20.03.1970
Neðri deild: 63. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 570 í B-deild Alþingistíðinda. (583)

166. mál, hækkun á bótum almannatrygginga

Bragi Sigurjónsson:

Með skírskotun til þess, sem ég sagði í dag, þegar ég gerði grein fyrir nál. meiri hl., að ráðuneyti tryggingamála hefði ákveðið að skipa nefnd til að endurskoða almannatryggingalögin fyrir næsta Alþ. og þar yrði tekið til endurskoðunar m.a. það, sem hér er ágreiningsefni, hækkun elli- og örorkulífeyris, þá segi ég nei.