20.03.1970
Neðri deild: 63. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 570 í B-deild Alþingistíðinda. (581)

166. mál, hækkun á bótum almannatrygginga

Forseti (MÁM):

Út af ummælum hv. 6. þm. Reykv. vil ég sem forseti taka fram, að þær tilraunir, sem gerðar hafa verið í dag til þess að hafa atkvgr. hér um ákveðið dagskrármál, sýna, að hv. þm. hafa ekki í dag sótt þingfundi sem skyldi. Hins vegar hef ég nú boðað til þessarar atkvgr. kl. 6 og það boð hefur verið látið út ganga til allra hv. þdm. Það er jafnan svo, þegar um er að ræða ágreiningsmál, að reynt er að haga hlutum þannig, að allir hv. þdm. geti verið viðstaddir atkvgr.