24.03.1970
Efri deild: 62. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 572 í B-deild Alþingistíðinda. (591)

166. mál, hækkun á bótum almannatrygginga

Frsm. meiri hl. (Jón Þorsteinsson):

Herra forseti. Heilbr.- og félmn. hefur haft til meðferðar frv. þetta til l. um hækkun á bótum almannatrygginga. N. varð ekki sammála. Meiri hl. n. leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt.

Við meðferð fjárl. fyrir árið 1970 á Alþ. voru framlög til lífeyristrygginga almannatrygginga hækkuð um 97 millj. kr. frá því, sem fjárlagafrv. gerði upphaflega ráð fyrir. Af þessari hækkun ber ríkissjóður 58.6 millj., en afgangurinn er borinn uppi af sveitarsjóðum, vinnuveitendum og tryggingaþegum. Með frv. þessu er verið að deila út og ákveða nánar þær hækkanir á bótum, sem fjárl. gerðu ráð fyrir. Tryggingabætur hækka almennt um 5.2%, en fjölskyldubætur og fæðingarstyrkir hækka þó heldur meira.

Þrátt fyrir þessa lagfæringu verður kaupmáttur elli- og örorkulífeyris nú nokkru lægri en þegar hann var mestur, en það var árið 1967. Ástæðurnar fyrir því eru augljósar. Hin miklu efnahagslegu áföll, sem þjóðin varð að þola síðustu árin, hafa óhjákvæmilega skert kjör allra landsmanna á einn eða annan hátt, hvort heldur það eru launþegar, vinnuveitendur eða bótaþegar almannatrygginganna. Það, sem mestu máli skiptir fyrir bótaþega almannatrygginganna, eins og aðra landsmenn, er, að þær víðtæku og markvissu ráðstafanir, sem ríkisstj. hefur gert til þess að vinna bug á hinum efnahagslegu áföllum, beri góðan árangur, enda horfir nú allvel í þeim efnum. Og ef svo heldur fram sem horfir, verður þess ekki langt að bíða, að unnt verði að veita fjármagn til að hækka bætur almannatrygginganna að raungildi.

Að hinu leytinu er svo augljós þörf á því af margvíslegum ástæðum að taka almannatryggingalöggjöfina í heild til endurskoðunar, og það verk verður að hefja án undandráttar.