24.03.1970
Efri deild: 62. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 572 í B-deild Alþingistíðinda. (592)

166. mál, hækkun á bótum almannatrygginga

Frsm. minni hl. (Björn Fr. Björnsson):

Herra forseti. Heilbr.- og félmn. klofnaði um afgreiðslu þessa máls, og það er ekkert einsdæmi í þeirri hv. n., að við séum þar ekki á eitt sáttir, eins og fram hefur komið á þingfundum hér í hv. d. Meiri hl. mælir með samþykkt frv. óbreytts, en við í minni hl., ásamt mér skipa hann hv. 1. þm. Vesturl. og hv. 4. þm. Norðurl. e., leggjum til, að ellilífeyrir, örorkubætur og aðrar bætur, sbr. 2. mgr. 1. gr. frv., hækki um 15%, en í frv. er gert ráð fyrir því, að þessar bætur hækki ekki um nema 5.2%.

Við í minni hl. álítum, að kaupmáttur þessara lífeyrisgreiðslna sé þegar orðinn svo rýr, að ekki sé í rauninni um hækkun að ræða, heldur miklu fremur lækkun. Við álítum, að gamla fólkið og öryrkjarnir eigi sannarlega annað skilið af hálfu hins opinbera. Við teljum, að jafnan eigi að gæta þess og gæta þess vandlega, að lífeyrisgreiðslur til þessara þjóðfélagsþegna eigi a.m.k. að vega upp á móti aukinni dýrtíð hverju sinni. En þessi svonefnda hækkun, 5.2%, gerir það ekki. Velferðarríki, eins og okkar þjóðfélag er talið vera, sýnist okkur vart geta sóma síns vegna gengið á rétt gamla fólksins, sem unnið hefur vel og lengi að nytsömum störfum í þjóðfélaginu, og því síður teljum við, að hægt sé að ganga á hagsmuni þess fólks, sem eigi er þess megnugt að vinna að nýtu starfi innan þjóðfélagsins, starfi, sem því væri þó sannarlega kært og eðlilegt að vinna að öðrum kosti. Þegar við lítum til þessa, þá hefur okkur í minni hl. þótt rétt að bera fram brtt., er varðar þetta ákvæði frv. og fylgir hún niðurlagi nál. okkar.

Ég vil geta þess, að kunnugur maður hefur sagt mér, að daggjald t.d. á elliheimilinu Grund sé um 300 kr. Það mun gera u.þ.b. 110 þús. kr. yfir árið. Áður mun hafa verið talið eðlilegt, að tvöfaldur einstaklingsellilífeyrir ætti nokkurn veginn að geta dugað til þess að standa undir kostnaði við dvöl á elliheimili. Einstaklingsellilífeyririnn er 45 þús. kr. og tvöfaldur einstaklingsellilífeyrir þá 90 þús., og eftir þessum útreikningum mun vanta um 20 þús. kr. á að þessari gömlu reglu sé fylgt. Ég hygg, að með 15% hækkun á ellilífeyri væri hægt að komast mjög nærri hinni gömlu reglu, að tvöfaldur einstaklingsellilífeyrir dygði til að greiða kostnað á elliheimili eins og sakir standa. Ég vildi aðeins taka þetta fram til að sýna, að hér hefur mjög verið rýrður kaupmáttur ellilífeyris.

Ég ætla mér ekki að orðlengja mál mitt öllu frekar og í raun og veru get ég látið hér staðar numið. Brtt., sem við í minni hl. höfum lagt fram, er á þá leið, að í stað tölunnar 5.2% í 2. mgr. 1. gr. frv. komi 15%, og skal reyna á það, hvort þessi till. okkar nær samþykki hv. d. Okkur er það ljóst, að hér þarf að greiða skjótt úr, og það þarf að koma þessu frv. áleiðis og það í dag, en samt sem áður vildum við í minni hl. ekki láta undir höfuð leggjast, að þessi skoðun kæmi fram í hv. d., áður en til endanlegra úrslita drægi.