17.03.1970
Neðri deild: 61. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 507 í B-deild Alþingistíðinda. (528)

142. mál, eftirlaun aldraðra í stéttarfélögum

Eðvarð Sigurðsson:

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, er flutt til þess að lögfesta samkomulag, sem gert var við ríkisstj. í samningunum 19. maí s.l. Ég hef verið þeirrar skoðunar, að það hafi mjög orkað tvímælis, hvort flytja hefði átt þetta mál inn á Alþ. í frv.-formi á þá leið, sem hér var gert. Það var vitað, þegar það samkomulag var gert, að það var ekki alfullkomið, enda greindi menn á um, hvað ætti að standa í því, og einkanlega var öll framkvæmd þess eftir, sem augljóslega hlaut að leiða í ljós ýmis atriði, sem gjarnan hefðu mátt betur fara. En hins vegar hefur þessi leið verið valin, og ég ætla ekki að gagnrýna það, út af fyrir sig, en ég tel, að þetta mál hafi orðið fyrir allt of miklum töfum. Það var lagt of seint fyrir Alþ., rétt fyrir jólin, ef ég man rétt, og hefur tafizt of lengi.

Eins og ég sagði, var hér um samkomulag að ræða, samning, sem gerður var milli ríkisstj. og verkalýðshreyfingarinnar. Það má nærri geta, að búið er að togast nokkuð á um slíkan samning, og það hlýtur að vera viðkvæmt mál, að honum sé breytt, áður en til framkvæmda kemur. Auðveldast af öllu, a.m.k. fyrir mig, væri að flytja brtt. við þetta frv., vinsælar brtt., sem ég gæti gjarnan haft tilbúnar með skömmum fyrirvara. En þá leið hef ég ekki talið rétt að fara. Það er út af fyrir sig ekkert undrunarefni, að það komi fram hugmyndir um að breyta frv., þegar það kemur fyrir Alþ. Sú varð raunin í hv. Ed. og einnig hefur sú orðið raunin hér í þessari hv. d. Ég tel, að sú málsmeðferð, sem heilbr.- og félmn. leggur nú til að verði viðhöfð, með þeirri brtt., sem n. flytur við frv., sé viturleg og menn eigi að sættast á þessa brtt.

Það er enginn efi á því, að þegar nú verður farið að framkvæma þessi lög, kemur margt upp á teninginn, sem þarf að athuga nánar og sjálfsagt að breyta. Það er einmitt af þessum sökum, sem ég tel, að heppilegra hefði verið að flytja hér aðeins frv., sem kvæði á um heimild ríkisstj. til greiðslu samkv. þessu samkomulagi. Það hefði átt að nægja á fyrsta stigi, einmitt vegna þess, hve mikil hætta er á, að það þurfi að breyta ýmsu.

Ég vil, herra forseti, leggja mikla áherzlu á, að þetta frv. verði nú afgreitt sem allra fyrst. Sannleikurinn er, að það er allt of seint á ferðinni. Það munar nú orðið um hvern daginn, svo hægt sé að fara að undirbúa framkvæmd málsins samkv. þeim l., sem Alþ. gengur nú frá. Þetta er býsna viðkvæmt mál. Hér er um marga aðila að ræða, sem eiga rétt til þessara greiðslna samkv. samningunum frá s.l. áramótum. Enn þá hefur þó ekki verið hægt að gera neitt til framkvæmda málsins vegna þeirra tafa, sem það hefur orðið fyrir. Ég vil því leggja sérstaka áherzlu á, að þessu verði nú hraðað, og lýsa ánægju minni með þá brtt., sem n. flytur.