27.01.1970
Efri deild: 41. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 500 í B-deild Alþingistíðinda. (518)

142. mál, eftirlaun aldraðra í stéttarfélögum

Frsm. (Jón Þorsteinsson):

Herra forseti. Við 2. umr. um þetta mál beindi hv. 11. þm. Reykv. tilmælum til heilbr.- og félmn. um að athuga þetta frv. á nýjan leik milli 2. og 3. umr., og benti hann þar á tiltekin atriði, sem hann áleit, að þyrfti að athuga og jafnvel að gera breytingar á frv. í tilefni af þeim. Í framhaldi af þessum aths. hv. 11. þm. Reykv. barst hv. heilbr.- og félmn. Ed. bréf frá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, dags. 23. þ. m., sem hljóðar þannig, með leyfi forseta:

„Bandalagið leyfir sér að snúa sér til hv. n. í sambandi við frv. til l. um eftirlaun aldraðra félaga í stéttarfélögum, sem nú liggur fyrir Alþingi. Vill Bandalagið benda á, að allmargir starfsmenn, sem hliðstætt eru settir þeim starfsmönnum innan Alþýðusambands Íslands, sem frv. tekur til, munu verða útundan, ef frv. verður samþ. óbreytt. Er hér um að ræða starfsmenn, sem lausráðnir eru hjá ríki og bæjarfélögum, og vafalaust allmarga fleiri menn, sem vegna ýmissa aðstæðna eiga ekki aðildarrétt að Alþýðusambandi Íslands. Bandalagið fer þess hér með á leit, að hv. n. beiti sér fyrir breytingu á frv., sem tryggi þessum mönnum sama rétt til eftirlauna og þeim, er í frv. greinir.“

Haldinn var fundur í heilbr.- og félmn. eftir 2. umr. um frv. og eftir að þetta bréf barst til þess að ræða þetta mál á nýjan leik og athuga sérstaklega, hvort tilefni væri til þess, að n. gerði einhverjar brtt. við frv. Niðurstaðan á þeim nefndarfundi varð sú, að ekki var talið fært, að n. í heild flytti neina brtt. við frv. Hins vegar stóð eftir sem áður óbreyttur sá fyrirvari, sem einstakir nm. höfðu gert. Þeir undirrituðu nál. á þá lund, að þeir áskildu sér rétt til að flytja brtt. við frv. eða fylgja brtt., er fram kynnu að koma. En ástæðan til þess, að n. taldi ekki fært að gera brtt. við frv., er fyrst og fremst sú, að með þessu frv. er verið að efna sérstakt samkomulag, sem ríkisstj. gerði við verkalýðshreyfinguna, á þá lund, að ríkið og Atvinnuleysistryggingasjóður borgi eða kaupi lífeyrisréttindi í tilteknum lífeyrissjóðum, sem yfirleitt er verið að stofna, fyrir aldrað verkafólk í stéttarfélögum innan Alþýðusambands Íslands. Það er að vísu rétt, að utan við þetta samkomulag eru margir hópar og einstaklingar, sem ekki hafa tryggt sér lífeyrisréttindi, en nm. fannst það vera málefni, sem þyrfti að athuga betur. Inn í þetta sérstaka frv. væri ekki æskilegt að blanda fleiri hópum, enda væri gersamlega útilokað að taka þarna fleiri inn, hvað þá að tæma það allt, sem óleyst er á þessu sviði, nema að undangenginni mjög ýtarlegri athugun og könnun, sem ekki er ástæða til að bíða eftir varðandi það fyrirheit, sem gefið var stéttarfélögum innan Alþýðusambands Íslands. Auk þess væri það naumast viðeigandi að gera nokkrar breytingar á þessu frv., nema þá að undangengnu nýju samkomulagi við Alþýðusambandið og verkalýðshreyfinguna.

