26. gr. frv., en í 26. gr. eru talin upp þau atriði, sem skipa þarf með reglugerð. Sú brtt., sem n. flytur, er til samræmis við þá brtt., sem hún hefur flutt við 1. mgr. 13. gr., sem sé að ákveðið skuli með reglugerð, hvenær nemendafjöldi og annað valdi því, að skipa skuli í störf samkv. 13. gr., og brtt. er um það, að framan við 7. tölul. bætist orðin „ráðningu starfsliðs“, sem ætti þá að taka til þessa ákvæðis í 1. mgr. 13. gr., ef sú brtt. verður samþ.
Ég hef þá gert grein fyrir þeim brtt., sem menntmn. flytur. Það voru að sjálfsögðu mörg önnur atriði til athugunar hjá n., sem komu til álita. Það er rétt í þessu sambandi að láta þess getið, að á s.l. hausti, eins og hv. þdm. mun e.t.v. reka minni til, héldu menntaskólanemar eða þeirra samband sitt þing, og var þar mjög til umr. og athugunar, að tekið yrði upp ákveðið einkunnakerfi, svonefnt stigakerfi, sem tíðkast orðið víða annars staðar, sérstaklega í Svíþjóð, þar sem það er mjög almennt notað í skólakerfinu. Þeirri fsp. var varpað fram, og ég ætla, að það hafi einmitt verið á þeim fundi, þar sem fulltrúar menntaskólakennaranna mættu, hvort frv., eins og það liggur fyrir, mundi á nokkurn hátt hindra það, að unnt yrði að koma þeirri skipan á, ef til kæmi, og kennararnir, sem að sjálfsögðu eru nákunnugir frv. og þekkja manna bezt til í menntaskólunum og hafa þess vegna hvað bezta aðstöðu til þess að gera sér grein fyrir, hvernig þessi lög verða í framkvæmd, þeir töldu, að í frv. væri ekkert það, sem hindraði að taka upp slíkt kerfi.
Ég sé ekki ástæðu til þess að hafa um frv. eða afstöðu n. fleiri orð. Ég vil, eins og áður sagði og fram kemur í nál. á þskj. 373, aðeins endurtaka það, að n. leggur einróma til, að frv. verði samþ. með þessum breytingum, sem nú hefur verið lýst, en einstakir nm. áskilja sér þó rétt til að flytja brtt. við frv. og fylgja brtt., sem fram kynnu að koma.