Það er út af fyrir sig alveg rétt, að margir eru þeir, sem þetta samkomulag tekur ekki til. En samkomulagið við verkalýðshreyfinguna byggist á því, að keyptur er lífeyrisréttur fyrir aldrað fólk í lífeyrissjóðum, sem þegar er búið að stofna eða verið er að ganga frá. Hins vegar eru aðrir starfshópar, sem eiga eftir að tryggja sér lífeyrisréttindi. Þar er undirbúningi málanna ekki komið svona langt, og ef við tökum t.d. þessa menn, sem fjallað er um í bréfinu frá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, þá er það út af fyrir sig ljóst, að ef þessir menn eru í verkalýðsfélögum innan Alþýðusambandsins og hafa unnið hjá ríki og bæ eftir taxta verkalýðsfélaganna, þá verða þeir auðvitað aðnjótandi þess frv., sem hér er ætlunin að samþykkja. Ef þeir hins vegar eru ekki í verkalýðsfélagi innan Alþýðusambandsins og hafa kannske ekki heldur tekið laun sín eftir töxtum þeirra, heldur eftir töxtum opinberra starfsmanna, þá er það eðlilegast, að Bandalag starfsmanna ríkis og bæja taki upp viðræður við ríkið, að því er varðar þessa ríkisstarfsmenn, og við sveitarfélögin eða Samband ísl. sveitarfélaga, að því er varðar bæjarstarfsmennina, og reyni að tryggja þessum mönnum hliðstæðan rétt og verkamönnum var tryggður með samkomulaginu frá 19. maí s.l., sem hér er verið að staðfesta.

Eftir því sem ég bezt veit, mun tiltekinn hópur ríkisstarfsmanna, starfsmenn hjá Áfengis- og tóbaksverzuninni, sem höfðu ekki greitt í lífeyrissjóð, hafa fengið úrlausn. Ég skal ekki dæma um það, hvort hún er þeim hagfelldari heldur en sú, sem hér er verið að leggja til fyrir menn innan Alþýðusambands Íslands, en þar er málið leyst á öðrum grundvelli.

Reyndar er það mín persónulega skoðun, að þetta mál verði aldrei leyst þannig, að allir fái þessi lífeyrisréttindi, nema á þann eina hátt, að það verði settur á stofn lífeyrissjóður fyrir alla landsmenn. Auðvitað er hægt að leysa þetta á annan og miklu torsóttari hátt, með því að taka fyrir hvern einasta smáhóp af öllum þeim tugum eða hundruðum slíkra hópa, sem eftir eru, og hreinsa þetta smátt og smátt upp. Það eru kannske ekki alls kostar heppileg vinnubrögð, þó að vissulega sé búið að gefa tilefni til þeirra. En þá þarf að taka hvern slíkan hóp rækilega fyrir og kanna, hvaða lífeyrissjóður vill taka við þeim, og þá síðan, hvort ríkisvaldið eða einhver opinber aðili vill greiða fyrir þeim í þessum sjóði með því að borga eftirlaunagreiðslur.

Ég vil undirstrika það, að með þessu frv., sem hér liggur fyrir, er ekki verið að stofna neinn lífeyrissjóð. Það er bara verið að lögfesta vissar greiðslur í lífeyrissjóði, sem þegar eru til, og ég tel, að þess vegna þurfi, þegar aðrir hópar fá sína úrlausn, að liggja alveg ljóst fyrir, að þeir hópar eigi aðgang að tilgreindum lífeyrissjóðum, og forráðamenn eða þau stéttasamtök, sem að þeim lífeyrissjóðum standa, hafi samið við ríkisstj. og aðra aðila um sams konar réttindi, sem ég tel vissulega, að sé ekkert óeðlilegt að veita slíku fólki. En það væri fyrst, þegar málið yrði komið á sams konar stig og það er nú komið gagnvart stéttarfélögum Alþýðusambandsins, sem tímabært yrði að lögfesta reglur um þetta. Af þessum sökum taldi n. ekki eðlilegt, að neitt væri hróflað við því frv., sem hér liggur fyrir.